Leita í fréttum mbl.is

Einar S. og 3.orkupakkinn

eru á ferli í Morgunblaðinu í dag.

Einar telur okkur ekki neitt bundna af ACER eða pakkanum. Þessu er ég óskamála.

Er ekki andinn í pakkanum og ACER  í þá veru um samvinnu í orkumálum  að við getum ekki verið á móti lagningu sæstrengs til Íslands ef einhver vill leggja hann hingað og kaupa af okkur rafmagn?

Til hvers skyldum  við vera þá að skrifa undir 3.orkupakkann ef hann skiptir engu máli eins og Einar S. og þingmenn Sjálfstæðisflokksins halda fram?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Hmm.

1. Kannski svona eins og Svíar héldu að þeir kæmust hjá því að taka upp evru, eftir að lögfræðiálit hinna sérfróðu voru framreidd til að styðja undir lygar ríkisstjórnarinnar, þegar hún laug Svía inn í ESB 1994.

2. Eða eins og þegar íslenskir þingmenn segja að það sé ekki annarra kosta völ.

Hmpf!

Þetta er einkennið á öllu sem viðkemur ESB og EES. Allt er fyrirlöngu orðið allt annað en sagt var að það mætti og ætti að geta orðið.

Kveðja

Gunnar Rögnvaldsson, 9.3.2019 kl. 17:49

2 identicon

Nákvæmlega Halldór:  Til hvers að skrifa undir þriðja orkupakkann ef hann skiptir engu máli?

Skyldi það ekki hafa með það að gera að öll forysta flokksins er ESB aðlögunarsinnar og laumu ESB sinnar?  Það er ekkert annað sem getur útskýrt það af hverju forystan vill samþykkja enn einn pakkann frá ESB.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 9.3.2019 kl. 18:11

3 identicon

Sé það svo að landsfundarályktun Sjálfstæðisflokksins

skipti þingmenn flokksins engu máli,

þá skipta þingmenn engu máli fyrir flokkinn.

Þeir munu þá fremja sitt pólitíska harakiri,

ekki af sæmd, heldur af eigin græðgi og vesældómi. 

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 9.3.2019 kl. 18:47

4 identicon

Enn og aftur skal það ítrekað, að við erum (enn)  ekki tengd orkuflutningakerfi ESB og því ber okkur engin skylda til að innleiða þennan ESB aðlögunar pakka, þriðja orkupakkann.  Ekki fremur en okkur beri að innleiða pakka um lesta samgöngur.

Af því leiðir að það eru engin rök fyrir því að við séum neydd til að innleiða þennan pakka.  Um þetta fjallaði Jón Baldvin eftirminnilega í nóvember síðastliðnum, en var svo tekinn niður af innlendum valdaöflum, sem beittu fyrir sig hysteríu hópi.  Þau valdaöfl stefna að því að gera landið að evrópsku bananalýðveldi.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 9.3.2019 kl. 19:14

5 identicon

Fyrverandi bekkjarbróðir minn úr MR Einar S. er þó alveg á því að varst beri einræðistilburði ESB. Grundvöllur hans löfræðiálits er að aldrei verði hér lagður sæstrengur en þar er forstjóri Landsvikjunar og vellaunaður stjórnarmaður lyfjafyrirtækisins Veritas honum mjög svo ósamála

Grímur (IP-tala skráð) 9.3.2019 kl. 19:26

6 identicon

Kæmi, hugsanlega í ófyrirséðri framtíð, til lagningingar raforkusæstrengs til ESB lands, þá fyrst yrðum við að samþykkja þriðja orkupakkann.

Að sama skapi ber okkur engin skylda til að innleiða pakkann, meðan enginn raforkustrengur hefur verið lagður. 

Svo einfalt er þetta og það þarf einbeittan brotavilja gegn hagsmunum lands og þjóðar að skilja það ekki.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 9.3.2019 kl. 19:49

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Getum við neitað sæstreng ef einhver vill leggja hann hingað ef við höfum skrifað undir? Hver getur svarað því?

Halldór Jónsson, 9.3.2019 kl. 20:20

8 identicon

Stutta svarið er þetta Halldór:

Með samþykkt þriðja orkupakkans myndum við undirgangast regluverk og dómstóla ESB.

Af þeim sökum hefur Stefán Már Stefánsson sagt samþykkt þriðja orkupakkans verða brot á Sjórnarskrá íslenska lýðveldisins.

Um afsal fullveldis okkar yfir orkuauðlindum okkar væri að ræða.  Til dómstóla ESB, skv. lögum og regluverki ESB.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 9.3.2019 kl. 20:52

9 Smámynd: Jón Þórhallsson

Þó að ég sé ekki fylgjandi þessum 3 orkupakka;

ÍSLENSKA RÍKIÐ á allar þær helstu virkjanir sem að skipta einhverju máli hér á landi og ef að EÍKIÐ vil ekki selja rafmagn til Breta; þá geta erlendir aðilar væntanlega hvergi stungið í samband hér á landi með sinn streng.

Þá værum við væntanlega bara að gera norðmönnum greiða

með því að samþykkja þennan 3 orkupakka.

Jón Þórhallsson, 9.3.2019 kl. 21:05

10 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Nafni.: Getum við þetta, eða getum við hitt, ef við gerum þetta eða gerum hitt?

 Við getum það sem við viljum!

 Þeir sem sá fræjum efa og rugls, eru vel á veg komnir með að gera einföldustu hluti svo flókna, að fæstir vita upp eða niður lengur. Það er skelfilegt að horfa upp á forystusveit Sjálfstæðisflokks Íslands stunda þenna hráskinnaleik andskotans, þvert á niðurstöður Landsfundar og öll gildi Sjálfstæðisflokksins! 

 Þar leynast vargar í véum og þá ber að uppræta með öllum tiltækum ráðum! Öllum!

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 9.3.2019 kl. 21:48

11 identicon

19. nóvember 2018 birtist eftirfarandi viðtal við Jón Baldvin á viljinn.is

Þar sem þar koma fram öll þau helstu atriði sem þetta mál snýst um, líkt og t.d. Bjarni Jónsson rafmagnsverfræðingur segir þar í athugasemd, er vert að það birtist hér:

„Vandinn við þetta mál er sá, að það er eru ekki öll kurl komin til grafar. Meðan ekki er sæstrengur, stöndum við einfaldlega fyrir utan orkumarkað Evrópu. Í núinu er þetta mál okkur því óviðkomandi. En handan við hornið eru fjárfestar, erlendir og innlendir samstarfsmenn þeirra, sem eygja mikla gróðamöguleika í gegnum sæstrenginn,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson fv. utanríkisráðherra í samtali við Viljann aðspurður um þá samþykkt Miðstjórnar Framsóknarflokksins að hafna innleiðingu þriðja orkupakka Evrópusambandsins og óska eftir undanþágu frá hinum sameiginlega orkumarkaði í EES-samstarfinu.

Andstaða Jóns Baldvins við innleiðinguna hefur vakið mikla athygli, enda fer hann langt með að teljast faðir EES-samningsins hér á landi, þar eð hann var utanríkisráðherra þegar við gerðumst aðilar að honum.

Jón Baldvin hefur varað við því að rafmagnsverð hér á landi geti stórhækkað með innleiðingu orkupakkans. Hann skýrir það svo:

„Með sæstrengnum tengjumst við orkumarkaði Evrópu og lútum hans regluverki og stjórnsýslu. Þá er hætt við, að eftirleikurinn sé tapaður. Þá snýst málið um orkufyrirtæki  í framleiðslu og dreifingu í ríkisrekstri með ráðandi markaðshlutdeild –  gegn kröfunni um einkavæðingu. Í einkavæðingunni felst gróðavon fjárfestanna. Það væri algerlega andstætt íslenskum þjóðarhagsmunum og hagsmunum almennings. Þar liggur hundurinn grafinn.“

Hann segist hafa miklar áhyggjur af Sjálfstæðisflokknum í málinu:

„Ég veit, að innan Sjálfstæðisflokksins eru sterk öfl, sem eygja mikil gróðatækifæri í þessari einkavæðingu — eins og venjulega með því að öðlast skylduáskrift að tekjum almennings. Enn sem komið er, eru þeir í felum. Þetta er þeirra aðal gróðavon: síminn, fjarskiptin, orkan, vatnið, fiskurinn og þannig mætti áfram telja. Takist þeim þetta, verður Ísland endanlega orðið að bananalýðveldi í Suður-amerískum stíl — verstöð í eigu nokkurra auðklíkna og undir þeirra stjórn.“

Hvar slær hjarta Framsóknar þá?

Jón Baldvin segir áhættuna einfaldlega of mikla: 

„Það er of mikil  áhætta að rétta þeim litla fingurinn, með því að innleiða pakkann nú og sjá svo til með sæstrenginn seinna. Sá sem réttir Skrattanum litla fingurinn, missir venjulega höndina. Ríkisstjórnin er vafalaust undir ofurþrýstingi frá Norðmönnum um að spilla ekki norskum þjóðarhagsmunum í þessu máli. Þeir fara ekki saman við íslenska þjóðarhagsmuni.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 9.3.2019 kl. 21:50

12 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

 Norðmenn gáfu skít í okkur eftir Hrun. Gefum skít í þá til baka.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 9.3.2019 kl. 22:14

13 identicon

Röksemdir Einars S. eru í stuttu máli þær að við þurfum ekkert að óttast, þar sem Michael Mann, sendiherra ESB á Íslandi segir svo.

Þar sem ég hef áður tjáð mig um téðan herra sendiherra, þá endurtek ég það sem ég skrifaði þá í athugasemd við boðskap Mr. Mann á visir.is þar sem hann tuggði möntru þá sem Einar S. tekur nú undir (visir.is sem er notabene í eigu Sýnar, hvers stjórnarformaður er tengdasonur Björns Bjarnasonar):

Ekkert að óttast, segirðu?
Það eru ekki endilega erlendir milljarðamæringar sem við óttumst mest, herra sendiherra.
Það eru gráðugir menn eins og fjármálaráðherrann okkar, sem skipaði vin sinn 
sem formann kjararáðs sem skammtaði samseku og gráðugu þingmannastóðinu og 
ráðherrum og æðstu embættismönnunum launahækkanir úr ríkissjóði, langt umfram aðra, 
og því næst gerði fjármálaráðherrann sama vin sinn að stjórnarformanni Landsvirkjunar. 
Af því höfum við nokkrar áhyggjur, herra sendiherra.

Svo höfum við reynslu af þeim sem "keyptu" hér 3 banka, veðsettu allt heila klabbið 
og fengu "lánsfé"
 frá erlendum bönkum, og stofnuðu svo hina "tæru snilld" og fjallalind, 
stöðugt fjárstreymi í gegnum inn"láns"reikninga erlendis frá, inn og út og hvert?
... við köllum þá enn "útrásarvíkinga", herra sendiherra. Icesave júnóv?
Það endaði með hruni haustið 2008, vissirðu það kannski ekki, hr. sendiherra.

Þeir höfðu rænt bankana innan frá og komið fengnum fyrir í skattaskjólum á aflandseyjum.
Mikið af því fór í gegnum útibúin í Luxembourg, þar sem Jean Claude Juncker, hafði komið
brellukerfinu á fyrir hina ríku, þá sem verða alltaf ríkari og ríkari með svona háttalagi, 
þú hlýtur að kannast við Juncker, hann sem er núna framkvæmdastjóri ESB 
og þú sem ert sendiherra ESB á Íslandi? Þetta hlýtur þú a.m.k. að vita. 
En hrunið fór hins vegar mjög illa með íslenskan almenning, 
en hirðarnir endurreistu allt á nýjan leik fyrir fulltingi þingmanna, ráðherra 
og æðstu embættismanna ... og forseta þingsins.

Og nú segirðu okkur að við þurfum ekkert að óttast, ekkert að óttast segirðu,
þegar íslenskir "útrásarvíkingar" ætla að endurtaka leikinn ...
nú með því að búta Landsvirkjun, hæfilega niður í skúffur aflandseyjanna 
og virkja í djöfulmóð, ennþá fleiri fallvötn. 
Og dæla svo gígaterabætum fallvatnanna og heitu hveranna 
(HS Orku, Magma Alterra júnóv?) í gegnum rosa særafmagnsflutningastreng, 
IceLink, einn, tveir, þrír? "Sjáiði ekki veisluna" munu þeir segja enn á ný.
Og að við eigum að treysta þeim best til að ákvarða um það 
fyrir hönd þjóðarinnar, þeim sem skömmtuðu sér launahækkanir langt umfram aðra?
Og gæti verið að eitthvað af "veisluföngunum" færu enn á ný í gegnum Luxembourg,
eða kannski City, eða Frankfurt? Þú ert fróðari um það en ég, þú ert sendiherra ESB.

Æjú, maður að nafni Ratcliffe, einn auðugasti maður Bretlands,
https://icelandmonitor.mbl.is/.../landowner_in_iceland.../
jú, ætli hann sé reyndar ekki erlendur milljarðamæringur, hann á víst núna 
nærri allar jarðir nærri Dettifossi (sá foss er aflmesti foss landsins, vissirðu það, herra sendiherra?)
Kannski hann, ég meina Ratcliffe, gæti hugsað sér að gambla þar smá með okkar drengjum? 
Bara spyr. Þætti þér það ólíklegt, herra sendiherra? Ekkert að óttast segirðu, ertu viss?
Hann er reyndar byrjaður að selja virkjanaréttinn hæstbjóðanda: 
http://www.ruv.is/.../ratcliffe-selur-virkjunarrett-ad...
Kannski deilið þið sömu sýn, virkja allt þar til hér verður ekkert nema virkjanir, urð og grjót?
Ogbæðevei, "Tær snilld", "sjáiði ekki veisluna", kannastu ekki við þau hugtök, hr. sendiherra?

Við hljótum að vera sammála um það, herra sendiherra, að best færi á því, 
að þjóðin afgreiði þetta mál í þjóðaratkvæðagreiðslu. 
Eða ertu ekki örugglega lýðræðissinni, herra sendiherra ESB á Íslandi?
Er ekki best að þjóðin fái að kjósa um þetta mál,
því málið varðar helstu náttúruauðlindir þjóðarinnar, herra sendiherra?
Auðvitað ertu sammála því, þér blöskrar án efa græðgi þeirra sem þú vinnur fyrir
og hvernig þið fóruð með Grikkland, herra sendiherra (Þjóðverjar rændu reyndar fyrst 
gullforða þeirra í seinni heimstyrjöldinni og hafa enn ekki skilað honum til baka). 

Svaraðu mér nú af heiðarleikanum einum saman, sem stæðir þú berstrípaður 
sem Díogenes í tunnunni, bara með tunnugarminn utan um berstrípaðan kroppinn:
Ert þú heiðarlegur maður, herra sendiherra? Þú getur svarað, já, kannski, nei.
En ég treysti ekki orðum þínum, ef þú segir já, eða kannski, en bara ef þú segir nei.

Og þér að segja var EES samningnum nauðgað upp á þjóðina,
án þjóðaratkvæðagreiðslu. Er það sú aðferð sem þér líkar best, herra sendiherra?
Fyrst var honum nauðgað upp áþjóðina svo einka(vina)væða mætti bankana 3
(frjálst flæði fjármagns til Luxemborgar og áfram ... júnóv?, dújúönderstandmí?)
Og nú finnst þér hæfa að beita hræðsluáróðri og óbeinum hótunum ... og það núna strax?
Hvernig yrði það þá, þegar kæmi að fjórða pakkanum og fimmta pakkanum?

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 9.3.2019 kl. 23:44

14 identicon

Meðfylgjandi er krækjan á möntru Mr. Mann á visir.is:

http://www.visir.is/g/2018181119386/sendiherra-esb-a-islandi-alls-ekki-neitt-fyrir-islendinga-ad-ottast-

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 10.3.2019 kl. 00:02

15 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Takk Pétur Örn.

Halldór Egill Guðnason, 10.3.2019 kl. 00:21

16 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Snillingur ertu Petur.

Besta lysing a sannleikanum.

Takk fyrir.

Sigurður Kristján Hjaltested, 10.3.2019 kl. 08:07

17 Smámynd: Þórir Kjartansson

Takk fyrir þennan mergjaða pistil, Pétur Örn

Þórir Kjartansson, 10.3.2019 kl. 10:19

18 identicon

Hér eru SNILLINGAR að skrifa athugasemdir og gefa viðvaranir við ORKUPAKKANUM og "ÖLLU ÖÐRU"sem Landið gefur. Það er verið að selja Landið OKKAR,laxveiði og ómengaðar Blávatnsár og heilu firðina. ALÞINGI vinnur EKKI lengur fyrir ÍSLAND heldur ringulreiðina í ESB löndum,sem við tilheyrum EKKI. Hér ríkir ÓSTJÓRN og þeir sem boða inngöngu til ESB landa, verða vonandi EKKI á næsta ALÞINGI.

Ótti og skelfing hvílir á og yfir borgum "stjórnlausrar" Evrópu. Fækkum á Alþingi og krefjumst ALÞINGISMANNA, sem eru tilbúnir að vinna fyrir FÁMENNI ÍSLENDINGA og ÍSLAND.    

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 10.3.2019 kl. 11:22

19 identicon

Daily Fantasy Art on Instagram: “

 

Húsari. (IP-tala skráð) 10.3.2019 kl. 12:24

20 identicon

Sæll Halldór Verkfr. / sem og þið aðrir, gestir Verkfræðings !

Pétur Örn Björnsson !

Tek undir: sjónarmið margra mætra skrifara, hér ofar: gagnvart þinni snörpu og þörfu ádrepu - sem tímabæru.

Hið eina - sem ég vildi bæta við, var þáttur svikara hjúanna : Davíðs Oddssonar - Jóns Baldvins Hannibalssonar og Vigdísar Fnnbogadóttur í ÞRÖNGVUN EES óskapnaðrins upp á landsmenn, á árunum 1992/1994, þegar herfan Vigdís lét sig hafa það, að kasta fyrir róða uppáskriftum á 4. Tug Þúsunda landsfólksins, gegn EES hroðanum.

Hvað: skyldi hún hafa þegið í mútur, fyrir þann gjörning ?

Tilurð Vigdísar kumbaldans síns í Vatnsmýrinni syðra:jafnvel ?

Þá - skulum við ekki gleyma, að Guðni Th. Jóhannesson, pjátur- og punt drengur Engeyjar ættarinnar suður á Bessastöðum, er á NÁKVÆMLEGA sömu brautum undirgefni og smjaðurs fyrir valdastéttinni hérlendu, sem Vigdís Finnbogadóttir var alla sína tíð, í stól sínum, suður á Álptanesi (1980 - 1996), ekki síður !

Með kveðjum: samt sem áður, af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.3.2019 kl. 13:05

21 Smámynd: Halldór Jónsson

Þetta er frábært yfirlit hjá Pétri

Halldór Jónsson, 10.3.2019 kl. 13:43

22 identicon

Kærar þakkir.

Nú notar Björn Bjarnason það sem röksemd að Einar S. Hálfdanarson segi að við þurfum ekkert að óttast, en hann (BB) forðast að geta þess að röksemd Einars S. er einmitt sú sama og Michael Mann (fyrrum aðstoðarmaður og spóksman fyrir fyrrv. stækkunarstjóra ESB, Leidí Ashcroft) notar í áróðri sínum og blekkingum.

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 10.3.2019 kl. 14:45

23 identicon

Komið þið sælir - á ný !

Pétur Örn !

Margfaldar þakkir / sem ítrekaðar.

Birni Bjarnasyni: tengdafaðir Heiðars MÁS Guðjónssonar, einhvers kunnasta braskara í okkar samtíma, gengur hart fram og grímulaust, erinda Heiðars:: í plotti hans með Engeyingum og viðrinum þeim hérlendum, sem fylgja þeim í ágirndarinnar- og gróðans ákafa, fyrir nú utan það, að Björn Bjarnason, þessi dapurlegi Kaldastríðs Tindáti, er innvinklaður ættinni í bak og fyrir.

Björn Bjarnason - er einskonar merkisberi þess, sem þau : Katrín jakobsdóttir (lesizt: Steingrímur J. Sigfússon) - Bjarni Engeyingur Benediktsson, ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni:: lítilsigldum húskarli þessa safnaðar, eru að bauka suður í Brussel þessi misserin, með þeim Juncker fyllibyttu og Merkel kerlingunni, Þýzku.

Helztu fagurgalarar 3.orkupakkans: eru svo þau Hörður Arnarson Landsvirkjunar stjóri og griðkona hans, lítilþæg Ragna nokkur Árnadóttir (sem fæstir vita nú fyrir víst, hvað sé að gera innan veggja Landsvirkjunar kontóranna: yfirleitt), ásamt bakröddunum : Guðlaugi Þór Þórðarsyni / Þórdísi Kolbrúnu (Reykáss) Gylfadóttur og nokkurra annarra fígúra, víðs vegar.

Gleymum svo ekki - undirhyggju og hræsni helztu attaníossnna annarra, þeirra Engeyinga : Samfylkingu, sem Viðreisn fyrir nú utan lymzku og fláræði KlámKlaustursBars flokksins (Miðflokkur: nefndur opinberlega), enda Sigmundur Davíð Gunnlaugsson viðlíka trúverðugur, og Vindhanar þessa lands, enda rummungur þar, sem kann vel við að sigla undir fölskum flöggum, ekki síður en mörg þau hinna, sem alþingi ömurleik ans sitja, þessi misserin !

Fyrir nú utan: það Hrægamma safn embættismanna stéttarinnar, sem fyllir II. hvert ráðuneytanna, suður í Reykjavík, einnig.

Hinar sömu kveðjur: sem fyrri /      

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.3.2019 kl. 16:04

24 identicon

ÞETTA ERU OFURFRÉTTIR ORKUMÁLA, FJÁRMÁLAFRÉTTA OG STJÓRNLEYSIS Á LANDINU GÓÐA. HUGSANLEGA ERUM VIÐ Á ENDASTÖÐ GAGNVART FÓLKI OG FJÖLSKYLDUM,SEM MISSTU UM 15 ÞÚSUND HEIMILA OG HÚSA frá 2008. ÉG ÞAKKA PÉTRI ERNI OFL.FYRIR GÓÐ SKRIF OG UPPLÝSINGAR. 

Við viljum EKKI FJÖLGA starfsfólki Ríkisins og endurtaka "fjármálafjörið" að nýju FRÁ ÁRINU 2008. Við höfnum risa Ríkisfyrirtækjum og ofurlaunum frá Kjararáði til Alþingis og óábyrga bankastjóra og skildra.

ÞETTA ER ÁSTÆÐAN FYRIR ÓSAMKOMULAGI VIÐ VERKALÍÐSFÉLÖGIN Í DAG. HÆTTUM INNFLUTNINGI Á VINNUAFLI OG GERUMST MENNSKIR. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 10.3.2019 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband