Leita í fréttum mbl.is

James D. Watson

er einn makalausasti vísindamaður okkar tíma. Ég hef verið að berjast í bók hans ,DNA, sem er frá byrjun aldarinnar. 404 síður og má segja að maður geti ekki sleppt einni línu án þess að bíða tjón á skilningi sínum.

Maðurinn er sá sem setti fram kenninguna um tvöfalda gorminn sem lýsir erfðasamsetningunni.Nú er ég svo vitlaus í líffræði að ég þekki ekki einu sinni réttu íslensku nöfnin á þessum hlutum

Rosalind Franklin kom honum og Grick á sporið með ljósmynd af þverskurði litnings. En þessi frábæra vísindakona lést fyrir aldur fram 37 ára gömul úr krabbameini.

En hver frumukjarni í líkama okkar inniheldur 2x 23 litninga, eitt sett frá hverju foreldri. Sá sem fæðist með 3 litninga númer 21 fær Downs Heilkenni til dæmis og önnur afbrigði valda öðrum vandamálum.. Hver 23 krómosómaröð(er þetta rétt orð?) röð kallast genome lífverunnar sem ég veit ekki hvað kallast á íslensku

helixMyndin sýnir þverskurð af litningi og sýnir hvernig genin tengjast við tvöfalda gorminn. 

Hver 23 litninga röðin inniheldur 3 milljarða af mismunandi samsetningum af 4 einingum sem ráða öllu um erfðir okkar.

Ég á auðvitað ekki að vera að skrifa um þetta þar sem ég hef ekki hundsvit á þessum vísindum. En bók Watsons er svo ótrúlega massív og áhugaverð að það er ekki áhlaupaverk að lesa hana fyrir venjulegan bjána eins og mig.Og ég hef alls ekki klárað hana né skilið til hlítar. 

Okkar dr. Kári Stefánsson fær 2 loflegar síður í bókinni sem sannar að hann hefur alþjóðlega stöðu með fremstu vísindamönnum heims.Fyllti mig stolti að lesa það þó heimska landsmanna hafi stórspillt árangrinum sem hefði verið hægt að ná í okkar sérstöku aðstæðum ef elítan og sérvitringarnir hefðu ekki eyðilagt það sem að var stefnt.

En það er eitt sem knúði mig til að minnast á þetta. Það er hvernig farið var með þennan einstaka nú níræða vísindamann.

Mann sem aðeins stjórnast af rannsóknum og vísindalegum niðurstöðum. Hann sagðist hafa komið auga á tengsli milli kynþátta og eiginleika eins og gáfna og fleira. Upp risu fávitar og stimpluðu hann kynþáttahatara. Réðust á hann og reyndu að skaða orðstír hans á allan hátt, kölluðu hann rasista og nasista. Sem hann er auðvitað ekki. En þeir sviptu hann öllu sem þeir gátu fyrir að standa við skoðanir sínar nú síðast í janúar.

Góða fólkið, demókratar og elítufólk þóttist vita allt og níðskrifin eru endalaus.

Watson sem er trúleysingi lýkur bók sinni á grein Páls Postula um kærleikann sem sé sitt manifesto og vonar að einhvern tímann verði hægt að rækta illskuna úr manninum eins og aðrar raunir hans og sjúkdóma.Samt stimplar pakkið hann með verstu ónefnum sem er sorglegt þar sem mannkynið á þessum tuttugufalda doktor og Nóbelsmanni, mikla skuld að gjalda.

James D. Watson er í mínum augum mikilmenni sem menn eiga að virða fyrir það sem hann er og kynna sér það sem hann hefur gert og hefur verið.genome2

Myndin sýnir hvernig krómósómin eru í hverri frumu í líkamanum(450 milljón frumur í okkur skipta sér á hverri sekúndu)Hvert par af 23(í kassanum)er genomið okkar)Það inniheldur 3.1 milljarð af grunnþáttum A,T,G og C.Geta menn ímyndað sér við hvað erfðaverkfræðin er að fást? Þarna liggja orsakir allra sjúkdóma.  Ef maður getur fitlað við þetta á réttan hátt þá er hægt að gerbreyta lífi manna? Downs heilkenninu má forða, brjóstakrabbahættunni sem  Kári getur greint. Endalausir möguleikar opnast fyrir störf manna eins og James D. Watson og slíkra vísindamanna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Þakk fyrir fróðleikinn.

Egilsstaðir, 15.03.2019  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 15.3.2019 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband