Leita í fréttum mbl.is

Durtshátturinn

ræður ríkjum í íslenskum verslunum.

Hvamargapoka? spyr stimplarinn á kassanum í kjörbúðinni? Það er svo fleygt í þig þykkum plastpoka og stimplarinn hrærir ekki hönd né fót til að hjálpa þér að setja vörurnar í pokana með tilheyrandi töfum í afgreiðslunni.

Af hverju láta íslenskir kaupmenn vörurnar ekki í mjög þunna plastpoka á hringekju um leið og þeir stimpla vörurnar inn eins og hér er gert í USA. Allt önnur þjónusta við kúnnann, miklu hraðvirkara, oft með vinnu gamlingja til viðbótar sem þýðir aukin stimamýkt við kúnnann sem kostar hann ekkert og heildarþyngd á plastinu er miklu minni.Algengt er að þeir bjóði eldra fólki að hjálpi því með vörurnar út í bíl. Nei durtshátturinn er það eina sem íslenskir kramarar sýna þegar þeir  fleygja í mann hnausþykkum auglýsingaplastpoka frá þeim sjálfum  sem maður borgar svo stórfé fyrir til viðbótar svívirðingunni sem fylgir þessarri skylduvinnu fyrir kaupmanninn.

Svo fær kúnninn bágt fyrir til viðbótar  hjá öllum umhverfisfasistunum af því að sorpið og þessir þykku plaastpokar  er urðað á Íslandi í stað þess að brenna það og endurheimta þannig orkuna úr því eins og gert er hjá siðuðum þjóðum. Honum er kennt um sóðaskapinn sem mistæk sorpurðunin er.Almenningur er gerður ábyrgur fyrir plastpokamenguninni og landspjöllunum sem þessu fylgir og hann borgar sjálfur fyrir hjá kaupmannahyskinu.. 

Miðað við þá kurteisi sem hér er sýnd hjá Walmart og Publix í Florida þá eru Krónan, Bónus og Samkaup bara dónar og ruddar þegar þeir afgreiða sína kúnna. Allir saman bara með durtshátt í afgreiðslu sem þeir kæmust ekki upp með í USA. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

RÉTT Í USA.

TAKA ÚR INNKAUPAKERRUNNI VIÐ KASSANN - EKKERT AFGREIÐSLUBORÐ.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 31.3.2019 kl. 09:58

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Alveg nákvæmlega eins og heima er þaðhér. Bara hringekja við hliðina á kassanum sem vörurnar fara beint ofan í úr stimpluninni Gísli. Gamlingi tekur pokana svo stundum pokana af hringekjunni og lætur í kerruna og spjallar, eða syngur fyrir kúnnann og býður að fylgja honum út í bíl. Allt létt og skemmtilegt. Berum þetta saman við fýluna hjá okkar kaupmannapakki.

Halldór Jónsson, 31.3.2019 kl. 17:52

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta er táradalur þetta líf Halldór. Mikilvægt að halda svona ergelsi ekki fyrir sig og leyfa okkur hinum að njóta. :D

Jón Steinar Ragnarsson, 31.3.2019 kl. 18:15

4 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Sæll Halldór

Svo erum við hér á klakanum beðin að flokka ruslið, halda pappír sér og plasti sér. Ekkert nema gott um það að segja.

Hitt er aftur umhugsunarverðara að þetta flokkaða sorp er flutt með skipi yfir hafið til endurvinnslu erlendis, með tilheyrandi kostnaði og mengun. Hví má ekki endurvinna það hér heima?

En þarna er ekki öll sagan sögð. Það plast sem við flytjum út til endurvinnslu fer að stærstum hluta til Svíþjóðar. Þegar til endurvinnslustöðvar kemur þar, er plastið flokkað upp á nýtt. Um það bil 10% af því er endurnýtt aftur sem plast, 90% af plastinu endurnýta Svíar aftur sem eldsneyti og framleiða heitt vatn og rafmagn, í þar til gerðum háhitaofnum.

Ruglið ætlar engan endi að taka hjá okkur!

Kveðja

Gunnar Heiðarsson, 31.3.2019 kl. 19:14

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Já sannlega Gunnar heiðarsson

Halldór Jónsson, 29.4.2019 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 3418161

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband