Leita í fréttum mbl.is

Kraftaverk í Karphúsi

hefur verið unnið ef kjarasamningar eru að nást á almennum markaði.

Ég hef undirmetið þau Sólveigu Önnu, og Ragnar Þór. Ég hafði mikla trú á nafna mínum Benjamín eftir að hafa hlustað á hann á fundum og framgöngum og hann hefur staðið undir væntingum mínum og vel það.Og sama segi ég raunar um margt sem frá Vilhjálmi Birgissyni hefur komið.

Nú má bara ekki leyfa ríkisstarfsmönnum að sprengja upp almenna samninga.

Ég hef ekki trúað mikið á kraftaverk til þessa. En þau hafa gerst þarna, slíkar voru aðstæður.

Ég held að aðsteðjandi blikur á lofti hafi átt þátt í að fólk náði saman.

Vonandi tekst nú þjóðinni að bægja frá óveðursskýjunum með sínum óendanlega krafti og kjarki ef hún getur komið viti fyrir óendanlega heimsku sumra okkar óábyrgustu en háværustu stjórnmálamanna.

Virðing mín fyrir samningafólkinu er mikil og ég finn til eigin vanmáttar gagnvart því sem það hefur þarna unnið úr þeim aðstæðum sem mér hreint ekki leist á.

Ég óska þjóðinni til hamingju með þetta kraftaverk í Karphúsinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Nú þarf ríkisstjórnin að hækka skattleysismörkin og fá Seðlabankann til að lækka vexti.

Sigurður I B Guðmundsson, 2.4.2019 kl. 08:57

2 identicon

Sæll Halldór.

Ef ekki hefði verið fyrir Wow-air
þá væri staðan öll önnur.

Merkileg staðreynd að fall þessa félags
skuli koma til bjargar í vonlausri stöðu
viðsemjenda.

Bjarni Benediktsson, hefur margsinnis talað
fyrir því að sú meginbreyting þyrfti að eiga sér stað
að í stað höfrungahlaups kæmu raunverulegar
kjarabætur til handa þeim sem þyrftu á
þeim að halda.

Hæstvirtur ráðherra er í oddastöðu að láta þetta
í fyrsta sinni takast.

Er ekki eitthvað af gróðurhúsum þarna hjá ykkur
svo hægt sé að senda Mogensen þúsund liljur
í tilefni dagsins!

Húsari. (IP-tala skráð) 2.4.2019 kl. 11:18

3 identicon

Húsari. (IP-tala skráð) 2.4.2019 kl. 11:29

4 identicon

Fall Wow air hafði engin áhrif á þessa kjarasamninga ,Húsari. Leiðarahöfundur á fréttablaðinu var búinn að reikna út fyrir okkur launaliðinn samkvæmt kröfum eflingar og það gengur eftir- 700-8oo þúsund á mánuði með 100% yfirvinnu. 

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 2.4.2019 kl. 12:10

5 identicon

Sæll Halldór.

Það er deginum ljósara að megin verkefni
verkalýðshreyfingarinnar og forystumanna hennar
að samningum loknum verður að koma böndum á
þann Akkilesarhæl sem stendur henni fyrir þrifum
og veikir hana svo að hún tæpast hefur nokkurt afl
til að standa í verkföllum sem eru undirboð
og svört starfsemi.

Þetta er brýnt verkefni sem stjórnvöld og verkalýðshreyfingin
ættu að snúa bökum saman um að uppræta með öllu.

Að öðrum kosti mun hvor um sig þurfa að horfast í augu
við næsta óleysanlegan vanda.

Ókvalráðir ættu menn að vinna að þessu öllum árum.

Húsari. (IP-tala skráð) 2.4.2019 kl. 13:07

6 identicon

Tek undir hvert orð í þessum pistli þínum Halldór

og deili svo sannarlega einnig áhyggjunum með þér

að illa gæti gengið að fá vit í hina óendanlega 

heimsku ríkisstjórn.  Ábyrgðin er nú öll hennar.

Og ég efast, því miður, að henni beri gæfa til að

sjá ljósið, svo djúpt hefur hún grafið sig

í eigin kjararáðs græðgi,

sjálftöku og forherðingu gegn öllum almenningi.

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 2.4.2019 kl. 13:26

7 identicon

Sæll Halldór.

Við verðum að bera harm okkar í hljóði
að Sósíalistaflokkurinn mun ekki ná
því flugi sem að var stefnt eins og virtist.

Bjarni Benediktsson þarf ekki á stjórnmálunum
að halda en íslensk stjórnmál þurfa hins
vegar á honum að halda.

Hann hefur 18 líf en ekki 9 og svo mun fara
að enginn fær gengið gegn gæfu hans;
utan þings eða innan.
 

Húsari. (IP-tala skráð) 2.4.2019 kl. 14:49

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Húsari, munurinn á Bjarna Benediktssyni og sumum samþingmönnum hans er ómælanlegur þó ekki sé hann samt alvitur.

Halldór Jónsson, 2.4.2019 kl. 15:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 15
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 77
  • Frá upphafi: 3418309

Annað

  • Innlit í dag: 14
  • Innlit sl. viku: 73
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband