Leita í fréttum mbl.is

Sorpsvívirða Íslendinga

blasir við hverjum sem kynnir sér ástand sorpmála á landinu.

Reykjavíkurborg urðar allt sitt sorp á dýrmætu landi á hö0fuðborgarsvæðinu sem er þannig eyðilagt til frambúðar. Í Reykjavík ræður meirihluti fólks með fornaldarskoðanir í öllum tæknimálum sem viðhaldið er af flokkum sem voru keyptir til þess af valdhöfum sem höfðu tapað lýðræðislegum kosningum. Framhaldið er því kjörtímabilslöng afturför á öllum tæknisviðum þar með töldum úrbótum í sorpmálum sem og öðrum málum.

Í jólablað Sáms Fóstra árið 2017 skrifaði Júlíus Sólnes verkfræðingur og  prófessor  emeritus merka grein um stöðu sorpmála í landinu og þá tækni sem aðrar þjóðir nota í takt við nútímann.

Júlíus var þá að spá í reisingu sorporkuvers á Vestfjörðum, sem er hið besta mál í þeim landsfjórðungi. Hugsanlega hafa hugmyndir Júlíusar verið ögn af stórhuga fyrir venjulega sveitarstjórnarmenn að grípa. En meginkjarninn er þó þess virði að athuga nánar og verður hér því tilfært í heild sinni:

Júlíus segir:

 

"Sorphirða, það er að segja móttaka og förgun úrgangs frá heimilum og iðnaði, hefur reynzt sveitarfélögum á Íslandi erfitt viðfangsefni.

 Ekki er svo langt síðan, að öllu sorpi var ekið á sorphauga í nágrenni byggðar. Þar hrúgaðist það upp, og sjálfum. Enn finnast gamaldags sorphaugar, eins og sá sem þetta skrifar þekkir frá æskuárum sínum á Akureyri. Þangað fórum við unglingarnir með smárifla og reyndum að skjóta rottur, sem þar voru í miklum mæli, innan um brennandi ruslið ofan á jörðinni. Þegar umhverfisráðuneyti var stofnað á Íslandi í febrúar 1990, voru sorphirðumál landsmanna í miklum ólestri og förgun sorps langt að baki því sem gerðist í nágrannalöndum okkar og flestum vestrænum ríkjum.

Töluvert hefur áunnist í þessum efnum síðan þá. Munar þar mest um tilkomu Sorpu 1991, byggðasamlags sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu um móttöku og förgun sorps með kerfisbundnum og umhverfisvænni hætti en áður. Starfsemi Sorpu hefur orðið til þess að stórbæta sorphirðu á reynt var að brenna það sem hægt var. Af þessu stafaði mikil mengun. Bæði loftmengun vegna brunareyks og útgufunar ýmiss konar lofttegunda svo og jarðvegs- og grunnvatnsmengun frá haugunum höfuðborgarsvæðinu, orðið hvati til flokkunar sorps, endurvinnslu þess og um leið vitundarvakning um að farga beri úrgangi á umhverfisvænan hátt.

Sá ljóður er á, að valið var að urða langmestan hluta þess sorps, sem fellur til á höfuðborgarsvæðinu á Álfsnesi.

Þótt urðunarstaðurinn hafi verið gerður eftir ströngustu umhverfisstöðlum, verður að telja, að urðun sorps sé úrelt förgunaraðferð.

Forsvarsmenn Sorpu hyggjast nú leggja af urðun úrgangs með þessum hætti. Fyrirhugað er að útbúa smærri urðunarþrær, þar sem auðveldara er að safna metan og öðrum loftgösum, sem gufa upp frá þrónum og eru nýtanleg. Hægar hefur gengið hjá mörgum sveitarfélögum úti á landi.

Víða er þó búið að koma upp móttökustöðvum fyrir flokkaðan úrgang, þar sem almenningur getur losað sig við ýmiss konar rusl og aflóga hluti. Heimilissorp er hins vegar sótt til íbúa. Förgun sorps og úrgangs er engu að síður víða ábótavant.

Sofið á verðinum

 Það er því hægt að fullyrða, að Íslendingar hafi sofið á verðinum gagnvart því að meðhöndla heimilissorp og annan úrgang á umhverfisvænan hátt. Samkvæmt nýjustu tölum Umhverfisstofnunar fór heildarúrgangsmagn á landinu í fyrsta sinn yfir milljón tonn á síðasta ári (2016) og fer sífellt vaxandi.

Endurvinnsla úrgangsefna hefur bæði reynzt kostnaðarsöm og erfið. Mikill hluti úrgangs hefur því verið urðaður á nokkrum völdum stöðum víðs vegar á landinu. Sumir þessara urðunarstaða eru nú komnir á undanþágu, og hjá öðrum rennur starfsleyfi út innan fárra ára.

Evrópusambandið samþykkti nýlega tilskipun (9. júní 2016) sem gerir ráð fyrir, að 2030 megi sveitarfélög á Evrópska efnahagssvæðinu ekki urða meira en sem nemur 10% af tilfallandi heimilisúrgangi. Jafnframt er gert ráð fyrir, að um 65% úrgangs skuli endurunnir.

Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun mun þessi tilskipun brátt fá ígildi reglugerðar á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og taka því gildi á Íslandi. Sveitarfélögin fá þannig einhvern frest, ekki mjög langan, til þess að urða ekki meira en sem nemur 10% af heimilisúrgangi.

Á tíunda árartugnum voru byggðar nokkrar litlar sorpbrennslustöðvar á landsbyggðinni, en með tilkomu þeirra vonuðust menn til þess, að fundin væri hagkvæm lausn á förgun heimilissorps og annars úrgangs. 2010 voru alls sex slíkar brennslustöðvar í rekstri á landinu. Þessar stöðvar voru mjög litlar á alþjóðlegan mælikvarða og reyndust óhagkvæmar í rekstri.

Brennsluhiti var altof lágur til að koma í veg fyrir loftmengun. Voru starfsleyfi þeirra byggð á undanþágu frá viðurkenndum EES reglum um slíkar stöðvar.

Upp úr aldamótunum 2000 fór að bera á mikilli díoxínmengun frá sumum þessara stöðva. Að lokum voru þær allar sviptar starfleyfi og hefur verið lokað. Hafa sorpmál viðkomandi sveitarfélaga verið í miklum ólestri síðan og þau gripið til þess ráðs að láta aka sorpi og úrgangi langar leiðir til förgunarstöðva, oftast til urðunar.

 Aðeins ein sorpbrennslustöð er enn starfandi á Íslandi, þ.e. Kalka á Suðurnesjum. Hún verður þó að teljast frekar ófullkomin í samanburði við sorporkustöðvar nágrannalandanna, og hefur henni verið gert að uppfylla hertar kröfur um takmörkun á mengun, sem gerir reksturinn enn erfiðari. Hér gildir hagkvæmni stærðarinnar sem svo víða annar staðar.

Tillögur til úrbóta

 Mörg sveitarfélög ásamt Fjórðungssambandi Vestfjarða hafa um nokkurt skeið verið að athuga tillögur um allsherjarlausn sorphirðumála landsmanna, sem settar voru fram í skýrslu fyrr á þessu ári, unninni af Braga Má Valgeirssyni, vélstjóra og iðnfræðingi ásamt Stefáni Guðsteinssyni, skipatæknifræðingi og Júlíusi Sólnes, fyrsta umhverfisráðherra Íslands. Verkís verkfræðistofa hefur einnig komið að verkefninu.

 Í skýrslunni er gert ráð fyrir, að byggð verði fullkomin sorporkustöð við Ísafjarðardjúp, sem taki á móti allt að 100 þúsund tonnum af brennanlegum úrgangi frá öllum sveitarfélögum landsins.

Sorporkustöð

Stöðin yrði mjög tæknilega fullkomin, byggð skv. Ströngustu reglum Evrópusambandsins í líkingu við þær stöðvar, sem nýlega hafa verið teknar í notkun á Norðurlöndunum, m.a. á Amager nærri miðborg Kaupmannahafnar (sjá mynd 2).

sorporkustod Amager

 Um er að ræða háhitabrennslu (um 1200°C) með mjög fullkomnum mengunarvarnabúnaði, þannig að loftmengun er nánast engin.

Vestfjarðastöðin mun framleiða um 10 MW af raforku og 30 MW af hitaorku, eða um 312 gígavattstundir af orku á ári. Með henni yrði raforkuþörf Vestfirðinga, umfram núverandi framleiðslu í fjórðungnum, fullnægt, og nægt heitt vatn fengist til húsahitunar í öllum byggðarlögum við Djúp, ásamt til margs konar atvinnustarfsemi. Stöðin kæmi til með að veita um 15 manns atvinnu, og að auki yrði um einhver afleidd störf að ræða.

Talið er, að hún muni kosta um 10–12 milljarða króna með tengdum mannvirkjum, skip og hafnaraðstaða um 5,5–7 milljarða króna, þannig að heildarkostnaður þessa risaverkefnis gæti numið tæplega 20 milljörðum króna.

Næsta skref verður að gera nákvæmar rekstrar- og kostnaðaráætlanir.

Við brennslu á sorpi í háhitaofnum, þar sem hitastig er vel yfir 1000°C, eyðast öll lífræn efni. Úrgangur sem venjulega er ekki gott eldsneyti, eins og t.d. hræ og sláturhúsaúrgangur, verður ágætt brennsluefni við þessar aðstæður, en í honum er mikil fita og trefjar sem brenna vel. Annar brennanlegur úrgangur skilur eftir sig skaðlaus steinefni sem liggja eftir á brunaristinni og nota má sem fyllingarefni við byggingarframkvæmdir.

Einnig verður til umtalsvert magn af fínösku, sem Norðmenn hafa viljað taka á móti. Það sem fer upp með reykgasinu er leitt gegnum margs konar hreinsisíur, sem skilja frá efni eins og þungmálma og önnur eiturefni. Þess ber að geta, að ekkert „díoxín“ lifir af brennslu við hitastig sem er yfir 800°C.

Sorpflutningar

 Allt sorp og allur úrgangur fyrir utan gler og steinefni, sem nota má í uppfyllingar, yrðu flutt frá flokkunarstöðvum sveitarfélaga í gámum til næstu hafnar. Gámarnir yrðu síðan fluttir með tveimur sérútbúnum gámaskipum frá öllum aðgengilegum höfnum umhverfis landið (25–30 talsins) til áfangastaðar, brennanlegur úrgangur til sorporkustöðvar, en annað til móttökustöðva fyrir t.d. málma og endurvinnslu. Skipin gætu einnig flutt hvers konar annan varning í gámum milli hafna, meðal annars olíu og benzín ásamt frystigámum (fiskafurðir).

Skipin þurfa að vera grunnrist til að geta lagzt að bryggju á minni stöðum, þar sem aðdýpi er lítið. Þau verða útbúið með stórum krana, þannig að ekki sé þörf fyrir mikla landaðstöðu (krana) til að umskipa gámum í hverri höfn. Skipin geta því komið og farið hvenær sem er sólarhringsins og áhöfn þeirra afgreitt sig að mestu sjálf.

Stefán Guðsteinsson skipatæknifræðingur hefur unnið frumteikningar fyrir smíði sérstaks gámaskips, sem fyrir utan sorpgámana, getur einnig flutt almennan varning í gámum og olíu.

Skipin rista innan við fimm metra og eru því vel til þess fallin að sigla inn á margar minni hafnir landsins. Skipin yrðu mjög umhverfisvæn, knúin þremur aflvélum, sem geta notað lífrænt gas, t.d. metan.

Til fróðleiks má geta þess, að öll fyrirhuguð metanframleiðsla Sorpu í Álfsnesi mun rétt nægja til þess að knýja annað gámaflutningsskipið. Með skipunum mætti taka upp almenna strandflutninga á nýjan leik.

Það myndi hafa veruleg jákvæð umhverfisáhrif, þar sem t.d. losun koltvíoxíðs er talin sjö sinnum minni við að flytja eitt tonn af varningi einn kílómetra sjóleiðina en landleiðina með flutningabílum. Einnig myndi slit á þjóðvegum landsins minnka verulega, en einn stór flutningabíll er talinn valda sambærilegu sliti á vegum landsins og 9000 einkabílar.

Aðrir helstu mögulegar lausnir á förgun á þeim úrgangi, er ekki verður endurnýttur eða telst nothæfur til endurvinnslu, sem geta hentað hér á landi, þar sem fámennið gerir alla endurvinnslu mjög erfiða. Það vart raunhæft, að hægt verði að endurvinna 65% af úrgangi á Íslandi. Svo fámenn þjóð getur ekki ráðist í mikinn endurvinnsluiðnað. Í lögum um meðhöndlun úrgangs frá 2003 með áorðnum breytingum er eftirfarandi forgangsröðun um förgun hans:

Dregið skal úr myndun úrgangs (með öllum tiltækum ráðum með;

  1. Endurvinnsla
  2. lífræn vinnsla úrgangs
  3. endurnýting, m.a. með orkuvinnslu,
  4. moltugerð er alltaf möguleg eftir mjög vandaða flokkun. Það þarf að hreinsa burt alla þá hluti/ efni sem geta valdið mengun, ef þau eru óvarin gegn veðri og vindum, þannig að regnvatn geti skolað óæskilegum efnum niður í jarðveg. Moltugerð er frekar viðkvæmt ferli, og verður að vanda til verks, en rétt er að taka fram, að moltugerð getur verið æskileg aðferð samhliða öðrum lausnum.
  5. lífræn orkuvinnsla . Það að vinna lífrænt eldsneyti eins og metan úr lífrænum úrgangi, t.d. úr heimilissorpi og sláturhúsaúrgangi, hefur sýnt sig vera góð lausn, þar sem næg aðföng eru af úrgangi sem henta til vinnslunnar. Þó er bannað að nota margvíslegan lífrænan úrgang til slíkrar vinnslu. Ber þar helst að nefna alla taugavefi úr klaufdýrum, og öll sýkt dýr sem hefur verið slátrað. Hér sem fyrr er spurning um hagkvæmni. Metanvinnsla í fámennum byggðarlögum getur varla verið raunhæf.

 

Að þessum aðferðum ólöstuðum hefur fullkomin sorpbrennsla náð hvað mestri útbreiðslu í flestum ríkjum Evrópusambandsins og raunar mjög víða um heim allan.

Ástæðan er sú mikla varmaorka sem skapast í brunaferlinu og hægt er að nýta. Þá er umtalsverða raforku framleidd í slíkum stöðvum.

Nútíma sorporkuver eru hvað minnst mengandi miðað við allar aðferðir við að eyða eða farga sorpi. Og skipaflutningar á sorpgámum hafa umtalsvert minni mengun í för með sér en flutningar á þeim landleiðina. Það sem kemur upp um reykháfinn frá slíkum orkuverum eru einungis vatnsgufur og koltvíoxíð (CO2).

Þess ber að geta, að allar aðferðir við eyðingu lífrænna efna, sem innihalda koltvíoxíð, skila frá sér sama magni af því við eyðingu. Einnig er vert að nefna, að umframhitaorku í slíkum orkuverum er hægt að nýta til þess að safna saman CO2 frá útblæstrinum, koma því á fljótandi form, setja það á þrýstikúta og nota tl dæmis í gróðurhúsum.

Gera má ráð fyrir, að margir urðunarstaðir muni verða notaðir áfram einhver ár fram yfir 2030, þar sem víðast hvar er ekki farið að vinna að öðrum viðurkenndum lausnum.

Fullkominn sorporkustöð á Vestfjörðum

 Að byggja fullkomna sorporkustöð á Vestfjörðum, þar sem orkuskortur hefur verið viðvarandi og leysa sorphirðuvandamál landsmanna í leiðinni, svo að ekki sé talað um að koma strandflutningum á að nýju, hlýtur að vera áhugaverður kostur.

 Júlíus Sólnes verkfræðingur"

 

Sú leið sem prófessor Júlíus fjallar hér um er raunhæf lausn á sorpmálum hvort sem hún yrði framkvæmd á Vestfjörðum eða líka annarsstaðar eins og á höfuðborgarsvæðinu.

Þau mál þýðir varla að ræða við núverandi Borgaryfirvöld af framangreindum ástæðum. En eftir þetta kjörtímabil verða þessi mál í brennidepli óhjákvæmilega eins og Júlíus bendir á vegna alþjóðlegra skuldbindinga þó ekki væri minnst á skynsemi.

Lengra verður ekki haldið á þeirri umhverfissvívirðilegu  braut i sorpmálum sem nú er fetuð. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

"SORPA er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Seltjarnarness, Mosfellsbæjar og Garðabæjar." cool

"Í stjórn SORPU sitja:

Birkir Jón Jónsson fyrir Kópavog - formaður,
Líf Magneudóttir fyrir Reykjavík - varaformaður,
Ágúst Bjarni Garðarsson fyrir Hafnarfjörð,
Jóna Sæmundsdóttir fyrir Garðabæ,
Kolbrún G. Þorsteinsdóttir fyrir Mosfellsbæ,
Bjarni Torfi Álfþórsson fyrir Seltjarnarnes." cool

Þorsteinn Briem, 23.5.2019 kl. 22:24

2 identicon

"ELDUR OG VÍSINDI" VINNA VEL SAMAN.

"ELDUR og EYÐING" einu sinni á ári í RÉTTRI VINDÁTT?.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 24.5.2019 kl. 17:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband