Leita í fréttum mbl.is

Trúboð Björns Bjarnasonar

hljómar linnulítið á heimasíðu hans.

Björn trúir á EES samninginn og hugsanlega er hann hallur undir Evrópuhugsjónina í ESB þó ekki sé kannski upphátt.

Hann skrifar enn eina vakningagrein um ágæti EES sem hann færir þó fá rök fyrir.Mun meira í anda trúarjátningarinnar sem farið er með í kirkjum landsins sem er einhvern veginn þann vega að maður trúi á heilaga almenna kirkju,fyrirgefningu syndanna, upprisu holdsins og eilíft líf eða einhvernvegin þannig sem þetta nú er.

EES er gott og betra en allt. Allar frelsis-og fullveldisskerðingar skulum við þola fyrir trú mína sem skal verða ykkar þó þið verðið 107 ára finnst mér boðskapur Björns vera í stórum dráttum.

Björn segir:

"Undir þetta mat Ara Trausta skal tekið.

Gagnrýnendur þriðja orkupakkans hafa ekki fært nein rök fyrir fullyrðingum sínum um að í honum felist valdaframsal.

Af tilvitnuðu orðunum í elsta Íslendinginn má draga þá ályktun að skoðun hennar á þriðja orkupakkanum ráðist af lestri Morgunblaðsins enda er það eini prentmiðillinn sem leggst gegn þriðja orkupakkanum fyrir utan Bændablaðið."

NeiHafa EES dýrkendur fært nokkur önnur rök fyrir ágæti orkupakka 3 annað en EES trúarsetningar?

Við höfum enn ekki fengið fullt tollfrelsi fyrir sjávarafurðir eftir aldarfjórðungs veru í EES. Hver segir að við getum ekki verslað við heiminn sem er margfalt fjölmennari en þetta upplausnarkennda ESB sem nú blasir við eftir útgöngu Bretlands. Bara Bandaríkin eru jafnstór og ESB sem við ástudu mismunun í tollum gegn.

Þurfum við ekki að semja sérstaklega  við Breta um fríverslun eða ætla íslenskir ráðamenn að fela ESB þá samninga?

Vafalaust höfum við notið einhvers ávinnings af EES samstarfinu þó jafnvel þó að slíkt sé gjarnan á afmörkuðum sviðum. Enginn segir annað en að ESB geti líka haft hagsmuni af að halda því sem við höfum án þess að kasta öllu öðru fyrir róða í hefndarskyni fyrir að vera annarrar skoðunar eins og Bretar voru í Brexit. 

En hver segir að EES sé eina leiðin að almennu verslunarfrelsi og kostum þess að standa utan tollabandalags gegn Bandaríkjunum og afganginum  af heiminum  eins og ESB er?

Við höfum stórskaðast á mörgum sviðum af EES tilskipunum og stefnir i verra með boðuðum innflutningi búfjársjúkdóma og sýklaónæmis.

Við þurfum að hefja baráttu gegn EES og ágangi ESB í okkar þjóðlífi. Við þurfum ekkert á þessu að halda.

Trúboð eins og síbylja Björns Bjarnasonar er um ágæti EES dugar ekki lengur í nútímanum og er einfaldlega komin fram yfir síðasta söludag.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hafðu mikla þökk fyrir þennan pistil Halldór.

Já, það má nú öllum vera orðið ljóst að Engeyingar hafa lengi róið að því öllum árum að skerða sjálfstæði lands og þjóðar með innleiðingu endalausra pakka ESB í íslensk lög, sótt sér erlent vald til eigin hagsbóta og það svo mjög að minnir helst á Sturlungaöld, enda þótt meiri fláttskap hafi Engeyingar stundað (talað tungum tveimur og sitt hvað með hvorri) en Sturlungar þeir sem seldu sig erlendu valdi á hönd 1262 og við tók nær 600 ára ánauð og ófrelsi íslenskrar þjóðar.  

Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 6.7.2019 kl. 14:13

2 identicon

Þetta er alveg rétt hjá þér. Eins og þú hefur kannske lesið í nýjustu grein minni í Morgunblaðinu á fimmtudaginn, þá tel ég, að það sé ekkert vit í öðru en að Ísland losi sig úr þessu EESrugli. Þessi samningur hefur breyst það mikið og Brüsselvaldið að teygja sig það langt, að það er ekkert vit fyrir okkur að halda fast í EES, þegar svo er komið málum. Það er eðlilegt, að bæði Jón Baldvin, Davíð og aðrir, sem fannst þessi samningur í lagi fyrir Íslendinga í upphafi, séu nú orðnir andstæðingar hans, þegar þeir sjá, hvert hann stefnir. Varðandi Björn Bjarnason, þá skil ég nú ekkert orðið í honum eða málflutningi hans, og veit ekkert á hvaða leið hann er með þessu. Það segi ég satt. Ég botna ekkert í honum frekar en ríkisstjórninni, eða hvað hún er að hugsa, ef hún ætlar að fara að lemja þetta í gegnum þingið andstætt vilja stærsta hluta þjóðarinnar. Það gengur alls ekki. Það segir sig sjálft. Það má líka spyrja, hvar andstaða þessa fólks er, ég tala nú ekki um VG, sem er fyrrum flokksmenn í Alþýðublandalaginu að stórum hluta, sem alltaf var á móti ESB og EES og sá fjandann í öllum hornum, þar sem sá félagsskapur var annars vegar, og Steingrímur var harður andstæðingur ESB og EES. Hann virðist aldeilis hafa skipt um skoðun, ef hann vill nú endilega þvinga orkupakkana með öllu því valdaafsali, sem í þeim felst upp á landann, maðurinn, sem ásamt Ólafi Ragnari, og öðrum Allaböllum barðist hatrammlega á móti öllu, sem frá Brüssel kom, og vildi ekkert með það hafa, enda ætti það ekki heima á Íslandi. Þetta er alveg makalaust hreint og óskiljanlegt. Ég get ekki sagt annað.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 6.7.2019 kl. 14:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 72
  • Frá upphafi: 3418433

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 67
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband