Leita í fréttum mbl.is

Bjarni Már Magnússon

prófessor í lögum veltir upp athyglisverðum punktum í sæstrengsmálin í Fréttablaðinu í dag:

Hann segir í niðurlagi:

"Af túlkunarreglum þjóðaréttar leiðir að skýra verður ákvæði EESsamningsins um frjálst flæði vöru til samræmis við ákvæði hafréttarsamningsins. Það þýðir að meginreglan um frjálst flæði vöru leiðir ekki til þess að á íslenska ríkinu hvíli skylda til að heimila lagningu sæstrengs sem flytur rafmagn hingað til lands.

Íslenska ríkið getur því ekki orðið skaðabótaskylt af því að synja rétti sem er ekki til staðar. Það er útilokað. Að halda öðru fram er nýlunda í sögu alþjóðasamskipta. Réttur Íslands til að heimila eða hafna lagningu sæstrengs inn fyrir landhelgina stend ur óhagg aður hvað sem þriðja orkupakkanum eða öðrum ákvæðum EES-samningsins líður."

Spurningin er hvort við viljum tengjast Evrópu raforkulega eða ekki? 

Ef við viljum það, ættum við þá ekki að athuga að reisa Thoríum-kjarnorkuver hérlendis í stað þess að drekkja okkar fagra landi stöðugt en hafa ekki einhverja stöðuga kjarnorkufóbíu sem aðrar þjóðir hafa ekki í orkumálum? Erum við ekki að selja upprunaábyrgðir raforku sem telja fram kjarnorkuframleiðslu hvort sem er?

Bjarni bendir á hafréttarleg sjónarmið sem ekki hafa verið mikið í umræðunni um 3. orkupakkann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Orkupakkinn er ESB-lög (yfirríkisleg) en ekki íslensk lög. Om igen.

Ætlar hann þá að segja að íslensk yfirvöld sem hafa samþykkt orkupakkann sem tók gasleiðslu Pútíns úr höndum Þjóðverja og flutti valdið yfir henni yfir á hendur ESB, og sem geta ekki einu sinni stöðvað flæði ESB-fólks inn í landið okkar, geti þá stöðvað erlend skip og flugvélar sem flytja vörur á vegum einkaaðila frá ESB til landsins eða öfugt?

Ef einhver pantar sæstreng til að flytja vöruna rafmagn um, og sem ekki er hægt að flytja örðuvísu, ætlar hann þá að segja að íslenska ríkið geti bannað það með vísan í haffréttarlög? 

Maðurinn getur varla verið í lagi. Þessir útúrsnúningar orkupakkaliðsins hafa náð nýjum lýðskrumshæðum. Þetta er orðið að Icesave sirkusnum aftur. Endalausir hrygglausir amen-sérfræðingar sem þykjast vita en vita ekki. Síðast voru þeir næstum allir fífl og hálfgerðir landráðamenn! 

Þess utan er sæstrengurinn ekki aðalmálið við okurpakka3. Hann er bara reykbomba. Þetta er fyrst og fremst einkavæðingarpakki sem tekur innviði Íslands til nýtingar á náttúruauðlindum þjóðarinnar úr höndum þjóðarinnar og færir þá yfir á hendur oligarka til að braska með, innlenda sem erlenda. Við missum fullveldið í orkumálum. Þau mál eru komin yfir til ESB. Við verðum boruð út innanfrá. Tæmd eins og bankarnir voru tæmdir.

Hvað er annars þetta erlenda ESB-pakk að reyna að troða sér með sín ömurlegu lög á öllum sviðum hér inn á okkur! Þessi fjandans EES-samningur var gerður til að við gætum selt fisk án tolla til ESB. Tollarnir eru ennþá!, en við sitjum uppi með ESB-landráð alla daga ársins. Það er verið að sjúga landið og lýðveldið okkar af höndum þjóðarinnar. Við ráðum sífellt minna og minna í okkar eigin landi. Til helvítis með þetta pakk allt saman. Út með það!!!!!

Gunnar Rögnvaldsson, 31.7.2019 kl. 13:16

2 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Þegar Þóríum orkuverin verða gjaldgeng mun allur orkufrekur iðnaður flytja úr landi. Verksmiðjurnar verða við námurnar og orkuverin við veggi þeirra.  Hvað eigum við þá að gera við hreinu raforkuna okkar????  

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 31.7.2019 kl. 13:27

3 identicon

Eitt sem ég var að hugsa um í þessu. Það er styst fyrir okkur að leggja sæstreng til UK og þeir eru á leið út úr ESB

Svo ef Íslendinga samþykkja ekki O3 þá gætum við selt rafmagn gegnum sæstreng til UK algjörlega á okkar eign forsendum án afskipta frá skrifstofubólkunum í Brussel

Grímur (IP-tala skráð) 31.7.2019 kl. 19:21

4 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Og hver verður niðurstaðan ef tekið verður til við að selja orku til Bretlands? Hún verður vitanlega seld á markaðsverði og svo lengi sem verðið á Bretlandi verður hærra en verðið hér, þá selja orkufyrirtækin orkuna á því verði, þangað jafnt og hingað.

En það er vitanlega allt í lagi fyrst það er ekki ESB sealed

Þorsteinn Siglaugsson, 31.7.2019 kl. 20:33

5 identicon

Ég er því miður hræddur um að Thorium kjarnorkuver séu ekki á næsta leiti. Þar munu ýmis tæknileg vandamál enn vera óleyst.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 31.7.2019 kl. 20:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband