Leita í fréttum mbl.is

Rússagasið

er greinilega ávanabindandi fyrir Þjóðverja.

Vindmyllubyggingar eru hættar að aukast þar í landi, aðeins 287 MW bættust við á fyrsta helmingi ársins 2019.

Hvað þýðir þetta fyrir hamfarahlýnunina hjá henni  Merkel Þýzkalandskeisara og aukins CO2 útblásturs í Þýzkalandi?

Hverju lofaði hún henni Katrínu og hvað þýddi allt þetta  ballyhó sem nýlokið er hér í Viðey og á Þingvöllum?  

Hvernig rímar þessi aukni útblástur Þýzkalands við lokun kjarnorkuveranna 2022 eins og Merkel lofaði? Hugsanlega verða Frakkar búnir að byggja næg kjarnorkuver við landamærin til að ekki verði straumlaust í Ruhr?

2022 verður Merkel farin frá og ekki munu allir sakna hennar fyrir þær ráðstafanir í innflytjendamálum sem eftir hana liggja. En við Íslendingarnir sitjum uppi með grænu kolefnisskattana hennar Katrínar Jakobs eftir sem áður. 

 

En okkar nauðsynlega útblástursaukning er tryggð með auknu flugi bæði okkar og hersins sem og sífellt fleiri ráðstefnum sem embættismenn okkar þurfa að sækja erlendis vegna skorts á einangrunarhyggju.

Þó að við höfum  ekkert Rússagas þá höfum við næga olíu og bensín L.s G..  Og þar sem svo lítið af vatnsvirkjunum er í nýtingarflokki og engar vindmyllur byggjum við af því að henni Lovísu í sumarbústaðnum finnst þær svo ljótar og hávaðasamar á kyrrum kvöldum, þá brennum við bara meira af jarðefnaeldsneyti en nokkru sinni fyrr. Og 60.000 tonna kolainnflutningur Steingríms Jóhanns fyrir norðan er í góðum gír og getur bara aukist.

Skyldi jarðefnaeldsneytið, Rússagasið, flugið og einkabíllinn ekki ekki vera meira ávanabindandi en margir vinstrimenn og  umhverfissinnar halda?  

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rússagasið treystir "vináttuna" í Evrópu.

Pútín og TRUMP er vel til vina.

Ef Rússarnir klikka og loka á rennslið vegna skiptra skoðana við Evrópu þá bjargar USA enn og aftur því þeir eiga nóg gas og olíu til útflutnings og geta ráðið olíuverðum í heiminum.

Vonandi hætta Katrín og Bjarni öllum afskiptum af hækkandi sköttum og kolefnanuddi og vegasköttum á fámenni ÍSLENDINGA. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 23.8.2019 kl. 12:37

2 identicon

Nú brenna eldar í Brazelíu og viðbrögðin?

ESB og þeirra forkólfar - viðskiptabann og útskúfun úr heimi heilagra rétttrúnaðarsinna

Trump - hvað getur USA gert til að hjálpa í baráttuna við eldana

Grímur (IP-tala skráð) 24.8.2019 kl. 10:52

3 Smámynd: Bjarni Jónsson

Ruhr er nú vart, nema svipur hjá sjón.  Ef Bandamenn hefðu einbeitt sér að því að gera Ruhr-héraðið straumlaust, hefðu þeir getað stytt seinna stríðið umtalsvert.

Þar sem Þjóðverjar borga nú einna hæst verð, leitar raforkan þangað eftir samtengdu kerfi Evrópusambandsins.  Er hugsanlegt, að þær stöllur hafi rætt um að senda íslenzkt vatnsafl inn á Innri markaðinn ?  Það kæmi sér vel, þegar hægir á afköstum vindmyllna á álagstíma. 

Bjarni Jónsson, 24.8.2019 kl. 10:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 69
  • Frá upphafi: 3418331

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 65
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband