Leita í fréttum mbl.is

Kommarnir kveina á pening

frá ríkinu eins og alltaf.

Þórður Snær fer hamförum á Kjarnanum um ríkispening til að skrifa sínar skoðanir. Sem margir gefa nú ekki mikið fyrir.

Öll þessi áköll og jarm um ríkisstyrki eiga upptök sín hjá RÚV. Fólkið í landinu vill auglýsa hjá RÚV þar sem það apparat hefur útbreiðslu sem það nær sér í með ríkisstyrk.

Ef RÚV er skorið niður að einhverju leyti í auglýsingastríðinu þá er búið að jafna aðstöðuna og það þarf ekkert að vera að borga kommum og kveinstafafólki sem langar til að útbreiða sínar skoðanir sérstaklega til þess.

Þeir verða bara að ná sér í auglýsingar til að borga kostnaðinn. Sem er hörku djobb get ég sagt ykkur. 

Ég hef dundað við það að gefa út blöð í samkeppni. Bæði lengi  á vegum Sjálfstæðisflokksins, VOGA í Kópavogi,  og svo sem útgáfu- og ritræpufíkill sem ég er alveg eins og eins og Þórður Snær þó minna duglegur sé. Mér til skemmtunar nú síðast 1-2 tölublöð á ári af Sámi fóstra og dreift um mestalla landsbyggðina.

Þetta hefst ekki nema með blóði svita og tárum get ég sagt ykkur. Og maður er heppinn ef maður getur látið endana mætast án fastra starfskrafta,styrkja eða hluthafa, sem enginn grundvöllur er til að ráða,  heldur bara með tilfallandi verktökum og vinum sem er ekki auðvelt að ná vegna þess hversu erfitt verkið er.

Aldrei hefur mér dottið í hug að ríkið ætti að borga mér fyrir þetta brölt.

Hobbýblaðið mitt,Sámur fóstri, hefur samt komið út í eitthvað hálfri milljón eintaka sem fólk hefur tekið fagnandi.Blaðið skuldar samt hvergi neitt eins og sumir aðrir.

Þetta er allt í  samkeppni við RÚV, Fréttablaðið, Moggann,  alveg eins og kommarnir á Kjarnanum segjast vera í.

Blaðið mitt kemur einfaldlega ekki út nema við séum búnir að tryggja að geta borgað allan kostnaðinn með auglýsingum. Svo einfalt er það.

Við stofnum ekki fyrst til skulda og grenjum svo á ríkið að borga okkur kaup.

Útvarp Saga berst nákvæmlega svona baráttu. Það sækir sinn styrk til almennings sem styrkir og auglýsir. Það er fólkið sem ræður því hvort það vill styrkja stöðina.

En SÖGU finnst mér oftar meira gaman að hlusta á en Gufuna sem ég borga hvort sem ég vil eða ekki. Og Hringbraut hjá þeim Sigmundi Erni og Lindu Blöndal er hreint frábær stöð.  Það væri skömm ef þessar góðu stöðvar létu menntamálaráðherra múta sér af því bara að RÚV fái of mikið.

Það þarf bara að hreinsa kommeríið út af fréttastofu RÚV til að sætta landsmenn við þetta apparat, sem trúlega landsmönnum finnst samt að verði að vera þarna með nefskatti. RÚV heldur líka úti frábærri starfsemi með klassísku efni alla daga sem léttir mörgum manni og einmana lífið og rifjar upp gamla og góða daga. Fyrir það er ég þakklátur RÚV og kommunum þar.

Ef ekki væri þessi pólitíski ófriður sífellt um fréttastofuna, þá truflar RÚV ekki mig í minni útgáfu. Og fráleitt finnst mér að ég eigi að fara borga kommunum á Kjarnanum fyrir að skrifa það sem þeim dettur í hug sem ég nenni nú ekki mikið að lesa þar sem þeir höfða ekki til mín sem Trumpista.

Allt í lagi að minnka aðstöðumuninn eitthvað. En ekki kveina um ríkisstyrki handa útgáfufíklum og blekbullurum eins og algengt er að byltingarmenn séu frá Robespierre og Marat til mín og  Þórðar Snæs og Péturs og Arnþrúðar. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

 

Haf þú þökk kæri Halldór fyrir að vekja máls á þessu jarmi um skattfé til þeirra sem vilja koma skoðunum sínum á framfæri, og  fræða okkur um leið um það hvernig reka skal fjölmiðla eins og þú hefur langa reynslu af. Menn verða að bretta upp ermarnar og vinna í sveita síns andlits til að halda rekstri sínum á floti. 

Ekkert er ókeypis sagði Nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði, prófessor dr. Milton Friedman. Hann hafði lög að mæla í umræðuþættinum á RUV 1984 þegar hann rassskellti kommana svo eftirminnilega eftir að ORG skammðist og grét yfir því að Friedmanfyrirlesturinn væri ekki ókeypis, heldur væru rukkaðar kr. 1.200,- í aðgangseyri í stað hefðar um ókeypis fyrirlestra á Íslandi. Fridman upplýsti þá Birgir Björn Sigurjónsson, Stefán Ólafsson, Ólaf Ragnar Grímsson og Boga Ágústsson um eftirfarandi:

"..I think that the word free, is one of the most misused word. We speak of free education, education isn´t free, it costs money. You  [ORG] spoke of free lectures, but those lectures weren't free, the lectures halls had to be provided, the facilities had to be provided. I am sure that you have paid fees to some of the speakers. What you mean to say  is that the people who attended the lectures were subsidized by the people who did not attend the lectures, and I do not believe that is in my concept what a free society should be. So I think that the charging of fee for a lecture, in order to limit the number to the size of the room, in order to make it available to those who value it most highly, is a perfectly appropriate application of the price system."

Ég held að þetta fyrirkomulag forréttinda RUV muni aldrei lagast með einhverjum þvingunum á einn eða annan fjölmiðil umfram hinn. Ég tel að ójöfnuð þennan verði að jafna með því að afnema skylduáskrift skattborgaranna að RÚV og banna þar að auki að það fái að krefja ríkissjóð um að lagfæra yfirdrátt sinn hjá lánastofnunum til viðbótar skylduáskriftinni sinni af skattfé eins og það hefur að jafnaði fengið um að bil árlega um áratuga skeið.

Eftir að skylduáskriftin yrði afnumin þá yrði RÚV að standa sig á markaði á sömu forsendum og aðrir fjölmiðlar og afla sér tekna á sömu forsendum og aðrir, í sveita síns andlits. Þeir sem lengst vilja ganga í jöfnuði telja sömuleiðis að verðmæti RÚV yrði metið, það er að allar eigur RÚV efnislegar sem óefnislegar, yrðu metnar af óháðum matsmönnum og í framhaldi þess yrði RÚV ohf. að undirrita skuldabréf til einhverra ára eða áratuga sem eðlilegt mætti telja á markaði og með markaðsvöxtum og þannig greiddi RÚV ohf. fyrir eigurnar sem það hefur í fórum sínum til skattgreiðenda þau verðmæti sem það hefur í forskot umfram aðra fjölmiðla. En skattgreiðendur hafa frá stofnun RUV lagt stofnuninni til allar eigur þess og stærstan hluta rekstrarkostnaðar þess um alla tíð. Því er eðlilegt að RUV ohf. greiði skattgreiðendumað lágmarki raunvirði stofnunarinnar þessa dagana með hurðum og gluggum og við afskrifum um leið þann gífurlega kostnað sem við fáum aldrei endurgreiddan eftir áratugsa bruðlið umfram núvirðið.

 

Hér er hægt að sjá allt viðtalið við Friedman:
.

https://youtu.be/StLBxt7Gfck

 

.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 26.8.2019 kl. 10:47

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Starfsmenn RÚV myndu aldrei vinna kauplaust til að bjarga rekstrium eins og við Þórðu Snær verðum að gera eða fara á hausinn.

Halldór Jónsson, 26.8.2019 kl. 14:27

3 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sammála þér um það kæri Halldór. Þeir mmunu ekki vinna kauplaust þessir kónar. En líkur eru á að rekstur RUV ohf. yrði skorinn niður og bruðli hætt yrði notendaskatturinn aflagður. RUV ætti ágæta möguleika á að lifa með því móti enda með samninga um auglýsingar og kostun í handraðanum og möguleika á að bæta gæði útsends efnis sem aftur myndi laða auglýsendur að vegna áhorfs.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 26.8.2019 kl. 15:14

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

  Hvernig nálgast skipstjóri að sunnan, Sám Frænda? 

Halldór Egill Guðnason, 27.8.2019 kl. 00:03

5 Smámynd: Halldór Jónsson

Kveðjur suður

www.samurfostri.is

Ertu á sjó nafni þarna fyrir sunnan? Hvernig eru aflabrögð og á hvaða svæði ertu? Hvaða skipi og hvaða útgerð?

Halldór Jónsson, 27.8.2019 kl. 06:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband