Leita í fréttum mbl.is

THULE-herstöðin

var byggð á 104 dögum sumarið 1951.

Heimildarmynd um það þegar Bandaríkjamenn byggðu Thule-flugstöðina á Grænlandi á sama tíma og þeir börðust í Kóreu og hersátu mikið af heiminum, þá  byggðu þeir líka talsvert í Keflavík meðal annars og reistu flugvelli í Þýzkalandi og hernaðarmannvirki víðar um heim, framleiddu flugvélar og skip í þvílíkum mæli að Sovétríkin urðu gjaldþrota í kapphlaupinu.

Þessi mynd  skildi  mig eiginlega eftir dolfallinn  yfir öllu þeim risafyrirtækjum sem þessi þjóð getur framkvæmt.

Þarna yfir Thule týndi flugmaður Alfred Joe D´Mario sem ég hitti í Florida  4 stykkjum af H-bombum eftir að kviknaði í B52 vél hans 21. janúar 1968. Ég var að spyrja hann hvort hann hefði komið til Íslands?. Hann kvað svo ekki vera en hann hefði komið óvart til Grænlands einu sinni. Þá kom hann sem sagt niður í fallhíf beint niður á Thule flugvöll. Bað Danina lengstra orða að fara ekki nær flakinu en 10 mílur þegar þeir buðu aðstoð.

Ég keypti af honum bók, Hangar Flying, sem hann hafði skrifað bara skemmtilega en karlinn hafði flogið allt Kóreustríðið og svo lengi  með vetnissprengjur á B52 við landamæri Rússlands.

Ég held að sprengjurnar hafi allar fundist nema hluti úr einni sem er þarna enn. Þar liggja því enn  þrávirk efni með mjög langan helmingunartíma.En þetta er óhugnaleg saga sem er því miður sönn. Það mátti líklega ekki mikið út af bera í þessu veseni öllu.

 

En þessi mynd sýnir vel hvað þetta stórveldi getur? Eiginlega skiljanlegt að Trump vilji fá að ráða þessu landi sem liggur svona nálægt Rússlandi.  Byggingatæknin, vélakosturinn, mannskapurinn skilur mann eftir gersamlega orðlausan.

https://www.youtube.com/watch?v=mulqqV2oOoc

Það var fróðlegt að horfa á þessa mynd fyrir mann lítilla sæva með lítið geð.

Það gat aldrei verið spurning um það hver myndi vinna kaldastríðið. Rússar höfðu ekki neitt á móti þessu ofurefli nema kúgun fólks og harðræði þess þar sem þeir fengu að komast upp með grimmdarverkin óáreittir.

Þó skorti ekki þá á Íslandi sem lofsungu harðstjórnina og afsökuðu fantaskapinn því að Eyjólfur myndi einhvern tímann hressast.Nóbelsskáldið okkar kyrjaði fagnaðarsöngva gegn betri vitund allan Sovéttímann og svo var um fleiri frammámenn í andanum.

En Thule herstöðin BLUEJ er byggingarafrek fyrir sig hvað sem annað verður sagt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Halldór þetta Utube er alveg meiriháttar ekki ósvipað og þegar kanarnir byggðum Alaska olíuleiðsluna en þar voru yfir 30 þ manns á 13 stöðvum deyft yfir 830 mílur frá Baufort til Valdez en þeir notuðu líka svona tæki í fyrstu og svo komu nýrri kötur eins og Cat D9 og engin hús yfir þótt mínus 40°C Klárað haustið 1977. Duglegir kanarnir Já allir á einu máli að klára projectið. Kv Valdimar.Er enn á svarta listanum hjá Árna. :-) 

Valdimar Samúelsson, 10.9.2019 kl. 17:52

2 identicon

Ég las e-h staðar að Bandaríki Norður Ameríku væru mesta herveldi mannkynsögunnar. Ég hafði svo sem ekki hugsað út í það en einn benti á: að slíkt hernaðarveldi hefði verið hér með herstöð á Miðnesheiði í nær hálfa öld, eiginlega án þess að ekkert færi fyrir þeim. Það væri í raun ótrúlegt.  Ef annað stórveldi, hvort heldur Rómarveldi, Sovétríkin eða e-h eða eitthvað annað stórveldi hefði verið hér, í samtíma eða öðrum tíma, hefði líklega ekki verið um jafn kurteisa veru að ræða.
Líklega er það rétt.

Stefan Th Stefansson (IP-tala skráð) 11.9.2019 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband