Leita í fréttum mbl.is

EES

telja margir að sé smogið í merg og bein á Birni Bjarnasyni.

Þrátt fyrir tilraunir hans og nefndarinnar sem gerðu skýrsluna um EES samninginn finnst mörgum að hún sé ekki hlutlaus heldur málflutningur fyrir ágæti samningsins.

Páll Vilhjálmsson greinir þetta þannig:

 

"Ísland var hjálenda erlendra konunga, norskra og danskra, frá Gamla sáttmála á 13. öld og fram á 20. öld. Á þeim tíma urðu Íslendingar ópólitísk þjóð, sinnulaus um landsstjórnina enda valdið í útlöndum.

Skýrsla Björns Bjarnasonar um EES-samstarfið boðar að Íslendingum sé farsælast að líta á sig sem hjálendu Evrópusambandsins þar sem EES-samningurinn kemur í stað Gamla sáttmála.

Í tillögum til úrbóta í Björnsskýrslunni segir: 

Viðurkenna ber í verki að EES-aðildin mótar allt þjóðlífið en ekki skilgreina hana sem erlenda ásælni.

Við eigum að viðurkenna útlenda valdið yfir okkur og sætta okkur við fyrirmæli þaðan, t.d. um að náttúruauðlindir okkar skuli lúta Brusselvaldinu, er efnislegi boðskapurinn. Rökin eru þau að Íslendingar geti ekki staðið á eigin fótum.

Björn leggur til að sérstakt EES-ráðuneyti verði stofnað á Íslandi, nokkurs konar yfirráðuneyti, er skammti lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum svigrúm til að ráðstafa málum þannig að yfirvaldið í Brussel sé sátt.

Skýrsla Björns Bjarnasonar dregur skýra víglínu milli tveggja meginskoðana í stjórnmálum. Í einn stað eru þeir sem telja þjóðina ekki kunna fótum sínum forráð og þurfa ,,handleiðslu" frá Brussel. Í annan stað þeir sem treysta Íslendingum til að reka burðugt fullvalda þjóðríki á eigin forsendum.

Samviskuspurningin sem hver og einn þarf að svara er þessi: hvort vil ég líta á Ísland sem hjálendu eða fullvalda þjóðríki?"

Síðasta málsgreinin er eiginlega það sem máli skiptir. Báðir Samfylkingarflokkarnir á Alþingi vilja að fullveldið sé framselt til Brussel. Stefnulausu litlu ljótu flokkarnir dingla þarna með og veita jafnan þeim sem betur mega sín eins og sagt var um frændur okkar Dani á sínum tíma.

Sjálfstæðisflokkurinn var sagður vera andsnúinn ESB aðild. Margir draga nú orðið tryggð flokksins  við þá hugsjón í efa eftir 3. orkupakkann.

Einhliða lofgerð við fyrirfram gefna niðurstöðu er fullveldissinnum ekki nægileg leiðsögn um kosti og galla EES samningsins.

                
 
 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Leiðinlegast við pólitíska umræðu í landinu er þegar menn rangtúlka og/eða snúa út úr því sem sagt er, svara eigin bulli og láta eins og verið sé að svara viðmælandanum/andstæðingnum.

Aðalsteinn Geirsson (IP-tala skráð) 6.10.2019 kl. 15:25

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Viljum við vera óvirkir þiggjendur að öllu sem kemur frá Brussel hvort sem það hentar okkur eða ekki, eða virkir þáttakendur í að móta þær reglur sem þar eru settar á þann veg að þær henti okkur betur en ella?

Besta leiðin til að tryggja hagsmuni Íslands í fjölþjóða samstarfi er að stunda virka hagsmunagæslu á þeim vettvangi þar sem veigamiklar ákvarðanir eru teknar. Þannig nýtum við fullveldi okkar best, hvort sem það er á vettvangi EES, Sameinuðu þjóðanna eða öðru slíku samstarfi.

Að sitja bara heima og taka við skeytasendingum eftir að aðrir hafa tekið ákvarðanir sem við þurfum að fara eftir, má líkja við að hafa kosningarétt en nota hann ekki. Sá sem nýtir ekki rétt sinn til áhrifa er ekki í neinni stöðu til að kvarta yfir þeim ákvörðunum sem aðrir taka í fjarveru hans.

Guðmundur Ásgeirsson, 6.10.2019 kl. 16:14

3 identicon

PÁLL VILHJÁLMSSON Stórskrifari Fullveldis og Sjálfstæði á ÍSLANDI. ÍSLANDS söguna þarf að segja að nýju um Sæferðir, Víkinga, Ritstörf, Landafundi og EKKI síst Kristna siði.

EES - Björns hefur skipt máli fyrir ÍSLAND, en EKKI lengur. Loftslagssinnar og vinstrafólk í ríkisstjórn dröslast með hóp XB og XD sinna til "ESB í BRUSSEL" því, sem FÁMENNI okkar mótmæla. N A T O og samvinna við USA og BREXIT eru stórmál ÍSLENDINGA fyrir stærri markað, sem kostar ekkert. 

SÖGUeyjan,ÍSLAND, ÓMENGUÐ hér norður í höfum og afurðir BÆNDA og SJÁVARÚTVEGS bera af með framleiðslu GRÓÐURHÚSA. FRÓÐLEGT væri að sjá FLUGIÐ taka við hluta sölunnar frá ÍSLANDI, með Flugvélarnar í Norðurljósa litum. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 6.10.2019 kl. 17:49

4 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það skiptir máli ef við kysum um það núna hvort við vildum vera hjálenda eða fullvalda ríki,en hvenær erum við spurð? Menn vitna í hvers annars orð og óskir fyrir tugum ára,eins Björn segir Ólaf ísleifs hafa gert í hruninu,vila óska eftir myntbandalagi Íslands og Esb.- hann ofl.hafa kynnst á hvaða vegferð þetta blessaða Esb er á og orðið því afhuga og gert grein fyrir því. Bjarni Benedikts lætur sakleysingja kjósa sig og hefur rækilega haldið í sér, hvern á að gruna að hann sé kominn í spreng; talandi um að það lægi ekkert á að afgreiða Op3. Íslendingar hafa metnað og getu til stýra landi sínu sjálfir.

Helga Kristjánsdóttir, 6.10.2019 kl. 20:01

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

var athuga semda mín of gróf? Mér fannst ég normal!

Helga Kristjánsdóttir, 7.10.2019 kl. 01:52

6 identicon

Ég vel ÍSLAND og sameiginleg auðæfi ÍSLENDINGA, ORKUNA OFAN   og NEÐANJARÐAR, VIRKJANIR, VATNIÐ og BLÁVATNIÐ, FOSSA og FLÚÐIR frá fjöru til fjalla. Við eigum ÓMENGAÐ "HEILAGT" Land, og erum ENNÞÁ ÖRUGG?.

Fjölgum okkur sjálf og STJÓRNUM OKKUR SJÁLF án stuðnings við getulausa Evrópu, sem ekki ráða við eigin mál.

Ég spái OFURFLOKKI við næstu kosningar, sem sýnir réttlæti og Þjóðerniskennd.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 7.10.2019 kl. 13:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 71
  • Frá upphafi: 3418445

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 68
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband