Leita í fréttum mbl.is

Hælisleitendadekrið

fjallar hann Trausti Sigurðsson um í Mogga:

Hann segir:

"Ein er sú stofn­un í land­inu sem ég vildi ekki vinna hjá, það er Útlend­inga­stofn­un. Sama hvað hún ger­ir og allt lög­lega þurfa ein­hverj­ir að finna að því. Síðasta sem var blásið upp í öll­um fjöl­miðlum var þegar ófrísk kona var send til síns heima í Alban­íu. Hafi það verið áhætta að senda hana ófríska í flug þangað, hvað má þá segja um þann sem kom með hana ólétta til Íslands í al­gera óvissu, nema e.t.v. þá vissu að Íslend­ing­ar viður­kenna ekki Alban­íu sem ótryggt land. Það virðist vera mjög vin­sælt að koma með ófrísk­ar kon­ur frá hinum ýmsu vand­ræðalönd­um og virðist það ein­mitt gert til að spila á aum­ingja­samúðina sem nóg virðist vera á Vest­ur­lönd­um.

Jafn­vel verka­lýðshreyf­ing­in sem ég hélt að væri kom­in með upp í háls af ódýru vinnu­afli og und­ir­boðum á vinnu­markaðinum steyt­ir hnef­ann út í loftið með ann­arri hend­inni meðan hún skrif­ar á kröfu­spjöld­in á ensku.

Svo er eitt­hvað til sem heit­ir dag­ur ís­lenskr­ar tungu. Lík­lega eru það ein­hverj­ir þjóðern­is­sinn­ar og po­púl­ist­ar sem vilja halda þannig í ís­lensk­una. Nei, Vest­ur­lönd eiga ekki að taka við fólki frá ör­ugg­um ríkj­um sem er að flýja sinn eig­in aum­ingja­skap, nóg er samt af fólki sem hef­ur meiri þörf en fólk frá Alban­íu.

Nú er ég lík­lega kom­inn í hóp hinna vondu en ég hef það mér til máls­bóta að ég er kom­inn af vondu fólki á Snæ­fellsnesi.

Höf­und­ur er eft­ir­launaþegi. traustit­ann@gmail.com"

Svo flytur Ögmundur Jónasson lofgjörð og hvatningu í sama blaði til þess að auka dekrið á hælisleitendum af hvaða toga sem þeir eru. Hann er fulltrúi góða fólksins sem vil opna hér allt upp á gátt, fleygja fullveldinu fyrir björg og spreða ríkisborgararéttinum og samhjálpinni í hvaða landhlaupa sem hingað rekast.

"Tvær ábend­ing­ar til Íslands

Þess­ar ábend­ing­ar til Íslands voru:

Í fyrsta lagi að tryggja að fólk sem kem­ur á eig­in veg­um og sæk­ir um alþjóðlega vernd njóti sam­bæri­legr­ar þjón­ustu hvað varðar hús­næði, at­vinnu og tungu­mála­kennslu og flótta­fólk sem kem­ur á veg­um stjórn­valda.

Í öðru lagi að setja laga­bálk sem taki til allra þátta mis­mun­un­ar og mis­rétt­is í sam­ræmi við grund­vall­ar­regl­ur Evr­ópuráðsins. Í þess­um grund­vall­ar­regl­um er vísað til þess að til staðar þurfi að vera sjálf­stæð mann­rétt­inda­stofn­un, óháð rík­is­vald­inu, en með trygga fjár­mögn­un til að fylgja því eft­ir að farið sé að lög­um.

 

Já­kvæð viðbrögð Íslands

Í yf­ir­ferð nefnd­ar­inn­ar á ný­af­stöðnum fundi var horft til aðgerðaáætl­un­ar sem rík­is­stjórn­in kynnti í upp­hafi þessa árs varðandi sam­ræmda mót­töku flótta­fólks, óháð því hvernig það kem­ur til lands­ins, og fyr­ir­heita stjórn­valda um fjár­mögn­un áætl­un­ar­inn­ar. Varðandi síðari ábend­ing­una var horft til laga sem sett hafa verið síðan nefnd­in birti skýrslu sína fyr­ir nær þrem­ur árum. Vísað var til þess að sett voru lög nr. 85/​2018 um jafna meðferð óháð kynþætti og þjóðern­is­upp­runa og lög nr. 86/​2018 um jafna meðferð á vinnu­markaði.

Þess­um lög­um var fagnað sem mik­il­væg­um áföng­um og í sam­ræmi við ráðlegg­ing­ar ECRI-nefnd­ar­inn­ar þótt enn skorti á að grund­vall­ar­viðmiðum væri al­ger­lega full­nægt. Þar er átt við að heild­stæða lagaum­gjörð skorti enn og svo einnig að enn er ekki til staðar óháð mann­rétt­inda­stofn­un."

Brýna nauðsyn ber til þess að íslenskir fullveldissinnar og þjóðernissinnar stilli saman strengi sína og skilyrði stjórnmálalegan stuðning sinn þvert á flokkslínur þar sem enginn flokkur hefur til þessa þorað að hafa aðra stefnu en uppgjafarstefnu í hælisleitendamálum síðan Sigríður Andersen var hrakin úr embætti af prófasvindlaranum úr Háskólanum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HÆLISLEITENDADEKUR ER ÓGN VIÐ FÁMENNI ÍSLENDINGA. Við vorum vöruð við SKIPUNUM og SAMSTARFI við ESB lönd frá Norður-löndum og Englandi og sýndum mestu aumingjasamúð á "heimsvísu". Nú hefur England náð sjálfstæði að nýju.

Það eru EKKI mannréttindi fjölþjóða,að flytja til og rjúfa landamæri ÖRUGGRA landa með Fullveldi og Sjálfstæði segir utanríkisráðherra Ungverjalands Mr.Peter Szijjarto skráð af Gustaf Skúlasyni á Útvarpi SÖGU. Við höfum afskrifað MANNRÉTTINDI og LANDAMÆRI ÍSLENDINGA með "AUMINGJASAMÚÐ" Alþingismanna.

OKKAR algóða LÖGREGLA, Vegabréfaeftirlit skal STÓRFJÖLGA og heita VÍKINGASVEIT. 

Segjum ÍSLANDSSÖGUNA,200 mílna fiskveiðilögsögu og ÞORUM að boða Kristna siði.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 17.12.2019 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 3419714

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband