2.1.2020 | 14:00
Þeir björguðu okkur
mennirnir í InDefence og Kjósum.is samtökunum frá dusilmennsku Alþingismanna sem samþykktu Icesave lll af því að það væri svo lítil upphæð að hún skipti ekki máli. Aðeins einhverjir 20-30 milljarðar sögðu þeir sinnum sjö.
Þjóðin sagði 60 % aftur nei í apríl 2011 þrátt fyrir hótanir stórspekinga og vitringa um að við myndum verða Kúba Norðursins eða þaðan af verra ef við ekki greiddum samkvæmt ísköldu mati og myndum tapa í málaferlum.
Þór Whitehead rifjar upp söguna í glöggri grein í Morgunblaðinu í dag. Og vegna þeirra sem ekki lesa Mogga þá er greinin svohljóðandi:
"Veturinn 2008 var illa komið fyrir íslensku þjóðinni. Bankakerfið var að miklu leyti hrunið og bresk stjórnvöld höfðu fryst eignir íslenskra banka í Bretlandi með hryðjuverkalögum. Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, sagði Ísland á barmi gjaldþrots og erlendir fjölmiðlar tóku í sama streng. Þeir sökuðu Íslendinga um að ætla að smeygja sér undan alþjóðlegum skuldbindingum við sparifjáreigendur í bankaútibúum erlendis.
Allt lagðist þetta á eitt við að ógna utanríkisverslun Íslands, tefja endurreisn fjármálakerfisins og spilla orðstír íslenska ríkisins og þjóðarinnar um heim allan.
Stjórnvöld sýndust af ýmsum ástæðum treg eða lítt fær um að taka fyllilega á þessum vanda, og það féll í grýttan jarðveg þegar Davíð Oddsson seðlabankastjóri (brátt leystur frá embætti af nýrri ríkisstjórn) lét að því liggja að íslenska þjóðin ætlaði ,,ekki að borga skuldir óreiðumanna í útlöndum.
Nokkrum framtakssömum mönnum í Reykjavík, sem flestir áttu það sameiginlegt að hafa hlotið háskólamenntun sína í Bretlandi, þótti hér í óefni komið. Þeir stofnuðu með sér samtökin InDefence of Iceland með það að markmiði að virkja almenning til varnar landinu. Íslenska ríkið gæti aldrei náð viðunandi samningum um ágreiningsefnin við Breta og Hollendinga og reist fjármálakerfið úr rústum nema Íslendingar styrktu stöðu sína út á við ekki aðeins gagnvart erlendum stjórnvöldum heldur einnig gagnvart fjölmiðlum og almenningi á Vesturlöndum. Sókn væri besta vörnin, og hana hófu samtökin með því að setja upp frumlega netsíðu, þar sem fram fór undirskriftasöfnun og kröftugur málflutningur gegn ákvörðun Bretastjórnar um að beita hryðjuverkalögum gegn íslenskum bönkum.
Íslendingar vildu virða skuldbindingar íslenska ríkisins við evrópska innstæðutryggingakerfið, en tækist ekki að leysa úr ágreiningi um það efni ætti að vísa málinu til dómstóla eftir hefðum réttarríkisins, undirstöðu vestræns lýðræðis.
Í mars 2009 afhentu forvígismenn InDefence-hópsins breskum þingmönnum undirskriftir rúmlega 83.000 manna gegn beitingu bresku hryðjuverkalaganna gagnvart íslenskum aðilum.
Nokkru síðar, 5. júní 2009, gerðu ríkisstjórnir Bretlands, Hollands og Íslands með sér svonefndan Icesavesamning um uppgjör á bresku þrotabúi Landsbankans. InDefence-hópurinn lagðist eindregið gegn þessum samningi, þar sem hann bryti m.a. í bága við fullveldi landsins og stefndi endurreisn fjármálakerfisins og lífskjörum íslensku þjóðarinnar í hættu.
Íslenska ríkið hefði að ósekju fallist á ábyrgð á ólögmætri Icesave-kröfu Breta og Hollendinga, samningsvextir væru allt of háir og gjaldfellingarákvæði afar varasöm. Þrátt fyrir þessi þungvægu rök töldu þeir félagar ólíklegt að samningnum yrði hnekkt og beittu sér þess vegna fyrir því að Alþingi setti ýmsa fyrirvara við efni hans.
Nú fór svo að ríkisstjórnir Bretlands og Hollands höfnuðu fyrirvörunum, en féllust til sátta á viðaukasamning, Icesave II. InDefence-hópurinn hóf hins vegar harða baráttu gegn þessum samningi með því að hann gerði nánast að engu fyrirvara til að takmarka ábyrgð íslenska ríkisins á umsömdum skuldbindingum.
Stjórnarandstaðan á Alþingi og hluti stjórnarþingmanna undir forystu Ögmundar Jónassonar lagðist á sveif með hópnum og var samningurinn því að lokum samþykktur með aðeins þriggja atkvæða meirihluta á þingi í árslok 2009.
InDefence-hópurinn efndi hins vegar til undirskriftasöfnunar, þar sem skorað var á Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands að synja lögum um samninginn staðfestingar. Þátttaka í söfnuninni reyndist með fádæmum og 2. janúar 2010, fyrir réttum tíu árum, afhentu forsvarsmenn InDefence forsetanum undirskriftirnar, alls 56.089.
Fjöldi manns hafði þá safnast saman úti fyrir Bessastöðum og hafði blys á lofti. Þessi aðgerð átti sinn þátt í að móta það álit erlendra fjölmiðla að meirihluti íslensku þjóðarinnar væri að taka málið í sínar hendur með friðsamlegum og lýðræðislegum hætti, eins og stjórnarskrá landsins tryggði.
Þremur dögum síðar fór forsetinn að áskorun undirskrifenda með þeirri röksemd að vilji þjóðarinnar væri hornsteinn lýðræðisins. Skömmu síðar kom fram að Bretar og Hollendingar væru nú skyndilega reiðubúnir að bjóða Íslendingum hagstæðari samningskjör, enda fór þjóðaratkvæðagreiðslan svo að 98,1% þátttakenda greiddi atkvæði gegn Icesave-samningnum.
Á þesssum erfiðu tímum hafði InDefence tekist að sameina þjóðina um það grundvallaratriði að íslenska ríkið ætti ekki að leggja út fé fyrir skuldum sem það hefði aldrei stofnað til. Samningsstaða Íslands hafði styrkst við sóknina gegn bresku hryðjuverkalögunum og efldist nú enn frekar við úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar og skörulegan málflutning forseta Íslands í erlendum fjölmiðlum.
Fjármálageirinn alþjóðlegi hafði augljóslega fengið allt of lausan tauminn og ógnað að lokum sjálfu hagkerfi Vesturlanda með græðgi sinni og hroka.
Allt gróf þetta nú undan kröfugerð Breta og Hollendinga á hendur Íslendingum. Þeim varð ekki lengur lýst sem sérstökum syndaselum, sem flokka bæri með hryðjuverkamönnum.
Eftir úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2010 hófust að nýju samningaviðræður ríkisstjórna, sem lauk með þriðja Icesavesamningnum, svonefndum Buchheit-samningi, í desember 2010. InDefence-hópurinn var ekki á eitt sáttur um ýmis ákvæði þessa samnings og tók því ekki sem heild beina afstöðu til hans samkvæmt starfsreglum sínum. Buchheit-samningurinn, sem samþykktur var með yfirgnæfandi meirihluta á Alþingi, þótti almennt til bóta miðað við tvo hina fyrri Icesave-samninga.
Engu að síður ákvað forseti Íslands að fara að áskorunum í víðtækri undirskriftasöfnun nýrra samtaka, kjósum.is, og synja lögunum um samninginn staðfestingar.
Í þjóðaratkvæðagreiðslu í apríl 2011 var III. Icesave-samningnum síðan hafnað með 60% atkvæða. Þótt InDefence sæti hjá í þessari lotu réðust úrslitin líklega að talsverðu leyti af öflugu kynningarstarfi og málflutningi hópsins gegn fyrri Icesavesamningnum. Þar við bættist skörp gagnrýni sumra félaga úr hópnum á ýmis grundvallarákvæði samningsins.
Eftirlitstofnun Fríverslunarsamtaka Evrópu (ESA) brást hart við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Hóf stofnunin málsókn fyrir EFTA-dómstólnum gegn íslenska ríkinu með stuðningi Evrópusambandsins vegna meintra brota á tilskipun þess um innstæðutryggingar bankareikninga.
Í janúarlok 2013 sýknaði dómstóllinn íslenska ríkið hins vegar af öllum kröfum þessara aðila, eins og alkunna er. Með þeim dómi hafði málstaður InDefence hlotið endanlegan sigur.
Dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, komst síðar svo að orði í blaðaviðtali að III. Icesave-samningurinn hefði verið ,,skrifaður á máli Versalasamninganna, sem bundu enda á fyrri heimsstyrjöld. Rök hafa verið færð fyrir því að Versalasamningarnir séu einhverjir ógæfulegustu nauðungarsamningar veraldarsögunnar. Orð dómsforsetans sýna því skýrt hvílíkt nauðsynjaverk þeir menn unnu sem með stuðningi forseta Íslands tryggðu íslensku þjóðinni lokaorðið um Icesave-samningana.
Í krafti þessarar baráttu og fullveldis landsins gat ríkissjóður krafið þrotabú föllnu fjármálafyrirtækjanna (að mestu í eigu erlendra vogunarsjóða) um svokölluð stöðugleikaframlög af útgreiðslum andvirðis eigna í íslenskum krónum.
Sl. haust námu tekjur af þessum framlögum alls 445 milljörðum króna, þar af hafði um 200 milljörðum verið varið til greiðslu ríkisskulda.
Til viðbótar því eru aðrar greiðslur föllnu fjármálafyrirtækjanna til hins opinbera og áætlað er að framlögin geti numið að minnsta kosti 600 milljörðum króna.
Stöðugleikaframlögin eiga því ríkan þátt í hinni einstöku endurreisn íslenska fjármálakerfisins, en ekki er minna um vert hvernig óeigingjörn barátta InDefence hópsins reisti við heiður þjóðarinnar gagnvart umheiminum.
Íslendingar eiga forvígismönnum hópsins mikla þökk að gjalda og framtaks þeirra verður minnst á meðan þjóðin telur það nokkurs virði að fá ráða mikilvægustu hagsmunamálum sínum."
Í stað þess að verða af með hundruð milljarða fengu Íslendingar inn 600 slíka og og munar um minna en þá sveiflu.
Mikið af þeim dusilmennum sem þá sátu á Alþingi og ætluðu að þvinga þennan myllustein um háls þjóðarinnar situr þar enn og greiddu atkvæði um 3. orkupakkann hvað sem kjósendur sögðu. Væri vert að kjósendur rifjuðu upp nöfn þeirra við næstu prófkjör.
Barátta InDefence hópsins bjargaði þjóðinni frá Alþingi 2010 með 98% atkvæða og sparaði henni á endanum með aðstoð samtakanna Kjósum.is, en 42.000 manns höfðu skrifað á lista þeirra samtaka þegar Forsetinn ákvað nýja þjóðaratkvæðagreiðslu, líklega hátt í þúsund milljarða.
Og það sem meira er að þessir aðilar líklega afstýrðu inngöngu Íslands í ESB sem veruleg hætta var á að dusilmennin stefndu hraðbyri til þótt margir sigldu þar undir fölskum flöggum og geri jafnvel enn ef svo ber undir.
Forvígismenn InDefence voru: Agnar Helgason, Davíð Blöndal, Eiríkur S. Svavarsson, Jóhannes Þ. Skúlason, Kristján Gíslason, Magnús Árni Skúlason, Ólafur Elíasson, Ragnar F. Ólafsson og Sigurður Hannesson sem tók við Fálkaorðunni fyrir þeirra hönd á nýjársdag.
Það þarf líka að minnast forsvarsmanna seinni samtakanna, Kjósum.is þar sem Frosti Sigurjónsson var í forsvari. Þeir söfnuðu tugþúsundum undirskrifta til Forsetans, dr. Ólafs Ragnars Grímssonar, sem hvergi bilaði í vörninni fyrir Ísland allan þennan tíma. Þar er verðugt pláss fyrir Fálkakrossa.
Ólafs Ragnars Grímssonar mega allir landsmenn minnast með þakklæti fyrir þá vörn sem hann hélt uppi fyrir land og þjóð í þessari styrjöld allri.
Þessir menn allir björguðu þjóðinni frá dusilmennunum á Alþingi Íslendinga og fá þeir þeim það seint fullþakkað.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:18 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 3419716
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Leiðrétting: Frosti Sigurjónsson var meðal forsvarsmanna Advice.is sem voru stofnuð eftir að undirskriftasöfnun kjosum.is var lokið, til að taka þátt í kosningabaráttunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Lénið kjosum.is var aftur á móti í eigu Samtaka fullveldissinna en við vorum tveir úr stjórn þeirra sem settum upp vefsíðuna og kerfi til að halda utan um undirskriftsöfnunina (ekkert að þakka).
Utan um söfnunina og baráttuna í kjölfarið myndaðist fjöldahreyfingin Samstaða þjóðar gegn Icesave, en enginn sérstakur leiðtogi fór fyrir henni. Allir sem vildu taka þátt gerðu það einfaldlega, hver með sínu lagi, sumir með því að skrifa greinar og mæta í fjölmiðlaviðtöl, aðrir með því að mála skilti eða mæta á fjöldafundi o.s.frv. Frosti var vissulega þar á meðal, en ekki sem neinn sérstaklega útvalinn leiðtogi heldur sem þátttakandi á sínum eigin forsendum eins og allir aðrir sem að verkefninu komu.
Ástæða þess að við réðumst í það sem sjálfboðaliðar að setja upp vefsíðuna kjosum.is til að halda úti þessari seinni undirskriftsöfnun af tveimur, var sú að InDefence hafði ákveðið að sitja hjá í Icesave III. Endanlegur sigur í málinu vannst ekki fyrir EFTA dómstólnum nema einmitt vegna þess að okkur tókst að fella Icesave III samninginn í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni (sú fyrri skipti minna máli). Sá sigur var ekki InDefence að þakka þó þeir eigi heiðurinn af því að hefja baráttuna og sigra fyrri umferðina. Án þess hefðum við hin ekki getað tekið við keflinu og hlaupið áfram með það til sigurs í seinni umferðinni.
Þetta má rifja upp um næstu áramót þegar álíka langt verður liðið frá aðgerðum kjosum.is og Samstöðu þjóðar gegn Icesave, eins og er nú liðið frá aðgerðum InDefence.
Gleðilegt ár.
Guðmundur Ásgeirsson, 2.1.2020 kl. 15:20
Sæll Halldór og gleðilegt árið.
Gleymdu ekki einum aðalkraftinum og stofnanda,
SDG. Vegns þess krafts sem hann sýndi í þessum orustum,
varð framsóknarflokkurinn til aftur.
Sjaldan hefur einn maður risið eins hátt og fljótt og hann
í pólitík. Var svo tekin af lífi í beinni, af þeim peingaöflum
sem þoldu ekki að hann var að vinna fyrir almúgan.
BB var meðal þeirra sem stakk hann í bakið.
Ekki séð hann gera neitt fyrir okkar land og þjóð
eins SDG gerði.
Hins vegar sveik hann BB, þjóðina með samþykki ICESAFE
og orkupakka 3 og sýndi enn og aftur sitt rétta andlit,
allt fyrir peningana og þá sem þeim stjórna.
Þjóðin getur bara átt sig.
Sigurður Kristján Hjaltested, 2.1.2020 kl. 16:38
Leiðrétting: Frosti Sigurjónsson var meðal forsvarsmanna Advice.is sem voru stofnuð eftir að undirskriftasöfnun kjosum.is var lokið, til að taka þátt í kosningabaráttunni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Lénið kjosum.is var aftur á móti í eigu Samtaka fullveldissinna en við vorum tveir úr stjórn þeirra sem settum upp vefsíðuna og kerfi til að halda utan um undirskriftsöfnunina (ekkert að þakka).
Jæja, ég er þá að rugla eitthvað. En mér hefur alltaf litist vel á Frosta framsóknarmann en þekki hvorki hann né þig ef þú vilt frekar verða forseti Guðmundur hafandi átt svona stóran þþátt í þessu sem ég vissi ekki. En Frosti er auðvitað þjóðþekktur
Halldór Jónsson, 2.1.2020 kl. 20:31
Sæll Halldór.
Alveg rétt, Frosti er þjóðþekktur og meðal annars fyrir þetta sem hér um ræðir, sem hann verðskuldar. Öll mín kynni við hann eru fyrsta flokks og ég þakklátur fyrir þau.
Það má alls ekki skilja þetta svo að ég sé á neinn hátt að gera lítið úr hans framlagi eða Indefence, sem voru gríðarlega mikilvæg. Þvert á móti vildi ég bara vekja athygli á því að það voru aðrir sem veittu ríkisábyrgðarsamningunum endanlega náðarhöggið og sú hreyfing var leiðtogalaus.
Svo það sé á hreinu er ég ekki heldur að reyna að spila mitt hlutverk í þessu stærra en það raunverulega er. Ég var svo sem með frá upphafi kjosum.is og lagði nótt við dag í sjálfboðastörf við þetta í rúma tvo mánuði, jafnvel næturnar líka, allt fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni. En margir fleiri lögðu líka mikið af mörkum, eins og ég sé það vorum við öll mikilvægir hlekkir í stærri keðju.
Það sem skilur mig kannski frá flestum hinna er að ég hef haldið áfram á sömu braut allar götur síðan og er til dæmis ennþá að berjast fyrir því að Ísland virði alþjóðlegar skuldbindingar sínar í þágu almennings, en brjóti ekki gegn þeim á kostnað almennings eins og var reynt í Icesave málinu. Sem dæmi er baráttan gegn ríkisábyrgð á skuldum einkabanka ekkert búin því það er enn verið að reyna að koma slíku á og verður eflaust reynt oftar í framtíðinni.
Það má ekki líta svo á að baráttan fyrir málstað almennings sé búin, heldur þurfum við sífellt að vera á verði.
Guðmundur Ásgeirsson, 2.1.2020 kl. 21:27
Guðmundur
Kjaftaskur eins og ég sem gusar mikið af því að slíkur veður grunnt hlýtur að gera bommertur eins og ég hef gert þar sem ég greip þetta um Frosta hrátt af netinu án ritrýningar. Mér þykir leitt að móðga þig með þessu Guðmundur og bið afsökunar. En get ekkert gert í því nema ég reyndi að laga textann aðeins af því að þetta blogg er ekki prentað blað heldur tölvuskjal.
En Jón Birgir Pétursson sá reyndi blaðamaður sem var minn lærifaðir í blaðamennsku fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Kópavogi tók mig einu sinni fram af skaftinu þegar við vorum búnir að gefa út blað og ég hróðugur yfir að hafa getað borgað prentið.
Þá kom einn pólitíkusinn snarvitlaus að skamma mig fyrir eitthvað sem ég hafði skrifað og haft eftir honum (þeir eru gjarnir að vilja leiðrétta texta eftir á til þess forms sem þeir vildu sagt hafa en sögðu öðruvísi, þetta þekkja þingskrifarar nokkuð vel)í blaðið. Ég blautur bak við eyrun þá og fór eitthvað sjokkeraður að rífast í JBP til eða reyna að klína einhverju á hann líka:
" Iss! Það þýðir ekkert að rífa kjaft yfir blaði sem er komið út."
Hákon föðurbróðir sagði líka við mig löngu áður en þetta var þegar hann var að innræta mér meiri vandvirkni en ég er fæddur með:
"Bókstafurinn blífur."
Þannig er það Guðmundur minn.
Halldór Jónsson, 2.1.2020 kl. 21:50
Blessaður Halldór.
Ég er ekkert móðgaður og algjör óþarfi að biðjast afsökunar á neinu. Mitt innlegg var ekki meint sem neitt annað en bara nánari útskýring á atburðarásinni.
Góðar stundir.
Guðmundur Ásgeirsson, 2.1.2020 kl. 23:41
Takk fyrir yfirvegun þín Guðmundur
Halldór Jónsson, 3.1.2020 kl. 12:14
Góðir Skrifarar blogga hjá þér í dag Halldór varðandi ÍSLAND og Bessastaði. Ég hressist af skrifum Sigurðar Kristjáns Hjaltested.
Samstarfið í Ríkisstjórn virðist snúast um ÓTTA við Sigmund Davíð formann Miðflokksins og "Klausturbræður", sem vinna vel með Landinu OKKAR og sameiginlegum eignum. Setjum ÍSLAND í EFSTA SÆTI og afskrifum langanir og nudd Samfylkingar og Viðreisnar við ESB liðið í Brussel. Þar ríkir stjórnleysi?.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 3.1.2020 kl. 16:25
Axel Jóhann Axelsson upplýsti :
"5.6.2009 | 14:51 Icesave breytt í kúlulán
Jóhanna, ríkisverkstjóri, sagði í hádeginu, að loksins væri búið að leysa Icesave deiluna á farsælan hátt og Íslendingar myndu aldrei þurfa að borga nema í mesta lagi frá 0 kr. og í versta falli 65 milljarða.
Það er að vísu himinn og haf á milli 0 og 65 milljarða, en eins og venjulega er ekki verið að segja satt. Kúlulánið, sem á að taka fyrir Icesave, er upp á 650 milljarða króna og það byrjar ekki að greiðast niður fyrr en eftir sjö ár. Á hverju ári þangað til verða greiddir 37,5 milljarðar í vexti, eða samtals á þessum sjö árum alls 262,5 milljarða króna.
Ofan á þessa 262,5 milljarða króna leggst síðan það, sem ekki tekst að fá út úr búi Landsbankans í Englandi, því eins og segir í fréttinni: "Á þessum sjö árum mun verða reynt að selja eignir Landsbankans upp í skuldina." Það sem ekki selst á þessum sjö árum, lendir þá á ríkissjóði, samkvæmt þessu.
Hefur Jóhanna, ríkisverkstjóri, ekki skilning á fjármálum, eða er hún að blekkja vísvitandi?"
Þetta losnuðum Íslendingar við, 862 milljarða plús að við náðum tilbaka 600 milljarða úr þrotabúunum. Það hafa einhverjir fengið fálkakrossa fyrir minna?
Halldór Jónsson, 4.1.2020 kl. 11:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.