Leita í fréttum mbl.is

Trúður?

er það sem Khamenei kallar Trump.

Trump er ekkert ánægður með kjaftinn á keilunni.

Hvað voru þeir Hitler og Göbbels þegar þeir voru að flytja stríðsræður sínar í Sportpalast? Þóttust þeir ekki vera að tala í nafni þýzku þjóðarinnar? En gleymdu að geta þess að þeir voru bara ólýðræðislegir einræðisherrar sem stjórnuðu í krafti undanþágu frá stjórnarskránni.Í skjóli SS-sveitanna og Gestapo?

Hefur ekki Khameinei byltingarvörðinn? En Trump hefur bara Fulltrúadeildina yfir sér.

Hver þessi Khamenei sem þykist tala í nafni Persa? Hvaða umboð hefur hann? 

Trump var löglega kosinn þó demókrötum líki það ekki. 

Kaus einhver Khamenei eða klerkastjórnina?

Hverjir eru trúðar í pólitík?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Halldór,

Hann Trump karlinn er eins og hver önnur strengjabrúða, þessar kosningar þarna í Bandaríkjunum hafa lítið sem ekkert að segja, og elítan er yfirleitt búin að ákveða hver verður næsti forseti. Það er EKKI hægt að kallað þetta lýðræði , heldur er þetta fyrirtækja-ismi (e. corporatism). 

KV.

   

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 18.1.2020 kl. 19:07

2 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 18.1.2020 kl. 19:08

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Ekki er nú þessi speki þín yfirþyrmandi sannfærandi frekar en ýmsar aðrar kenningar frá þér.

Halldór Jónsson, 18.1.2020 kl. 20:38

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Speak softly but carry a big stick. Er það ekki það sem Trump hefur gert?

Halldór Jónsson, 18.1.2020 kl. 20:39

5 identicon

Khamenei er ekki bara umboðsmaður Persa, hann er umboðsmaður Guðs. Hann hefur leyfi Guðs til þess að ljúga ef það er "til varnar þjóðinni og trúnni".

Það getur hins vegar orðið býsna vandræðalegt ef lygin kemst svona berlega uppyell

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 18.1.2020 kl. 20:49

6 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll aftur Halldór,

Fyrirgefðu en þetta er ekki mín speki, en þetta er eitthvað sem þú ættir að athuga betur, varðandi með þessar elítur, banka, stórfyrirtæki og/eða auðuga aðila er ráða í Bandaríkjunum og víða.

KV.

"A New Corporatism

What we're witnessing is the development of a new corporatism in American politics. Some use "corporatism" to refer to control of our economy and culture, society and politics by the corporations — and certainly we have that problem...."(https://newpol.org/new-corporatism-american-politics-and-grassroots/)

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 19.1.2020 kl. 00:31

7 identicon

Trump var löglega kosinn þó demókrötum líki það ekki og hann hafi ekki fengið meirihluta atkvæða almennings. Og Khamenei var löglega kosinn þó þér líki það ekki. Khamenei, eins og Trump, er yfirmaður heraflans og undir fulltrúadeild. Og "Klerkastjórnin" er kosin í almennum kosningum hver 4 ár.

Trump og Khamenei og stjórnarfar Bandaríkjanna og Iraks eiga meira sameiginlegt en hvort heldur sem er við okkar stjórnarfar og kosningar æðstu manna okkar. Hvort Írakar hafi séð að þeir kæmust upp með ýmsan ósóma og pólitískt svínarí með því að kópera Bandarískt stjórnarfar læt ég ósagt.

Vagn (IP-tala skráð) 19.1.2020 kl. 00:31

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Hvernig eru frambjóðendur klerkastjórnarinnar valdir Vagn?

Halldór Jónsson, 19.1.2020 kl. 09:19

9 identicon

Samkvæmt lögum og reglum landsins af þeim flokkum sem bjóða fram. Venjulega eru 4 til 6 flokkar í framboði.

Vagn (IP-tala skráð) 19.1.2020 kl. 13:05

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Herra lýðræðissinni Vagn og umboðsmaður spámannsins á Íslandi: Þetta segir um lýðræðiskosningar í Iran:

Iran elects on national level a head of state and head of government (the president), a legislature (the Majlis), and an "Assembly of Experts" (which elects the Supreme Leader). Also City and Village Council elections are held every four years throughout the country. The president is elected for a four-year term by the people. The Parliament or Islamic Consultative Assembly (Majlis-e Shura-ye Eslami) has 290 members, elected for a four-year term in multi- and single-seat constituencies. Elections for the Assembly of Experts are held every eight years.

All candidates have to be approved by the Guardian Council. See Politics of Iran for more details.

Until January 2007, when it was raised to 18, the voting age was 15 years, the lowest globally at the time.[1]

The most recent presidential election and the most recent local elections were held on 14 June 2013, simultaneously for the first time.[2][3] The most recent parliamentary election and the most recent Assembly of Experts elections were held on 26 February 2016.

Halldór Jónsson, 19.1.2020 kl. 13:16

11 identicon

Frelsi og framfarir voru á tímum Resa Pahlavi í Iran um 196o. Íbúar og konur frjálsari og "máttu hugsa". USA kom öllu í gang í olíuiðnaðinum hjá Arabalöndum.

AMERIKA er stærst í dag vegna afburða DUGNAÐAR og GETU TRUMPS í FJÁRMÁLUM og UPPBYGGINGU AMERIKU. ESB dáir og óttast TRUMP. STOLTENBERG og TRUMP "are FRIENDS". NATO er stórveldi með AMERIKU. Ég dái EVRÓPU, en hef efasemdir varðandi "STJÓRNUN" Vestur Evrópu og Norðurlanda.

Það er sorglegt að sjá og heyra frétta og rithöfunda og vinstrafólk "aulast" með sérskýringar á LEIÐTOGANUM frá USA, sem ber af öðrum ÞJÓÐARLEIÐTOGUM. Hann er FRIÐARSINNI og YFIRBURÐARMAÐUR.

BÆNDUR-SJÁVARÚTVEGUR og GRÓÐURHÚS: BJÓÐIÐ ÓMENGAÐA framleiðslu YKKAR frá ÓMENGUÐU ÍSLANDI og bjóðið forsetanum DONALD J. TRUMP til ÍSLANDS. HANN er OKKAR MAÐUR.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 19.1.2020 kl. 15:08

12 identicon

Og Bandaríkin hafa sínar reglur sem taka kosningarétt af stórum hluta þjóðarinnar og gera öllum nema fyrirtækjaleppum og hinum auðugu ófært að bjóða fram til æðstu embætta. Forsetar eru ekki kosnir af almenningi. Fulltrúaráð sem almenningur kýs en er algerlega óbundið af vilja almennings velur forseta. Framboð til fulltrúaráðsins er kostnaðarsamt og því eru flestir skuldbundnir styrktaraðilum sem oftast eru fyrirtæki og sterk félagasamtök. Peningar, ekki lýðræði, ráða mestu um hverjir eru í framboði í Bandaríkjunum.

Vagn (IP-tala skráð) 19.1.2020 kl. 15:10

13 Smámynd: Halldór Jónsson

 Þessi langhundur er í sömu litum meira að segja og Stundin og álíka  kommatittaritgerðasmíð með stórasannleika, alhliða fullyrðingar með sannleikskjarna stundum.  Viðurkennir ekki að Trump hafi unnið vegna þess sem hann sagði fyrir kosningar og vill standa við eftir kosningar. Þorsteinn Scheving og Vagn eru gott teymi saman í pólitík sýnist mér.Vitið sitt lítið af hverju en alyktanir eru allavega túlkanir

Halldór Jónsson, 19.1.2020 kl. 17:10

14 Smámynd: Halldór Jónsson

.."(https://newpol.org/new-corporatism-american-politics-and-grassroots/) það er þessi langhundur sem ég las eftir ávísun Steina

Halldór Jónsson, 19.1.2020 kl. 17:11

15 identicon

Hvers vegna Trump vann má deila um. En það er alla vega bókuð og skjalfærð staðreynd að það var ekki vegna þess að hann hafi fengið meirihluta atkvæða almennings. Hefði lýðræðisleg niðurstaða kosninganna ráðið þá hefði Trump ekki orðið forseti. Trump var með nærri 3 milljónum færri atkvæði á bak við sig en frambjóðandinn sem settur var í annað sætið. Því geta jafnvel áköfustu rassasleikjur hans ekki neitað.

Vagn (IP-tala skráð) 19.1.2020 kl. 17:41

16 Smámynd: Halldór Jónsson

Það er kosið eftir fyrirfram þekktu kerfi sem er afleiðing af yfirvegaðri rökvísi sem allir hafa sætt sig við. það er ekki við hæfi að vera með dónaskap eins og þú vegna þess.

Halldór Jónsson, 19.1.2020 kl. 18:56

17 Smámynd: Halldór Jónsson

Þú getur alveg stillt þig Vagn og verið eins og maður, þér er ekki alls varnað

Halldór Jónsson, 19.1.2020 kl. 18:57

18 identicon

Það er kosið eftir fyrirfram þekktu kerfi sem er afleiðing af yfirvegaðri rökvísi sem allir hafa sætt sig við. Þannig er það einnig í Íran.

En ég sé ekki mikinn mun á því hvort Texaco eða klerkar ráða frambjóðendum og hvort þingönnum sé stjórnað af samtökum byssueigenda eða æjatóllum. Það er ekki mikið lýðræði þar sem skoðanir almennings, komnar fram í löglegum kosningum, eru ekki virtar.

P.s. Afsakaðu dónalega orðið í fyrra svari, en stundum verður maður til að forðast misskilning að nota þau orð sem best lýsa vissum hópum.

Vagn (IP-tala skráð) 19.1.2020 kl. 19:52

19 Smámynd: Halldór Jónsson

Vagn, þakka þér fyrir drengilegt skeyti, stundum þarf að fara undir yfirborðið til að komast að hinum góða kjarna sem er yfirleitt einhversstaðar að finna þó að hiti leiksins kalli stundum á annað.Eins og gömul vinkona mín í Þýzkalandi æsku minnar orðaði það: "Jeder Mensch hat etwas gutes an sich, man muss es nur finden." 

Halldór Jónsson, 19.1.2020 kl. 21:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418216

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband