Leita í fréttum mbl.is

Nú vantar Einar Odd

til að tyggja ofan í okkur þann sannleika aftur og aftur og enn og aftur að taxtahækkanir eru ekki það sama og  kjarabætur.

Ég sé hann enn óþreytandi fyrir mér og Guðmund jaka við hlið hans með skafl af neftóbaki á gólfinu, þyljandi sömu sannleikstugguna í mismunandi útgáfum í tóntegund sem aldrei breyttist eða varð óþolinmóð.

Hann endaði með að sannfæra þjóðina og óðaverðbólgunni var útrýmt á einni nóttu.Við tók hagvaxtarskeið og stöðugleiki sem færði þjóðinni fyrstu raunverulegu kaupmáttaraukninguna og gengisstyrkingu sem hún hafði upplifað. Þeir herskáustu létu sannfærast þegar Guðmundur lagðist á þá til viðbótar og líka voru allir orðnir uppgefnir á 100 % verðbólgunni og árvissum gengisfellingunum.

Situr einn með sollið fés

Seðlabanka Jóhannes

Fellir gengið fyrsta des

fer þá allt til helvítes

Maður hélt að þjóðin hefði lært sína lexíu en það er víst misskilningur. Það eru komnar fram sterkar raddir gáfufólks um að þetta hafi allt verið vitleysa og það sé vel hægt að lagfæra bág kjör þeirra lægst launuðu án þess að setja stöðugleikann fyrir borð.

Ég heyrði Halldór Benjamín tala í þessa veru um daginn. Hann sannfærði mig ágætlega. En hvort honum lánast að sannfæra heila þjóð eins og þeim tókst Einari Oddi og Guðmundi jaka veit ég ekki.

Ég sakna þeirra Einars Odds og Guðmundar jaka, þeir voru alveg sérstakir heiðursmenn báðir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hugrenningar góðs bloggskrifara

NÚ vantar Einar Odd og Guðmund jaka, , en þeir eru horfnir á braut.  Kannski væri möguleiki að leita til miðla og fá svör þar hvort þeir hefðu verið sáttir við 46%launahækkun til ráðherra / ráðstjórnar Íslands?

Eðvarð L.Árnason (IP-tala skráð) 30.1.2020 kl. 17:38

2 identicon

Ég fæddist og ólst upp sannur XD maður. Pabbi varaði mig við störfum hjá RÍKINU og hjá REYKJAVÍKURBORG.Þar væri ÖRUGG vinna en LÁG LAUN. ALÞINGISMENN og OPINBERIR EMBÆTTISMENN með eigið "LAUNARÁÐ" hækkuðu EIGINlaun, sem gladdi ALLA, nema SÓLVEIGU hjá EFLINGU, sem telur þá "STÓRU" hafa tíföld laun verkamanns.

Virðing,Vinsemd var hjá EINARI ODDI, GUÐMUNDI JAKA og ALBERT GUÐMUNDSSYNI að mig minnir. VIRÐING og NEFTÓBAK?.

Má aldrei minnast á LÆKKUN launa?. Lækkun lóða, eftirlits-gjöld. Lækkum bensinið ofl fyrir lækkun launa???. 

TIL HAMINGJU BRETAR með BREXIT og brottförina frá stjórnlausri Evrópu.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 30.1.2020 kl. 21:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband