Leita í fréttum mbl.is

Trump var sýknaður

í Öldungadeildinni og Demokratar lutu í gras þó að Pelosi gamla Pókahontas rifi ræðuna hans  í tvennt í beinni útsendingu.

Páll Vilhjálms bloggkóngur skeifar svo í dag:

" Sérfræðingar kusu ekki Trump til forseta 2016 heldur verkafólk og millistétt. Sérfræðingar í utanríkismálum, efnahagsmálum, fjölmiðlum og pólitískum rétttrúnaði voru og eru í miklum meirihluta andsnúnir Trump. Alþýða manna er á öðru máli - og kýs Trump.

Í forn-grísku lýðræði voru menn eins og Trump kallaðir til verka þegar í óefni var komið hjá ráðandi öflum. Þeir voru kallaðir týrannar.  Einn þeirra, Kleisþenes, endurreisti lýðræði í Aþenu eftir að sérfræðingar - aðalsmenn - höfðu spillt því.

Sérfræðingar í Washington í samstarfi við starfsbræður í Brussel klúðruðu vestrænu lýðræði. Í hernaði var klúðrið Afganistan 2001, Írak 2003, Líbýa 2011 og Úkraína 2014. Í efnahagsmálum var klúðrið TTIP og í utanríkismálum óvinátta við Rússa og Íran-samningurinn.

Sérfræðingar gerðu almenning á vesturlöndum fátækari og eyðilögðu samheldni vestrænna samfélaga með innflutningi á fólki frá framandi menningarheimum. Sérfræðingar bjuggu til gervivísindi um loftslagsvá til að hræða almenning til fylgis við hjátrú. 

Trump var kjörinn forseti til að andæfa klúðri sérfræðinganna. Alþýða manna veit þau gömlu sannindi að sérfræðiveldi leiða til ófarnaðar."

Þetta er sannleikurinn um Trump og samtímann í nokkrum orðum. Trump hefur sem Forseti farið ótroðnar slóðir og tekið oft ótrúlegustu ákvarðanir sem jafnvel hörðustu fylgismenn hans hafa bitið sig í vörina yfir, en komið samt niður á lappirnar eftir heljarstökkin.

Flestir eru þeirrar skoðunar að demókratar muni ekki geta velt honum úr sessi með venjulegum aðferðum. Þeim mun þýðingarmeira er að hans verði gætt sem vandlegast fram að kosningum því að örþrifaráð óðra manna geta leynst víða.

Trump var sýknaður í gær og heldur ótrauður áfram.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sjá landsmenn EKKI muninn á réttu og röngu. Á hvaða stöðvar hlusta frétta og blaðamenn á ÍSLANDI. Eru allir orðnir "eins" demokratar og vinstrimenn hjá blöðum og sjónvarpi. MBL mitt keyrir EKKI með Leiðtoganum TRUMP, nema DAVÍÐ og Páll Vilhjálms skrifi?. FOX news er ALLRA vinsælust ALLRA fréttastofa í USA. Prófið FOX og hlustið á sannleikann um D.J.TRUMP, sem hefur gjörbreytt AMERIKU til góðs.

ÞJÓÐERNISSINNAÐ Alþingi, sem afskrifa ESB stjórnleysið í Evrópu og VINNA eingöngu fyrir ÍSLAND verða sigurvegarar í næstu ALÞINGISKOSNINGUM.

Þeirra besta verk væri að bjóða TRUMP til ÍSLANDS og leysa öll mál BÆNDA,SJÁVARÚTVEGS og GRÓÐURHÚSA og hætta snakkinu í BRUSSEL. Utanríkismálin eru eitt stórt rugl ásamt innflut ningi VANDAMÁLA til fámenni ÍSLENDINGA. 

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 7.2.2020 kl. 18:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3418247

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband