Leita í fréttum mbl.is

Í ljósi reynslunnar

af vist sinni hjá auðvaldinu og í ljósi sögunnar af Sovétríkjunum skilur nýsósíalistinn, fjögurrablaðaSmárinn, Gunnar Smári Egilsson  öðru nafni, eftirfarandi grunnsannindi í hinni góðu baráttu sinni í sjóðum Eflingar:

"Verkefni sósíalista er ekki svo mikið að sannfæra fólk um réttmæti krafna sósíalista um jöfnuð, réttlæti, frelsi og mannhelgi. Mikill meirihluti fólks er sammála sósíalistum í öllum megindráttum. Annars væri sósíalismi náttúrlega ekki sósíalismi, sem í grunninn er lítið annað en kröfur hinna kúguðu um betra samfélag.

Verkefni sósíalista er miklu fremur að skrúfa niður áróður auðvaldsins og sendisveina þess, um að almenningur eigi ekki skilið samfélag sem byggt er upp af jöfnuði, réttlæti, frelsi og mannhelgi. Vandi okkar er þannig andlegur fremur en vitsmunalegur.

Til að halda völdum hafa kapítalistar sannfært stóran hluta almennings um að samfélag manna verði alltaf slæmt og löngun fólks til að gera það betra geti gert það enn verra. Því eigi fólk að sætta sig við ójöfnuð, óréttlæti, ófrelsi og kúgun. Verkefni sósíalista er að sannfæra fólk um að það eigi allt gott skilið, líka gott samfélag.

Um leið og fólk vaknar af martröð kapítalismans og öðlast von um betra líf, þá rís sósíalisminn upp svo til af sjálfum sér, vegna þess að sósíalismi er samheiti yfir drauma alþýðunnar um fagurt mannlíf og gott samfélag, trúin á að okkur sé ætlað eitthvað annað en vera þrælar hinna fáu ríku og valdamiklu."

Líklega er Arnarnesmartröð ritsnillingsins á enda með miklum gróða af fasteignabólunni svo hann getur átt góða daga við prédikanir á borð við þessa sem Joyce Meyer gæti ekki gert meira sannfærandi.

Í ljósi reynslunnar hlýtur fólkið að velja sósíalismann enda blasir hann við í Venezúela.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418267

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband