29.2.2020 | 12:16
Að iðrast eftir dauðann
getum við Sjálfstæðismenn tautað fyrir okkur núna.
Við sitjum uppi með bæði EES samninginn og Björn Bjarnason sem sér um að verja hann í líf og blóð.
Samt skrifar höfundur Reykjavíkurbréfs hver sem hann er nú, svona til að skýra málin fyrir okkur-eða hvað?:
"....Umræða um lögfræðilega þætti á vegum ríkisvaldsins hefur veikst stórlega á síðustu árum, svo mjög að ástæða er til að hafa af því verulegar áhyggjur. Það er áberandi að stjórnkerfið hefur á sínum snærum launaða lögfræðiráðgjafa sem eru þó frekar að ráðleggja um málflutning en veita fræðilegar upplýsingar. Það er mikil afturför og að auki bæði gáleysisleg og heimskuleg.
Ráðgjafarnir eiga að setja á blað rök sem réttlæta undirlægjuhátt gagnvart hinu evrópska valdi. Og það versta hefur gerst að þeir sem áður voru reyndir og þarfir stjórnmálamenn hafa keypt hræðslukast mislukkaðra embættismanna. Þar með að sjálf forsenda þess að Íslendingum var fært að samþykkja EES-samninginn forðum, því að það stóð tæpt, hafi horfið úr tilverunni án þess að þinginu eða þjóðinni hefði verið sagt frá því.
Ef eitthvert vit er í ráðgjöfunum hefðu þeir allir sem einn mælt gegn þessari forkastanlegu og óheimilu afstöðu. En þegar svo er komið að menn eru ekki annað en málflytjendur er ekkert minnsta mark á þeim takandi nema þeir séu opinberlega í því hlutverki einu.
Bréfritari leyfir sér að fullyrða að hefðu hann og aðrir séð þessa þróun á ömurlegum undirlægjuhætti fyrir þá hefði EES-samningur sennilega aldrei verið samþykktur.
Það er fróðlegt að fara yfir þær lögfræðiritgerðir mætra manna sem lágu fyrir við afgreiðsluna. Annars vegar þeirra sem eftir ítarlega athugun töldu að vegna þess sem samningurinn bæri með sér þá myndi samþykkt hans, þrátt fyrir alvarlegar athugasemdir um annað, standast stjórnarskrá landsins. Og svo hins vegar skýrsla lögfræðinga sem færðu rök fyrir gagnstæðu sjónarmiði.
Þegar stærsti flokkur ríkisstjórnarinnar gekk í fyrra þvert gegn samþykktum landsfundar Sjálfstæðisflokksins og reyndar, svo merkilegt sem það er, þvert gegn mjög afgerandi og tæpitungulausri yfirlýsingu formanns flokksins á Alþingi, sem aldrei var aftur tekin, þá var eitt og annað smálegt notað til að auðvelda þingmönnum að snúast í málinu.
Sumt var eins og hvert annað barnalegt bull, eins og vísun í óbindandi og þýðingarlaust snakk utanríkisráðherra við andlitslausan kommissara í Brussel.
Annað var þegar til viðbótar þeim lögfræðingum sem gengið hafa svo oft í vatnið fyrir þennan vonda málstað að þeir ná aldrei að þorna í gegn, þá voru fengin álit sem leit út fyrir að ættu að standast fræðilega en reyndust þegar skoðuð voru vera hluti af málflytjendapappírum til innanhússbrúks. Margt af þessu virtist gert beinlínis til að drekkja vönduðum og þó varfærnum sjónarmiðum reyndustu manna, eins og Stefáns Más Stefánssonar prófessors, sem bersýnilega höfðu áhyggjur af glannafengnum málatilbúnaði...."
Hvað eigum við vesælir almennir flokksmenn eiginlega að gera eða hugsa þessa dagana? Ekki fáum við merkileg leiðbeinandi samtöl frá Birgi Ármannssyni varðandi þá hugmyndafræði sem við eigum að brúka eftir 3.Orkupakkann.
Sumir segja að það sé of flókið fyrir flesta að iðrast eftir dauðann?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 3419710
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
SKAMMSTAFANIR og 3/þriggja stafa bandalög EMBÆTTISMANNA frá BRUSSEL heilla ekki lengur fámenni ÍSLENDINGA. ALÞJÓÐAGLAMOUR og "VIÐSKIPTASAMNINGAR við BANDALÖG" eru EKKI heppileg fyrir Smáþjóðir.
VIÐ erum STERKUST SJÁLFSTÆÐ í FYRIRMYNDAR ÓMENGUÐU LANDI, sem er burðarás BÆNDA,GRÓÐURHÚSA og SJÁVARÚTVEGS.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 29.2.2020 kl. 14:02
Í dag er tími iðrunar Halldór, iðrun þýðir að snúa við 180°, frá villu til lífs og lausnar. Nú er tími fyrir þá sem enn eru skráðir í Sjálfstæðisflokkinn að skrá sig út, forustan hlustar á ekkert annað. Þegar atkvæðin leita annað þá fyrst fer forustan að skjálfa, þó svo það hafi ekki enn gerst þá hlýtur að styttast í að svo verði. Bjarni vill endurnýjað umboð til að halda áfram á sömu braut, hann vill sjálfsagt ganga að flokknum dauðum, það verði það afrek sem menn munu minnast hans fyrir.
Tómas Ibsen Halldórsson, 29.2.2020 kl. 14:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.