Leita í fréttum mbl.is

Niður með Persónuvernd

Persónuvernd er meinvættur í samfélaginu og ætti að leggja niður. Það er morgunljóst eftir afskipti hennar af skimun ÍE en hún ætlaði að koma í veg fyrir hana. Svo er forstjóra hennar falið vald til að sekta fólk eftir vild? Dómsvald og framkvæmdavald. Fáránleg stofnun. 

Heilsufar einstaklinga er ekkert einkamál þeirra heldur samfélagsins alls alveg sambærilegt við almenna skólaskyldu barna. Að hugsa sér að galnir foreldra skuli fá að ráðskast með hvort börn þeirra eru bólusett áður en þau eru sett á leikskóla til dæmis.Brjálæði sem bara getur þrifist undir Persónuverndarvitleysunni.

Lokum þessari stofnun, hún er gersamlega óþörf kratísk vitleysa.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kemur þá kleppskýrslan um þig á netið? En dvöl þín á Vogi? Krabbi eða hjartveiki í ættinni? Tryggingafélögin verða glöð með að fá sjúkrasögu og allar erfðafræðiupplýsingar um þig og þína og geta hafnað og verðlagt eftir þeim. Bjartir tímar þegar þú verður bara vara DeCode til sölu eins og tómatsósa án allrar persónuverndar.

Vagn (IP-tala skráð) 13.4.2020 kl. 19:03

2 identicon

Þetta er ekki rétt. Forstjóri ÍE kvartaði yfir seinni afgreiðslu á umsókn. Forstjóri Pv. svaraði því, sagði m.a. að Kári hefði betur sameinað þessa umsókn fyrri umsókn.

Opinberar stofnanir verða að tryggja sínar gerðir með belti og axlaböndum til að skapa ekki óheppilegt fordæmi eða skaðabótaskyldu.

Það er ekki gott, almennt séð, að heimta að boðum og bönnum sé aflétt, heldur eigi að fræða fólk, en fara svo ekki með rétt mál.

Aðalsteinn Geirsson (IP-tala skráð) 13.4.2020 kl. 20:39

3 Smámynd: Örn Gunnlaugsson

Margt óþarfa ríkisapparatið mætti nú leggja niður öllum að harmlausu nema helst þeim sem eru áskrifendur að laununum sínum þar. Persónuvernd er þar ekki neðst á listanum. Hún er ekki bara óþörf heldur þvælist hún beinlínis fyrir.

Örn Gunnlaugsson, 13.4.2020 kl. 20:44

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Vagn: Ég skal  glaður skiptast á á mínum sjúkraskýrslum við þínar skýrslur sem ég hygg að séu  merkilegri en mínar sem hef fátt eitt upplifað þrátt fyrir hugsanlega hærri aldur. En þú vilt kannski hafa þínar leyndar meðan ég birti mínar eða hvað?

Halldór Jónsson, 13.4.2020 kl. 22:51

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Halldór. Er það ekki fyrir neðan þína virðingu að vera að svar einhverri IP tölu. Þeir sem þora ekki að blogga undir nafni eða hvað þá mynd eru í mínum huga lítilmenni sem eru ekki svara verð. Nú getur þessi Vagn eða Kerra ráðist á mig fyrir þessi skrif. En mér er svo nákvæmlega sama því lítilmenni eru nafnleysingar og oftar en ekki þeir sem brúka mestan kjaft í skjóli nafnleysins.

Sigurður I B Guðmundsson, 13.4.2020 kl. 23:31

6 identicon

Á það ekki einmitt að vera okkar val frekar en DeCode og sálfræðingsins þíns? Persónuvernd bannar þér ekki að birta persónulegar upplýsingar þínar en passar að aðrir sem þær hafa geri það ekki. Passar að persónulegar upplýsingar þínar fari ekki á eitthvað flakk nema með þinni vitund og samþykki. Og það angrar Kára alveg óskaplega.

DeCode er fyrst og fremst fyrirtæki sem fær sínar tekjur með sölu upplýsinga og gagna. Og DeCode hefur frá fyrsta degi viljað fá að meðhöndla þínar persónuupplýsingar sem hverja aðra söluvöru. Það eina sem hefur stoppað þá er persónuvernd.

Vagn (IP-tala skráð) 13.4.2020 kl. 23:50

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Sigurður, það er rétt að ég hef yfirleitt ekkert sérstakt dálæti á Mökkurkálfum. En Vagninn er svo sérstakt illyrmi óg hatari við flest sem vel er um að ég hef stundum gaman að honum. Svo er hann ekki alvitlaus og fróður um margt þannig að ég læt athugasemdir hans yfirleitt flakka enda hefur hann heldur lagast í kjaftinum en hitt eftir að ég fór að siða hann til.

Halldór Jónsson, 14.4.2020 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 56
  • Frá upphafi: 3418404

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband