Leita í fréttum mbl.is

Hinn íslenski Soros

Helgi Magnússon, er orðinn með áhrifamestu áróðursmeisturum glóbalismans og landsölumönnum Evrópusinna.

Hann er búinn að komast yfir áhrifamikla fjölmiðla eins og Fréttablaðið og Hringbraut. Sjónvarpsstöðin er allgóð undir forystu Sigmundar Ernis og Lindu Blöndal sem virðast ekki gleypa allar skoðanir "His Masters Voice" hráar þannig að stöðin er yfirleitt mjög góð áhorfs.

En um Fréttablaðið gegnir öðru máli.

Þar skrifar Kolbrún Bergþórsdóttir hvern leiðarann á fætur öðrum og rakkar niður Donald Trump Bandaríkjaforseta með slíku offorsi að maður gæti ætlað að meira fífl hefði aldrei gengt opinberu embætti í víðri veröld. Og auðvitað hefur heldur ekki annað eins stjórnmálaséní og þessi Kolbrún ekki ritað í blöð.

Annar leigupenni Helga er Þorsteinn Pálsson. Hann skrifar vikulega um kosti þess að Íslendingar gangi í Evrópusambandið. Hann hefur það fram yfir Kolbrúnu að hann reynir að rökstyðja einstök atriði í fimbulfambi sínu um Evrópumál enda fyrrum Sjálfstæðismaður.Þorsteinn eyðir auðvitað miklu púðri í að prédika þá skoðum Helga að íslenska krónan sé ónýt og undirrót alls ills, sem bergmálar auðvitað skoðanir annarra stækra Evrutrúboða á borð við Þorvald Gylfason, sem er þó blessunarlega hættur að skrifa vikulega í blaðið, Talna-Bensa, Óla Bieltved og Einars Benediktssonar  svo einhverjir séu nefndir.

Ég skal viðurkenna það að þegar ég er búinn að lesa nægju mína í Mogga þá  fletti ég Fréttablaðinu að miðopnu sem ég renni kannski yfir, mest til að æsa mig upp. Annað er yfirleitt ekki mér athyglisvert í blaðinu nema léttmeti og auglýsingar þó ég fletti til enda. Sem Fréttablaðið heldur fram að sé sama og að 90% % þjóðarinnar lesi blaðið vegna upplagsins þó kannanir sýni gerólíka niðurstöðu og að líklegra sé að helmingi upplagsins sé hent. Enda vita allir hverskonar  áróðursblað Helga Magnússonar og Samfylkingaraflanna þetta Fréttablað er og ætti að mínu viti að kaupa Gunnar Smára til sín aftur til að styrkja Kolbrúnu Bergþórs í áróðrinum. Smárinn er áreiðanlega til sölu nú sem fyrr. 

En Helgi Magnússon, fyrrum Hafskipsmógúll, er orðinn hinn íslenski Soros í skjóli peninga sinna og prédikar glóbalismann fyrir landsmönnum til að reyna að koma Íslandi frá fullveldi  í arma Evrópusambandsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig er það, eru allir einangrunarsinnar skítblankir og áhrifalausir? Er enginn sem í skjóli peninga sinna getur prédikað kosti þess að klippa á tengsl við hin hræðilegu útlönd og ógnvekjandi útlendingana? Enginn sem getur komið Íslandi frá fullveldi og frelsi í einangrun og átthagafjötra?

Vagn (IP-tala skráð) 30.4.2020 kl. 12:22

2 identicon

SOROS nafnið er máttugt og hættulegt, en EKKI til að MÆRA það fyrir fámenni ÍSLENDINGA.

ÍSLENDINGAR hafa ÁHYGGJUR af "dugnaðarfólkinu" og getulausum Stjórnmálaflokkum og einstaklingum, sem vilja KEYRA OKKUR inn til ESB landa, sem enga stjórn hafa á eigin málum.

Verður þetta KALL til núverandi FORSETA á BESSASTÖÐUM til að kalla til KOSNINGA gagnvart EMBÆTTISKERFINU og GETULEYSINU í BRUSSEL.

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 30.4.2020 kl. 16:35

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Vagninn er lítt skiljanlkegur sem oft áður þegar hann setur sama sem merki milli einangrunarsinna útlendingahræðslu  og fullveldissinna. Honum er fyrirmunað að skilja hugtakið frelsi þjóðar öðru visi en að einhver  útvalinn fari með völdin yfir þvi. Alveg eins og Gunnar Smári og nýkommarnir enda sjálfsagt velviljaður þeim flokki.  

Halldór Jónsson, 30.4.2020 kl. 18:34

4 Smámynd: Ómar Geirsson

En Halldór minn.

Það er leitun að öðru eins fífli og Trump, þú þarft að gjörþekkja mannkynssöguna til að finna þau.

Og þá er ég að vísa í orð hans, ekki gjörðir.

Að fara rangt með, afneita staðreyndum, tala eins og fífl, nútímasaga kann ekki önnur dæmi þar um.  Enda tími einveldis liðinn, og samkeppni þjóðanna leyfði ekki fífl.  Hugsanlega má segja það um Vilhjálm annan Þýskalandskeisara, en hans eini glæpur var að hlusta ekki á sér eldri og reyndari menn.

Afneitun staðreynda eins og að ráðast á WHO, er dæmi um vinnubrögð sem Stalín þróaði þegar hann drap fyrst samstarfsmenn Leníns, og leit svo það líta út eins og þeir hefðu vart komið nálægt rússnesku byltingunni, en hann hins vegar hefði leikið þar veigamikið hlutverk.  Sem reyndar var fátt annað en að fela sig í kvenmannspilsum þegar á reyndi og láta aðra taka skell og dóm.

Í seinni tíma þekkjum við aðeins þessi vinnubrögð hjá Kim einhverjum sem líklegast er dauður, en vonandi er að drepast.

Þetta þýðir samt ekki að Trump sé heimskur eða vitlaus.  Hann var aðeins fyrstur að átta sig á kalkúnaheilkenninu sem velmegun friðarára Vesturlanda ól af sér.

Trump hefði ekki á sínum tíma náð prófi í verkfræði Halldór, og hann myndi ekki ná því í dag.

Hvað sem um hann er sagt, þá er hann stór stjórnmálamaður, en að réttlæta bullið í honum, eða afneita því!!, slíkt er aðeins heimskra manna háttur.

Virkar allavega ekki þegar reikna þarf út burðarþol á brúm.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 30.4.2020 kl. 18:47

5 identicon

Já, það er sennilega munurinn á okkur. Ég skil þig vel og veit þess vegna hvenær þú hefur rangt fyrir þér og misskilur hlutina. En þú skilur mig ekki og heldur því að þú hljótir að hafa rétt fyrir þér.

Frelsi þjóðar felst ekki í því að geta einangrað sig og látið eins og aðrir í heiminum séu ekki til. Fullveldissinnar er rangnefni á þeim hópi sem þú tilheyrir og er aðeins notað af ykkur. Og það er fullkomlega rökrétt að setja sama sem merki milli einangrunarsinna útlendingahræðslu og ykkar, skoðanir ykkar og stefnumál bjóða ekki upp á annað. If it walks like a duck, quacks like a duck....

Vagn (IP-tala skráð) 1.5.2020 kl. 05:01

6 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Sögninað mæra þýðir að hæla ehv, eða hrósa. Hvað þýðir þessi fyrsta setning Vagns?

Helga Kristjánsdóttir, 1.5.2020 kl. 05:32

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Æ Ómkar minn, ósköp er sorglegt að sjá þig leggjast á Vagninn og hans skilningsstig.

" Fullveldissinnar er rangnefni á þeim hópi sem þú tilheyrir og er aðeins notað af ykkur. Og það er fullkomlega rökrétt að setja sama sem merki milli einangrunarsinna útlendingahræðslu og ykkar, skoðanir ykkar og stefnumál bjóða ekki upp á annað. If it walks like a duck, quacks like a duck...."

Þvílíkt bull og ekki svaravert

Halldór Jónsson, 1.5.2020 kl. 12:26

8 Smámynd: Ómar Geirsson

Það er nú bara svo Halldór minn, að ég lærði það af Bjössa Magg, stærðfræðikennara mínum að rífast ekki við staðreyndir.

Það er nú samt óþarfi að líkja mér við rafeind fyrir það.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 1.5.2020 kl. 12:32

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar, Trump myndi ekki taka við gömlum kommafræðum af Neskaupstað.Hann er fjölgáfaður maður sem margir skilja ekki til fulls.

Hvað ætlarð að segja ef hann rekur tengsli COVID-2 inn á rannsóknarstofur í Wuhan? Finnst þér Kínakommarnir hafi sagt allan sanleikann? 

Halldór Jónsson, 1.5.2020 kl. 12:49

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Vagn, í hverju felst frelsi þjóðar? Að láta möppudýr í Brüssel ákveða á hvaða tíma dags við megum fara á klósettið?

Theódór Norðkvist, 1.5.2020 kl. 13:24

11 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Trump hefur sýnt fram á það hvernig á EKKI að haga sér sem leiðtogi þjóðar í krísu.

Sjálfumgleði virkar ekki á tímum sem þessum.

Allir sem vilja sjá, sjá hvernig hann gloprar niður tækifærinum, aftur og aftur til að sameinaa sína þjóð.

Nú hef ég fylgst með hverjum og einasta blaðamannafundi hjá honuum síðustu 3 vikur varðandi upplýsingagjöf um Coved-19 og get því byggt mína skoðun á því sem hann hefur látið út úr sér.

Ljóst þykir að hann hefur nú þegar tapað embætti sinu þegar verður kosið 3 nóvember n.k.vegna kostulegra orða hans um inntöku klórs og annarra hreinsiefna, og svo þá vegna yfirklórsins daginn eftir á skrifstofu sinni. Þar réði ekki skynsemi við för heldur á ný, sjálfumgleði.

Nú kunna gestir hér að kalla skrif mín "hatur", sem það er augljóslega ekki, heldur skoðun. E-ð sem Trump kallar iðulega "fakenews"

Það má halda langt erindi um þvaðrið hjá Trump á téðum fundum. Þú kemur ekki þjóð þinni áfram úr vandræðum með því sem þú gerðir í gær, heldur hvað þú gerir í dag og ætlar að gera á morgun.

Trump er enn að fagna "viðskiptasamningi" sínum við Kína á meðan dauðsföll eru nú komin yfir 60.000 manns.

Sem fyrr, þá verður forsetatíð Trump til 4 ára rannsóknaefni um hvernig vel gefinn einstaklingur [því það verður ekki horft framhjá því að hann væri ekki þar sem hann er nema að vera nokkuð vel gefinn] en hann hinsvegar er afglapi í að lesa stöðuna og taka ákvarðanri byggða á skynsemisrökum.

Svo kann hann ekki,líklega hluti af uppeeldi, að meta hvenær einn tekur slaginn eða ekki. Hann hefur aldrei haft neinu að tapa. 

Hann er hinsvegar búinn að tapa embættinu núna vegna skelfilegra nálgunar á þessa plágu og kreppu í kjölfarið. 

Farið hefur fé betra.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 1.5.2020 kl. 13:28

12 Smámynd: Ómar Geirsson

Ja, hann er allavega snillingur, um það er ekki hægt að deila.

En láttu ekki svona Halldór, bull er bull og og það er sérsvið Trumps, og það segir mikið um samtímann að hægt sé að stjórna umræðunni með því að láta allt flakka án þess að á nokkurn hátt sé hægt að tengja ummælin við staðreyndir eða rökhugsun.

Og þú ert ekki það grár að þú munir ekki eftir leiðtogum ykkar hægri manna sem voru eldskarpir og enginn hafði í rökræðum. Nixon, Tatcher, Bjarni Ben eldri, Óli Thors.

Kínakommar og sannleikur, eldur og ís, eitthvað sem fer ekki dagsdaglega saman, en það getur gosið undir jökli og Kínakommar geta alveg sagt satt, stundum hentar það þeim.

En hvernig dettur þér í hug að þekking mannsandans sé háð orðum eða yfirlýsingum??

Man ekki betur en þú hafir hvatt alla til að lesa Arnar Pálsson, og ég gerði það allavega.  Og varð fróðari um veirur á eftir og vitneskju vísindamanna um þær.  Og mig minnir að Örn hafi sagt að þessi veira væri með 98% samsvörun við Rna veirunnar í leðurblökum, sem benti til þess að líklegast væri einn hýsill á milli.

Og hann sagði að það væri útilokað að hún væri manngerð.

Svona ef þú ert hættur að trúa Mogganum þá ættir þú allavega að trúa manninum sem þú vísaðir sjálfur á sem mikinn þekkingarbrunn.

Ítreka, Tump myndi aldrei geta reiknað út burðaþol.

Kveðja að austan.

Og takk fyrir að hætta að bera mig saman við rafeind.

Ómar Geirsson, 1.5.2020 kl. 15:48

13 identicon

Það er aumlegt að hlusta á bölsót Kellinga og Karla, sem telja sig merkilega í blöðum og viðtölum varðandi ÞJÓÐARLEIÐTOGANN Donald J. TRUMP. Maður flettir yfir þetta "sjálfsumglaða" lið, þegar það sést í dagblöðunum.

STAÐREYNDIN er: D.J.TRUMP þarf 2/3daga fyrir RANGHUGSANIR ykkar. Hann hefur ALLTAF rétt fyrir sér. Skoðaðu málið.

Hvergi hafa sést meiri FRAMFARIR við COVID19 sjúklinga en í USA undir stjórn Dr. Fauci og sérfræðinga sem vinna dag og til að koma meðölum tafarlaust í dreyfingu Á HEIMSVÍSU til FÁTÆKRA og RÍKRA Í 184 löndum.

Gleðjumst yfir LEIÐTOGANUM og ÖLLUM hans verkum fyrir USA og ALHEIM.  

GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 1.5.2020 kl. 16:01

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Já, sekvensinn í RNA veirunnar bendir ekki til þss að hún sé manngerð en frekar komin úr leðurblöku með viðkomi í hundi.

En hvenær Moderna treystir sé til að að nota fleira fólk í tilraunir veit ég ekki.Ég heyrði sagt að þeir yrðu búnir að gera efnið jafnvel í júni og þeir eru að eða búnir að byggja framleiðslulínur fyrir massapródúksjón.Fauci heldur að 3.fasi geti byrjað í haust jafnvel.

En það liggur á bólusetja Vagninn og álíka  mannvitsbrekkur ef hægt á að vera að koma heiminum í gang.

Halldór Jónsson, 1.5.2020 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 47
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband