Leita í fréttum mbl.is

Jarmið á jötugjafir

úr ríkislúkunni til blekbullara heldur áfram sem aldrei fyrr.

Þórður Snær skrifar á Kjarnann sinn:

"..Hér á landi hefur hins vegar fámennur hópur fyr­ir­ferða­mik­illa þing­manna getað komið í veg fyrir að sett verði upp sam­bæri­legt styrkja­kerfi og í nágranna­löndum okk­ar.

Ástæðan virð­ist vera að einn eða tveir minni fjöl­miðl­ar, þar á meðal Kjarn­inn, trufla þá og vegna þess að þeir vilja að nokkrir stórir miðlar sem neita að aðlaga rekstur sinn að nútím­anum þrátt fyrir millj­arða tap á örfáum árum, fái alla þá rík­is­styrki sem útdeila á.

Þessir hópur nýtur svo stuðn­ings val­inna fjöl­miðla­manna og nafn­lausra pista­höf­unda sem hafa ham­ast á þeim sem styðja almennt styrkja­kerfi með það að leið­ar­ljósi að bæta lýð­ræð­is­lega virkni og gagn íslenskra fjöl­miðla.

Fremst í þeim flokki er Við­skipta­blað­ið, með alla sína nafn­lausu eymd. Rík­is­styrkir reynd­ust svo mikið eitur í beinum þeirrar útgáfu að hún ákvað að setja sex eða fleiri starfs­menn sína á hluta­bóta­leið­ina, sem var ætluð fyrir fyr­ir­tæki í verulegum rekstr­ar­vanda. 

Fyrir þessa heift og óbil­girni gagn­vart miðlum sem geta átt von á því að fá í besta falli um þrjú pró­sent af heild­ar­styrkjum líða allir hinir fjöl­breyttu miðlar íslenskrar fjöl­miðlaflóru sem há enn frekar en áður erf­iða bar­áttu fyrir til­veru sinn­i.  

Vegna þessa hóps situr frum­varp um styrkja­kerfið fast í nefnd for­manns sem hafði ekki einu sinni fyrir því að vera við­staddur þegar hluti fjöl­miðla var kall­aður fyrir nefnd­ina vegna máls­ins. Af opin­berum yfir­lýs­ingum hans, sem byggja aldrei á rökum eða vísun í gögn heldur fyrst og síð­ast niðr­andi gíf­ur­yrð­um, þá nennir hann ekki mikið að hlusta á ein­hverja „blogg­ara“. 

Í stað­inn á að styrkja einka­rekna fjöl­miðla með ein­skipt­is­að­gerð sem hluta af COVID-við­brögð­um. Hvernig sá styrkur verður liggur ekki enn fyr­ir. Það verður til dæmis áhuga­vert að sjá hvort að gerð verði skýr krafa um gegn­sætt eign­ar­hald og hvort nýt­ing á öðrum COVID-­rík­is­styrkjum muni drag­ast frá væntu fram­lagi til þeirra þriggja fjöl­miðla­fyr­ir­tækja sem nýttu sér hluta­bóta­leið­ina. 

En aug­ljóst er að ein­hver sér hag í því að fyr­ir­sjá­an­leiki í fjöl­miðla­rekstri sé eng­inn og að ástæða sé til að halda þessu leik­riti um mögu­legan vilja til að takast á við ástand­ið, sem staðið hefur frá árinu 2016, áfram.  

Erfitt er að draga aðra ályktun en þá að það sé vegna þess að við­kom­andi vilji hafa stærstu fjöl­miðla lands­ins áfram í tap­rekstri sem kallar á áfram­hald­andi fjár­fram­lög sér­hags­muna­að­ila, með til­heyr­andi nei­kvæðum áhrifum á lýð­ræð­is­lega umræðu og sam­keppn­is­að­stæður á fjöl­miðla­mark­að­i. 

 

Það er mjög mið­ur."

Hver er þjóðfélagsleg nauðsyn á útgáfu Kjarnans?

Eða Miðjunnar?

Eða Útvarps Sögu?

Eða www.samurfosti.is?

Eða Morgunblaðsins?

Eða Fréttablaðsins?

Eða RÚV?

Ég hefði haldið að svona starfsemi sé því aðeins nauðsynleg ef fólk vill borga fyrir að halda þessu úti?

Af hverju á Sjálfstæðisfólk að borga Helga Magnússyni með sköttum sínum fyrir að halda úti hatursmiðli á Sjálfstæðisflokknum eins og langgjaldþrota Fréttablaðinu?

Af hverju á Bjarni Benediktsson að borga sjálfur þeim Egilssonum fyrir að skrifa skít og níð um sig sem stjórnmálamann?

Hundurinn bítur yfirleitt ekki höndina sem fóðrar hann.

Munu þeir Egilssynir ekki leggjast flatir fyrir ríkislúkunni frekar en að hafna peningum frá Lilju? Var ekki Gunnar Smári auðmjúkur þjónn í þjónustu Jóns Ásgeirs  á sínum tíma?Bjó í Arnarnesinu með feitu köttunum?

Nýorðinn Kommúnisti hjá Eflingu?

Hvert fer trúverðugleiki Útvarps Sögu sem stjórnarandstöðumiðils þegar stöðin er orðin tilberi á stjórnvöldum? Styrktarreikningur Útvarps sögu osfrv.?

Hversu einbeittur verður Þórður Snær í ofan af flettingum þegar tilvera Kjarnans  hangir á vinabrauði valdabraskara í stjórnmálum?

Sámur fóstri kemur ekki út nema ef tekst að safna auglýsingum til að borga kostnaðinn. Og kemur þessvegna bara ekki út í nærri 50.000 eintökum eins og hann gerði þegar betur áraði.

Af hverju ekki sama með Kjarnann, Miðjuna og það allt sem jarmar á jötugjafir úr ríkislúkunni? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Jón Magnússon lögmaður skrifar svo um efni sem þessu tengist:

"Mun verð á grænmeti til neytenda lækka? Var það forsenda aukinna styrkja? Ónei.

Reynsla neytenda af auknum styrkjum og beingreiðslum til framleiðenda er sú, að þeir skila sér ekki eða þá mjög óverulega til neytenda með lægra verði.

Af hverju má ekki styðja við atvinnurekstur með almennum aðgerðum eins og t.d. skattalækkunum t.d. afnámi tryggingargjalds?

Nú skiptir máli að gæta vel að því að opinberu fé sé ekki sólundað í gæluverkefni, heldur brugðist við raunverulegan vanda vegna Covid. Of margar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru því miður því marki brenndar að færa fjármuni frá skattgreiðendum til þóknanlegra aðila í atvinnurekstri.

Sýnu verra er að stjórnarandstaðan hefur ekki annað til málanna að leggja en að krefjast enn meiri útgjalda úr ríkissjóði. Pólitísk yfirboð formanns Samfylkingarinnar og helsta meðreiðarsveins hans eru með því aumkunarverðara sem heyrst hefur á Alþingi. 

Skattgreiðendur eigi enn sem fyrr fáa vini á Alþingi. Ætla má, að þröngt verði í búi margra þegar þjóðin þarf að taka út timburmenn óráðssíunnar. "

 

Halldór Jónsson, 24.5.2020 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 76
  • Frá upphafi: 3417884

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband