Leita í fréttum mbl.is

Hneykslanlegt viðtal

við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur var á RÚV í kastljósi rétt áðan.

Þar lét spyrillinn Þorgerði Katrínu komast upp með að vaða elginn um allt og ekki neitt sem máli skipti. Hún þvældi almenna frasa um nauðsyn aukinnar atvinnu, lækkun tryggingagjalds og önnur smáatriði án þess að koma að kjarna málsins nema í blálokin og þá í framhjáhlaupi sem engu skilaði fyrir neinn sem í vafa kann að vera um stefnumið flokksins Viðreisnar.

Viðreisn vill nefnilega íslensku krónuna feiga og vill ganga í ESB og taka upp Evru.  Stöðugleiki með krónunni er ekki inni í myndinni hjá Þorgerði sem hún kom að síðast í framhjáhlaupi og í flýti sem drekkti spurningunum.

Spyrillinn gleymdi auðvitað alveg að spyrja hana um hvernig yrði með sjávarauðlindina eftir inngöngu í ESB? 

Yrði sameiginleg sjávarútvegsstefna hornsteinninn sem opnaði aðgang allra ESB ríkjanna að Íslandsmiðum rétt eins og Bretar þurftu að þola á sínum fiskimiðum árum saman sem  lögðu breskan fiskiðnað í rúst.

Þorgerði er hlíft við að svara svona grundvallarspurningum um auðlindir Íslands en er leyft að vaða elginn um allt og ekki neitt sem máli skiptir.

Hún er ekki spurð um orkusamstarfið og sæstreng heldur fær hún að setja á ræðuhöld í slagorðum og óskalistum sem ekkert koma málunum við.

 

Ómerkilegt blaður og orðaflaumur Þorgerðar Katrínar  skilaði áhorfanda nákvæmlega engu um fyrir hvað Viðreisn standi eða hver væri stefna flokksins í efnahagsmálum.

Ekkert slíkt kom  fram hjá formanninum heldur bara almennt mælgiflóð um áhyggjur hennar  af einhverri ókominni framtíð Íslands sem hún veit greinilega minnst um  hver verður eftir COVID19 faraldurinn. 

Ræfildómur skeggjaða spyrilsins var alger og til skammar fyrir menn sem eiga að taka viðtöl til stjórnmálalegrar greiningar til að hjálpa kjósendum að greina hismið frá kjarnanum. Sjálf er  Þorgerður Katrín ekki kjarninn.

Þetta viðtal var hneykslanlega lélegt og greinilega vilhallt fyrir formann flokksins Viðreisn sem hann hefði  átti að spyrja spjörunum úr til upplýsinga fyrir kjósendur  til Alþingis en gerði ekki. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 3418426

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband