23.6.2020 | 12:14
Meirihlutinn í Reykjavík
er ósammála um ástand og horfur.
Björn Bjarnason vekur athygli á eftirfarandi staðreyndum:
"Halldóra Káradóttir, sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs Reykjavíkurborgar, skrifar undir skjal sem sent var alþingi sem umsögn um frumvörp til laga, lögð fram á alþingi 21. apríl 2020 til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldur kórónaveiru. Þar segir meðal annars:
Ef aðeins hefði verið um að ræða skammvinnan vanda, 3 til 6 mánaða niðursveiflu með skjótu bataferli, hefði mögulega dugað að ríkið styddi við lausn fjármögnunarvandans með lánveitingum á hagkvæmum kjörum.
Vandinn snýst hins vegar ekki aðeins um skammtíma fjármögnunarvanda heldur stefnir í algerlega ósjálfbæran rekstur til margra ára. Þessa ósjálfbærni er ekki hægt að leysa með hækkun leyfilegrar skattlagningar eða þjónustugjalda eða með stórfelldum niðurskurði í útgjöldum borgarinnar sem varða að langmestu leyti leik- og grunnskóla og velferðarþjónustu.
Hefðbundnar aðferðir eru ekki í boði.
Þá er ekki hægt að leysa þetta með stórfelldum lánveitingum þar sem veltufé frá rekstri mun ekki til margra ára framundan standa undir afborgunum.
"Þegar Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, benti á þessa lýsingu á fjárhagsstöðu borgarinnar í umsögn sviðsstjórans sem kynnt hafði verið í borgarráði brást Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður borgarráðs, ókvæða við orðum Hildar og sagði hana hafa sett met í dylgjum og ósannindum .
Í grein án visir.is fullyrti Þórdís Lóa að borgin væri vel rekin, með traustan og góðan fjárhag.
Taldi hún að opinber fjármál yrðu því að einhverri þráhyggju [sjálfstæðismanna] sem verður sérstaklega vandræðaleg þegar að aðrir flokkar sýna að þeim er treystandi fyrir fjármálum.
Þessa þráhyggju endurómaði Hildur, því línuna hefur hún jú lært í Valhöll, en nær ekki að hafa rétt eftir í einni einustu setningu.
"Formaður borgarráðs les ekki fundargögn komi þau henni illa og skammar svo borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokkinn fyrir að vitna í þau. Segir þetta ekki allt sem segja þarf um blekkingarheim æðstu stjórnenda Reykjavíkurborgar?"
Meirihlutinn er greinilega ekki innbyrðis sammála um ástand og horfur í félagsþjónustu Borgarinnar. Einn segir allt í lagi og annar en svartsýnni en elstu menn muna.
Hverju skyldu þeir lofa fyrir kosningarnar í auknum leikskólum og félagsþjónustu ef eitthvað er til í því sem Halldóra Káradóttir segir.
Pie in the sky when you die?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Bullukolla Lóa skrifar um þetta á Vísi?
"Ég hef verið að planta trjám og sinna skyldum mínum sem skógarbóndi í Reykjadal. Í sveitinni er kona ekki að fylgjast með öllum umræðuþáttum í beinni. Það var því ekki fyrr en í gærkvöldi sem ég hlustaði á Vikulokin, þar sem ég held að Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hafi sett einhvers konar met í dylgjum og ósannindum.
Borgin er vel rekin, með traustan og góðan fjárhag. Þetta birtist enn á ný í síðasta ársreikningi borgarinnar sem Sjálfstæðisflokkurinn vildi ekki ræða, því hann taldi pólitíska umræðu um endurskoðunarstaðla mikilvægari. Sjálfsmynd flokksins byggir á því að enginn kunni að fara með opinber fjármál nema hann einn. Fjármál verða því að einhverri þráhyggju sem verður sérstaklega vandræðaleg þegar að aðrir flokkar sýna að þeim er treystandi fyrir fjármálum. Þessa þráhyggju endurómaði Hildur, því línuna hefur hún jú lært í Valhöll, en nær ekki að hafa rétt eftir í einni einustu setningu.
Hildur hélt því fram að meirihlutinn hefði sent ríkinu bréf og óskað eftir 50 milljörðum vegna kórónuveirunnar. Þetta er alrangt. Bréfið sem hún vísar í var frá öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu og undirritað af Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.
Af hverju er einungis rætt um Reykjavíkurborg hér, eina sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fer ekki með völd? Það var ótrúlegt að hlusta á borgarfulltrúann setja borgina þarna fremsta í umræðu sem er á borði nánast allra sveitarfélaga landsins. Er Hildur virkilega að saka flokksfélaga sína sem stýra Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ um fjármálaóreiðu?
Þetta er þekkt taktík, að ræða einungis Reykjavík, til að þurfa ekki að ávarpa ábyrgð Sjálfstæðisflokksins hér á höfuðborgarsvæðinu. Þetta mátti sjá í umræðu um Sorpu, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn á nær alla fulltrúa á eigendavettvangi og hefur fulltrúa í stjórn. Þetta má líka sjá í umræðu um borgarlínu, sameiginlegu verkefni allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn ræður ríkjum með samkomulagi undirrituðu af formanni flokksins.
Eins og fram kom í þættinum, þá styður Hildur borgarlínu. Bara ekki nóg til að grafa ekki undan henni til að reyna að skora ódýr pólitísk mörk. Tilgangur hennar er augljós. Hildur er að reyna að grafa yfir þá staðreynd að Sjálfstæðisflokkurinn í borginni er margklofinn og að það er lítill samhljómur á milli Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og í öðrum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins.
Hildur hefur leitt frjálslynda arm síns flokks í borginni. Því miður hefur sá armur orðið undir í borgarstjórnarflokknum og íhaldsamari raddir, sem telja framtíðarsýn borgarinnar sé að líta aftur til 20. aldar, hafa orðið ofan á. Þennan ágreining er ekki einu sinni reynt að fela, þegar samflokksfólk hennar kýs og bókar gegn Hildi í nefndum borgarinnar. Það væri miður ef Hildur er að gefast upp á sinni frjálslyndu sýn á framþróun borgarinnar til að falla betur í kramið hjá íhaldssamari öflum í eigin flokki.
Höfundur er borgarfulltrúi Viðreisnar og formaður borgarráðs."
Er þetta fólk með öllum mjalla? Hefur það ekki heyrt um COVID19 og fjárhagslegar afleiðingar ? Halldóra Káradóttir virðist skilja vandann öðruvisi en þessi aðflutta dama frá Árborg sem er ábyrg fyrir framhaldslífi Dags B. Eggertssonar til illra verka í höfuðborginni. Hvað skyldi sá maður segja um fjárhagsvandann? Líklega fátt því að margir efast um að hann þekki muninn á debit eða kredit eftir braggaaævintýrið.
Og Dagur er alltaf ábyrgðarlaus því hann er með svo marga aðstoðarmenn sem gera víst allar vitleysurnar meðan hann geirir bara góðu hlutina.
Halldór Jónsson, 23.6.2020 kl. 13:08
Býr bullukollan í Reykjavík? Skiptir svosem engu, en sjaldan hefur maður horft upp á annað eins vanhæfi og glórulausa heimsku nokkurs opinbers þjóns almennings. Gjörsamlega í algeru rugli og út fyrir alla skurði í hvert skipti sem hún opnar á sér túllan. Vanhæfnin uppmáluð og hrokinn alger.
Góðar stundir, með kvðju að sunnan.
Halldór Egill Guðnason, 24.6.2020 kl. 01:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.