Leita í fréttum mbl.is

Sannleikurinn

er staðfærður á Miðjunni í dag:

"Þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar hika við að færa fyrirtækjunum sjálfum eftirlit með samkeppni. Sjálfstæðisflokknum er mjög í mun að svo verði. Og hefur eflaust tryggan stuðning fylgitunglanna, Vinstri grænna og Framsóknar, til lagabreytinganna. Andstaðan Viðreisnar og Samfylkingar fer í taugar ritstjórans í Hádegismóum. Hann spinnur sinn vef í leiðara dagsins.

„Það eru eng­ar ýkj­ur að hjört­un slái í takt í Sam­fylk­ingu og Viðreisn. Flokk­arn­ir hafa fyrst og fremst bar­ist fyr­ir einu máli, því að koma Íslandi inn í Evr­ópu­sam­bandið, en hef­ur sem bet­ur fer orðið lítið ágengt enda fáir aðrir lands­menn sem deila þess­um áhuga,“ skrifar ritstjórinn í forkafla þess sem á eftir kemur.

Það er svo sem rétt hjá ritstjóranum að kalla má flokkana tvo eins máls flokka rétt eins og Sjálfstæðisflokksins, eins manns flokk. Sumir vilja jafnvel meina að kalla megi ríkisstjórnina eins manns ríkisstjórn. Auðvitað er átt við Bjarna Benediktssonar. Íslandsráðherrann sjálfan. Aftur upp í Hádegismóa og til Viðreisnar og Samfylkingarinnar:

Þ
Ritstjórinn:
Aug­ljós er hann í allri umræðu um sjáv­ar­út­vegs­mál þar sem þess­ir flokk­ar standa þétt sam­an í því að reyna að veikja þessa mik­il­vægu und­ir­stöðuat­vinnu­grein þjóðar­inn­ar og sjást hvergi fyr­ir í þeirri bar­áttu.

„Lík­legt er að annað sem sam­ein­ar þessa flokka stafi af þessu sam­eig­in­lega áhuga­máli og má þar helst nefna fjand­skap þeirra í garð ís­lensks at­vinnu­lífs. Þeir gang­ast vita­skuld ekki við þess­um fjand­skap, en hann skín þó víða í gegn. Aug­ljós er hann í allri umræðu um sjáv­ar­út­vegs­mál þar sem þess­ir flokk­ar standa þétt sam­an í því að reyna að veikja þessa mik­il­vægu und­ir­stöðuat­vinnu­grein þjóðar­inn­ar og sjást hvergi fyr­ir í þeirri bar­áttu. Ekki er ósenni­legt að þetta skýrist af því að auðveld­ara yrði að ýta land­inu inn í Evr­ópu­sam­bandið ef hægt yrði að kné­setja sjáv­ar­út­veg­inn fyrst.“

Kommunum á Miðjunni er sérlega uppsigað við að Davíð Oddsson skyggnist undir yfirborðið í vinstrigrautnum sem ríður húsum í stjórnmálaumræðunni.

Davíð skilur manna best að til þess að koma Íslandi í ESB þarf að minnka vægi sjávarútvegsins á Íslandi til þess að auðveldara sé að koma verksmiðjutogurum Spánverja á Íslandsmið. Að því marki vinna báðir fullveldissöluflokkarnir Viðreisn og Samfylking ötullega.

Spurning er hversvegna þessir flokkar sameinist ekki í hagræðingarskyni. Hugsjónalega er ekki hægt að benda á eitt atriði sem skilur þessar samkundur að. Það er líklega bara svo gaman að vera í forystuhlutverkum í miðstjórnum og nefndum  að þeir geta ekki sleppt upphefðinni og flotteríinu sem henni fylgja. Þorgerður og Logi eru formenn, það er aðalatriðið. 

Það er sannleikurinn um Viðreisn og Samfylkinguna, að persónupphefðin er meginmálið í báðum flokkunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 55
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband