Leita í fréttum mbl.is

Ómar Geirsson trúir

gamli komminn af Neskaupsstað á manngert veðurfar. Enginn efi kemst að hjá honum um það að orka sólar sé fasti sem Gtréta Thunberg, Katrín Jakobs, Gunnar umhverfis   og Hjörleifur kommi dansi um.

" Blessaður Halldór.

Geir gerir líka lítið úr kóvid veirunni og telur það alveg sjálfsagt í nafni frelsi einstaklingsins að fólk eins og þú deyir drottni þínum, líklegast vegna þess að hann telur sig hvorki of gamlan, eða með undirliggjandi sjúkdóm.

Afstaða en engin vísindi að baki.

Sem er nákvæmlega meinið með þessa grein sem þú vitnar í.

Jörðin er að hlýna, og það þarf meiri fábjána en þá sem trúa að kovid sé meinlaus flensa, og til vara, að það dugi að taka inn klór til að sigrast á henni, til að afneita því.

Lofslagsvísindin byggja á fræðilegum grunni.

Og þar er líklegast stærsta breytan óvissan eða þekkingarskortur, það er svo margt sem við vitum ekki.

En það sem við vitum, eru áhrif koltvísýrings sem og annarra gróðurshúsloftegunda.

Það er sama fáviskan að afneita því Halldór og að segja að félagsráðgjafi, sem var alltaf með innan við 5,5 í stærðfræði alla sína skólagöngu, geti reiknað út burðarþol brúa, vegna þess að hann er með háskólamenntun.

Það er klár heimska að afneita hlýnun jarðar.

Meiri heimska en þykjast vita til hlítar af hverju hún er að hlýna.  Og þó er það mikil heimska.

Frjálshyggjan á ekki svör við neinu enda er hún gervivísindi, trú sem hefur ekkert með þekktar staðreyndir hagvísinda að gera.  Það hlálega er að hún yfirtók loftslagsumræðuna og lausnir hennar eru lausnir auðsins, að skattleggja viðskiptalífið og fátækt fólk, sama nálgun og að leysa vanda heilbrigðis þjóða, að gera fátæku fólki ókleyft að nýta sér þjónustuna, og þegar það er ekki talið með, þá sé allt í orden.

Íhaldsmenn segja, þetta er vandi og við leysum hann.

Að þú skulir ekki fatta það Halldór, er ekki aðeins vonbrigði fyrir mig, gamla Hriflunginn, heldur líka alla genginna íhaldsmenn líkt og Jón Þorláksson, sem horfði á vatnsfall og sagði, við byggjum brú, í stað þess að segja, leggjum á vegtoll og þá verður engin umferð.

Sem sagði, virkjum vatnsföll og leggjum hitaveitu, öllum til heilla.

Öllum til heilla Halldór.

Frjálshyggjan sagði, af hverju öll þessi útgjöld, útvaldir geta fengið þetta fyrir miklu minni kostnað.  En þegar Jón hafði þetta í gegn, þá var andsvar hennar, einkavæðum þetta og stórhækkum afgjaldið, þegar Jón sagði, ég gerði þetta svo sjómannsekkjan (þessi orð eru til) gæti fengið yl og ljós líkt og kaupmaðurinn, þá var sagt við hann; kóvid hvað, er það bara ekki sparnaður að losna við aldraða sem og hið íþyngjandi fólk sem er með undirliggjandi sjúkdóma.

Það er skýring á því Halldór að það er munur á íhaldsmönnum og frjálshyggjumönnum, á grósku lífsins og ýldu fúapytta.

Við lifum þá tíma að það er ekkert val þar á milli.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson,"

 

Þarna sýnir þú Ómar af þér meiri trúgirni en ég hefði á Þig trúað. Þú neitar því að sólin kunni að vera áhrifaþáttur í hlýnun sem engionn veit hvort er akammvinn eða langæ.

Allt annað eru bara billegir brandarar hjá þér um Jón Þorlákssonsem var líklega einn gáfaðasti maður sem uppi hefur verið á Íslandi. Hann myndi hiklaust geta lesið á hitamæali en honum dytti ekki í hug að segja að sá aflestur hlyti líka að gilda fyrir næstu ár. Hann leitaði ávallt oraaka hlutanna og dró alyktanir af þeim. Hann myndi aldtrei hafa alhæft dellu eins og þú og samkommi þinn Hjörleifur Gutt gera.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ef þvaðrið í þessum Ómari Geirssyni væru einu röksemdir hlýnunarsinna þá myndu nú fáir taka mark á þeim held ég. Þetta eru bara einhverjar staðhæfingar út í loftið í bland við þvætting sem ekki kemur málinu við.

Þorsteinn Siglaugsson, 10.7.2020 kl. 20:26

2 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Eitt er að fá kovid en annað að fá það á heilann eins og Ómar. Það leið máske ekki til dauða en vitfirring skammæ eða lengri fylgir. 

Ómar hefur skrifað eitt eða fleiri blogg á dag um flensuna með algerlega hjaralaus offorsi, þar sem hann kallar alla fífl og fávita sem stjórna viðbrögðum eða hafa aðra sýn.

Veit ekki hvað honum gengur til í skelfingu sinni, en máske vil hann læsa alla inni og skella landinu í lás og leyfa okkur að fara óafturkræft á hausinn.

Þakka öllum vættum að hann ræður ekki ferð í þessu. En áfram heldur æsingurinn þótt allir brosi með sér að vitleysunni og allt þetta blek hans renni gagnslaust til sjávar.

Ég tek undir ofanritaðann að hann ætti að lesa bók Michael Shellenberger Apocalypse never. Ef hann efast um manninn, þá getur hann lesið um feril hans sem aktívista í umhverfis og loftslagsbreytingarmálu. Tekur mínútu að ná í hana á Kindle þar sem hún er í 5-6 sæti af öllum bókum veraldar.

Hann má svo í dauða tímanum finna myndina Planet of the humans, sem er framleidd af engu minni aktívista Michael Moore. Þar er goðsognin um endurnýtanlega og umhverfisvæna orku, sem lausn á loftslagsvenda tætt í sundur. Báðir þessir menn trúa heitt á hlýnun og berjast fyrir loftslagsmálum.

Legg til að Ómar andi rólega í bréfpoka, leggi frá sér pennann um stund og lesi smá og horfi.

Jón Steinar Ragnarsson, 11.7.2020 kl. 01:24

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

(Bókin!Auðvitað,,minnir að hún sé á Þýsku,-þetta er bara fyrir þig núna.) 

Helga Kristjánsdóttir, 11.7.2020 kl. 15:20

4 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Halldór minn.

Alltaf gaman að fá haus á pistli í höfuð  á sér, en þú hefðir alveg getað látið seinni athugasemd mína fljóta með, þar sem ég taldi misskilning þinn stafa af því að þú hefðir ekki lesið athugasemd  mína nema á stangli.

Svo ég spyrji þig á plein íslensku, hvað í fjandanum finnur þú því stoð í orðum mínum að ég vit ekki að sólin hafi áhrif á hitafar jarðar??

Ég er aðallega að hnýta í lausnir frjálshyggjunnar sem hafa yfirtekið viðbrögð siðaðra samfélaga við loftslagsvánni, bæði með því að loka grimmt fyrirtækjum á Vesturlöndum og flytja þau í mengunarbæli glóbalvæðingarinnar, en samt aðallega með því að leggja til skatta á efnahaginn svo hann geti ekki fjárfest í nýrri og mengunarminni tækni.  Síðan eru sömu skattarnir notaðir til að kúpla tekjuminnstu hópum, sem þetta sama skítapakk er nýbúið að svipta atvinnunni, út úr daglegu samfélagi því allt sem viðkemur orku og samgöngum verður svo dýrt eftir alla loftslagsskattana.

Hagfræði andskotans heitir hagfræði andskotans Halldór því hún kemur öllu til andskotans.

Svo minntist ég á gegnheilan genginn íhaldsmann sem nýtti hugvit sitt og þekkingu til að færa samfélaginu ljós og hita, líka þeim fátæku, sem teldist vera dauðasök hjá frjálshyggjunni í dag.

Íhaldsmenn finna lausnir á vanda sagði ég þér, frjálshyggjan magnar upp múgæsingu til að geta nýtt sér vandamálin til að arðræna venjulegt fólk, og ná ógnarvaldi yfir framleiðslu vestrænna samfélaga, með því að skattleggja alla framleiðslu út úr landi og þá er eini valkosturinn þrælabúðir alþjóðavæðingarinnar eins og berlega kom í ljós í kovid faraldrinum, það er varla stakur hlutur framleiddur lengur frá grunni í Vesturlöndum, og menn sjá þetta ekki og snúast til varnar.

Hvað er eiginlega að ykkur borgarlegum íhaldsmönnum??

Svo hnýtir þú í mig greyið dauða saklausan.

En ég skal ítreka sem blasir við fólki með heilbrigða skynsemi; það eina sem er hægt að rífast um varðandi lofslagið, er hvort sé heimskara, að afneita hlýnun að mannavöldum, eða halda því fram að við vitum allt um loftslag og þróun þess.

"En að afneita hlýnun jarðar af mannavöldum er valkvæð heimska sem aðeins sá gerir sem hefur hagsmuni af öðru.  Í þeirri fullyrðingu felst ekki að öll hlýnun jarðar sé af mannavöldum, enda veit það enginn, eða hvort við getum verið á því skeiði að hlýnun af okkar völdum sé að hægja á því ferli sem kennt er við ísöld. Höfum heldur ekki hugmynd um það.".  Höfundur ekki ókunnugur.

Eins og ég sagði þér Halldór minn, nýttu tækifærið og farðu út í sumarið áður en kóvid skepnan kemur aftur.  Ég fór út klukkan 9 og er nýkominn heim, úr sólinni og fótbolta uppá Héraði.

Sem betur fer tókst óvitunum ekki að stöðva þá ánægju, og Héraðið og Austfirðirnir er fullir af ferðamönnum.

Innlendum.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 11.7.2020 kl. 20:00

5 Smámynd: Ómar Geirsson

Alltaf í boltanum Jón minn.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 12.7.2020 kl. 09:59

6 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Hver er að afneita hlýnun jarðar, ef hún hlýnar? 

Ég þekki engan. 

Skrifað er, að mælirinn á Stórhöfða í Vestmannaeyum hafi allmennt staðið í stað í 90 ár.

Þar eru engin heit hús, engin tré, ekkert skjól, ekkert malbik til að safna hitanum, engir bílar í gangi og eru þá hitagjafar, út um allt, engir bílar að hitna í sólargeislunum, og allt skilar hitanum út í andrúmsloftið.

Mælar sem eru í skjóli af trjám,  hlýjum  húsum, malbiki sem sýgur í sig hitan, sem þá fer út í andrúmsloftið og fullt af bílum, sem virka sem hitagjafar eru út um allt.

Einnig taka bílarnir sólargeislana og bíllinn hitnar, og hann skilar hitanum út í andrúmsloftið.

Hlýnun og kólnun hefur stanslaust skifst á í gegn um tíðina.

https://jonasg-egi.blog.is/blog/jonasg-egi/entry/2252287/

Egilsstaðir, 12.07.2020   Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 12.7.2020 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 72
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 68
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband