28.7.2020 | 15:41
Skýringar óskast.
Ragnar Þór Ingólfsson skrifar svo:
"
Icelandair group er að stórum hluta í eigu lífeyrissjóðanna en fyrrum forstjóri fyrirtækisins Björgólfur Jóhannsson var einnig formaður SA.
Hjá Icelandair störfuðu einnig Halldór Benjamín Þorbergsson og Davíð Þorláksson sem einnig stýrðu Lindarvatni ehf. (félagi sem reisir lúxushótel á Landsímareitnum). Fyrrum stjórnarformaður Lindarvatns var fjármálastjóri Icelandair group, Bogi Nils Bogason núverandi forstjóri Icelandair group.
Í desember 2014 kaupir Dalsnes ehf. Lindarvatn ehf. sem á Landsímareitinn af Pétri Þór Sigurðssyni hrl. á 930 milljónir kr. samkvæmt ársreikningi Dalsnes ehf. fyrir árið 2014. Sem þýðir að 50% hlutur var 465 milljóna króna virði í viðskiptunum.
Átta mánuðum síðar eða í ágúst 2015 kaupir Icelandair 50% hlut í Lindarvatni ehf. á 1.870 milljónir króna ef marka má skráð virði fjárfestingarinnar samkvæmt ársreikningum Icelandair 2015 en kaupverðið var sagt trúnaðarmál á sínum tíma.
Það þýðir að samkvæmt verðmati Icelandair og kaupverði þess hafði virði félagsins fjórfaldast á aðeins 8 mánuðum.
En hvernig getur virði félags aukist svo mikið á svo stuttum tíma? Ein af ástæðum þess var að Icelandair hotels (Sem var í eigu Icelandair group) gerði 25 ára leigusamning um rekstur hins óbyggða hótels. Þ.e. Icelandair eykur verðgildi félagsins gríðarlega með leigusamningi og kaupir svo helminginn í félaginu á fjórföldu verði.
Icelandair bjó þannig til verðmæti með leigusamningnum og keypti svo Lindarvatn á fjórföldu verði. Af hverju gerði félagið ekki bara leigusamninginn og lét aðra um áhættuna?
Hvað bjó raunverulega að baki?
Allar líku eru á að Icelandair hafi nú þegar tapað 1,87 milljarði króna á fjárfestingunni þar sem framkvæmdakostnaður virðist langt umfram virði og leigusamningur stendur undir. Lífeyrissjóðirnir voru fengnir til að setja 4 milljarða í verkefnið í formi skuldabréfakaupa en sjóðirnir hafa reyndar lýst því yfir að ekki verði settir meiri peningar í verkefnið.
Þannig að milljarðarnir fjórir fóru að mestu í að endurfjármagna skuldir Lindarvatns.
Ljóst er að verkefnið var gríðarlega vanáætlað í tíma og kostnaði og einhverjir hljóta að bera ábyrgð á því. Hverjir og hvernig er verið að fjármagna framkvæmdina í dag?
Framkvæmdir eru keyrðar áfram til að allt líti út fyrir að vera slétt og fellt og í fullum gangi þó öllum hljóti að vera ljóst að hótelið er langt á eftir áætlun samkvæmt samningum um afhendingu.
Okkur ætti nú að vera ljóst af hverju Lindarvatn var tekið út úr viðskiptunum með Icelandair hotels en fnykurinn af verkefninu hefur greinilega fundist alla leið til Asíu.
Þá má leiða að því líkum að SA menn hafi beitt sér fyrir því að lífeyrissjóðirnir keyptu skuldabréf (lánað) í verkefninu í ljósi þess að kjörin sem í boði voru á þeim tíma voru í engu samræmi við gríðarlega áhættu verkefnisins og þá staðreynd að verkefnið var langt frá því að vera full fjármagnað.
Nú vantar að lágmarki tvo til þrjá milljarða til að klára verkefnið, líklega miklu meira.
En aftur að SA. Í desember 2016 kippir Björgólfur (þáverandi forstjóri Icelandair og formaður SA) ábyrgðarmönnum Lindarvatns ehf. og starfsmönnum Icelandair group, þeim Halldóri Benjamín og Davíð Þorlákssyni á nýjan starfsvettvang innan SA.
Bogi Nils fer í forstjórastól Icelandair og við formennsku stjórnar Lindarvatns tekur Árni Helgason lögmaður og fyrrum framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins og fyrrum formaður Heimdallar.
En hans nafn kemur upp við nánari skoðun á snúningnum sem tekinn var á almenningshlutafélaginu Icelandair í kringum viðskiptin með Lindarvatn, en félag (MB2015 ehf.) í hans eigu fékk greiddar 456 milljónir króna í kringum viðskiptin á árinu 2015, sem hlýtur að teljast væn summa fyrir dagsverkið og í hæsta máta óeðlileg. En samtals fóru um 700 milljónir í einhverjar þóknanir í kringum viðskiptin í gegnum þrjú félög sem virðast vera með mjög takmarkaða starfsemi á þessum tíma.
Það væri nú ráð að skatturinn skoðaði málið líka.
Nú vantar að lágmarki tvo til þrjá milljarða til að klára verkefnið, líklega miklu meira.
Hvaðan eiga þeir peningar að koma?
Mun núverandi forstjóri Icelandair group láta klára framkvæmdina, hvað sem það kostar, á kostnað Icelandair, til að almenningur átti sig ekki á því hvernig eftirlaunasjóðirnir okkar, og fyrirtækin í þeirra eigu, eru misnotuð í braski og bralli atvinnulífsins?
Þannig gæti heildartap Icelandair group af verkefninu étið upp megnið af því sem salan á Icelandair hotels átti að skila inn í reksturinn.
Já þetta eru djöfulsins snillingar eins og segir í frægum áramótasöng.
Það er skiljanlegt að SA vilji halda áfram að hafa sjóðina nokkurn veginn útaf fyrir sig svo hægt sé að halda braskinu áfram með peninga og fjármuni launafólks. Í það minnsta án afskipta verkalýðshreyfingarinnar."
Hverjir eru Lindarvatn. Hvernig fékk Pétur Þór Landsímareitinn? Gerðist þetta í raun og veru?
Já, almenningur á rétt á að fá skýringar á þessu máli. Þetta er ekki hægt að þagga niður ef eitthvert traust á að ríkja til Ragnars Þórs, Icelandair og stjórna lífeyrissjóðanna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Miðað við þessa lýsingu er þetta hið skuggalegasta mál. Ragnar Þór er búinn að segjast ætla alla leið með málið. Nú verður hann að standa við stóru orðin.
Þorsteinn Siglaugsson, 28.7.2020 kl. 19:38
Það eru örugglega mörg svona dæmi. Er það ekki einhverskonar mannréttindabrot að taka sparifé landsmanna með valdi og afhenda einhverjum aðilum sem ekkert kunna með þá að fara.
Það er mikið talað um að það þurfi að uppræta spillingu. Til að það sé hægt þá þarf fyrst að komast að því hvar hún verður til. Mér sýnist hún verða nánast eingöngu til hjá opinberum aðilum og lífeyrissjóðum.
Tillaga: Skila sparifé til eigenda og minnka ríkisvaldið markvisst.
Byrjum á að fækka þingmönnum um helming í fyrstu og sjáum hvað gerist. Það er góð hugmynd að fá Birgi Jónsson hjá póstinum til fara í gegnum allt kerfið.
Kristinn Bjarnason (IP-tala skráð) 28.7.2020 kl. 19:40
Það er sífellt verið að hneykslast á að mannréttindabrot og spilling í Kína séu yfirþyrmandi, en eins og nú síðast þetta dæmi sýnir til viðbótar við allt hitt, þá er ástandið hér langtum verra.
Jónatan Karlsson, 29.7.2020 kl. 07:10
RAGNAR ÞÓR INGÓLFSSON virðist vinna, starfa og skilja ábyrgð sína hjá VR. Hann virkar sannur í skoðunum sínum.
Hugsanlega væri einfaldast að leggja niður alla lífeyrissjóði og hver vinnandi maður og kona ættu sinn eigin lífeyrissjóð, Ríkistryggðan innan Seðlabankans undir stjórn "Ragnars Þórs" og fleiri góðra öruggra manna. DÁGÓÐ upphæð eftir 50 ár?.
GÍSLI HOLGERSSON - ICELAND (IP-tala skráð) 29.7.2020 kl. 08:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.