Leita í fréttum mbl.is

Enn einn svikahrappur

er Rósa Björk Brynjólfsdóttir sem kveður kjósendur sína hjá VG og og svíkur umbjóðendur sína eins og Andrés Ingi Jónsson var búinn að gera áður.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur sagt sig úr þingflokki Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs og úr hreyfingunni. Rósa Björk tilkynnti Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og formanni VG þetta í dag.
 

Í yfirlýsingu sem Rósa Björk sendi frá sér nú fyrir stundu segir hún að nýlegir atburðir er varða brottvísun á egypsku fjölskyldunni, sem mikið hefur verið til umræðu síðustu daga, hafi orðið til þess að hún finni endanlega enga samleið lengur með þingflokki VG. 

„Á þeim þremur árum sem VG hefur setið í ríkisstjórn hefur lítið sem ekkert miðað í átt að móta hér nýja stefnu í málefnum innflytjenda og hælisleitenda eða að fylgja mannúðarsjónarmiðum í málaflokknum, sem er þó það sem ríkisstjórnin lofaði. Það er mjög miður,“ segir Rósa Björk í yfirlýsingunni.

Hún segir að í þessu máli sé ekki annað hægt en að taka afstöðu með réttindum barna á flótta. Hún segir að afsögn sín sé ekki einföld ákvörðun, en hún muni áfram vinna af krafti að góðum málum á Alþingi og sérstaklega er varða mannréttindi, umhverfis- og loftslagsmál, kynjajafnrétti og fleira.

Hún segir að aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar í málefnum barna á flótta sé sérstaklega dapurleg og bera vitni um afstöðu sem sé langt frá því sem afstaða VG í þessum málaflokki hafi verið hingað til. Og langt frá því sem lagt var upp með hjá flokknum, bæði í stjórnarandstöðu og fyrir kosningar.

Rósa Björk er annar þingmaður VG sem segir sig úr flokknum á innan við ári, en Andrés Ingi Jónsson gerði það í nóvember í fyrra og hefur síðan verið þingmaður utan flokka. 

Ríkisstjórnin er nú með þriggja manna meirihluta eftir brotthvarf Rósu Bjarkar og Andrésar úr þingflokknum; 33 stjórnarþingmenn á móti 30 í stjórnarandstöðu.

Yfirlýsing Rósu Bjarkar:

Ég hef átt fund í dag með Katrínu Jakobsdóttur, formanni VG, og tilkynnt henni um úrsögn mína úr þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og úr hreyfingunni.

Nýlegir atburðir er varða brottvísun stjórnvalda á barnafjölskyldu sem hefur beðið eftir lausn sinna mála í 25 mánuði og viðbrögð ríkisstjórnar sem VG er í forystu fyrir í því máli, urðu til þess að ég finn endanlega að ég á ekki lengur samleið með þingflokki VG.

Þetta er alls ekki auðveld ákvörðun, sér í lagi gagnvart kjósendum VG og félögum VG í Suðvesturkjördæmi. Ég þakka þeim kærlega fyrir stuðninginn, traustið og samfylgdina síðastliðin ár og vonast eftir því að þau sýni ákvörðun minni skilning.

Ég mun þrátt fyrir þetta halda áfram að vinna af krafti og einurð að góðum málum á Alþingi, sérstaklega er varða mannréttindi, umhverfis- og loftslagsmál, kynjajafnrétti og fleiri góðum málum.

Þetta mál er samt þess eðlis að það er ekki hægt annað en að taka afstöðu með mannúðinni, með réttindum barna á flótta sem hér hafa fest rætur og myndað tengsl. Og taka afstöðu gegn því að íslensk yfirvöld vísi á brott börnum og barnafjölskyldum. Á þeim þremur árum sem VG hefur setið í ríkisstjórn hefur lítið sem ekkert miðað í átt að móta hér nýja stefnu í málefnum innflytjenda og hælisleitenda eða að fylgja mannúðarsjónarmiðum í málaflokknum, sem er þó það sem ríkisstjórnin lofaði. Það er mjög miður.

Sem varaformaður flóttamannanefndar Evrópuráðsþingsins hef ég fengist mikið við málefni fólks á flótta og sérstaklega mála sem varða barna á flótta sem ég hef unnið ötullega að. Í því ljósi finnst mér þessi stefnubreyting og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar sérstaklega dapurleg og bera vitni um afstöðu sem er langt frá því sem afstaða VG í þessum málaflokki hefur verið hingað til og langt frá því sem við bárum fram bæði í stjórnarandstöðu og fyrir kosningar.

Ég óska fyrrum félögum mínum í VG góðs gengis.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir.

Þetta þingfólk virðist halda að það sæki umboð sitt til Guðs eins og danskir arfakóngar.Þetta fólk gefur ekkert fyrir allt sem það áður lofaði kjósendum sínum. Ómerkilegri afstöðu er ekki hægt að hugsa sér. Engar skyldur við einn né neinn bara að láta bera á sér og auglýsa innantóm höfuð sín og skort á siðferði.

Þegar maður býður sig fram fyrir flokk þá ber manni skylda til að fylgja honum til enda. Annað eru hrein svik við þá sem heilluðust til að kjósa flokkslistann með þessu liði á.

Ég sem fyrrum flokkshestur tjái botnlausa fyrirlitningu mína á þessum þingmönnum báðum og vona enginn á þinginu  tali við þessa konu Rósu Björk Brynjólfsdóttur um eitt eða neitt frekar en þennan Andrés Inga Jónsson. Þetta eru bara svikahrappar við kjósendur sína og ekkert merkilegri en það.

Fyrir utan það að vilja fylla landið af óskyldum flóttamönnum og svíkja Ísland í hendur Evrópusambandinu, þá vona ég að pólitískt líf þessa fólks verði ekki lengra.

það er nóg framboð á slíkum ómerkingum á vinstri vængnum.

Svikahrappar eru þessir þingmenn í einu orði sagt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Kannski hún ætti bara að flytja til Egiftalands og bjóða sig fram til þings þar?

Þorsteinn Siglaugsson, 17.9.2020 kl. 22:52

2 identicon

Man enginn eftir aftökum kristinna í "beinni útesendingu" fyrir 10 árum? Auk þess brenna þeir kristnar kirkjur með öllum kristnum innandyra í Guðþjónustu?  Það er ekkert sældarlíf hjá KRISTNUM í löndum MÚSLIMA.

Þessi "innflutti" hópur gegngst aldrei við kristinni trú og okkar siðum í fÁMENNI OKKAR á ÍSLANDI.  Við gerum allt rangt á ALÞINGI og líka í stjórnun KIRKJUNNAR.

FORSETINN og ALÞINGI verða að hafa þjóðkosningu um ofur "innflutta" hælisleitendur ag "öfgahópa",um ESB; SCHENGEN og EES.  

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 19.9.2020 kl. 10:27

3 identicon

Rósa Björk Brynjólfsdóttir sagði sig frá verkum með VG á ALÞINGI vegna vandamála hælisleitenda. 

Rósa Björk vill vinna við alvöru mál, sem skifta miklu máli fyrir ÍSLENDINGA?  

Þessi mikilvægu mál Rósu eru: Mannréttindi, Umhverfis og Loftslagsmál, Kynjajafnrétti og fleiri góðum málum.

Vill einhver stuðning Rósu Bjarkar eða VG? 

GÍSLI HOLGERSSON (IP-tala skráð) 22.9.2020 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418224

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband