Leita í fréttum mbl.is

Ég á Reykjavíkurflugvöll

með þjóðinni allri. Ég var viðstaddur þegar Ólafur Thors forsætisráðherra tók við honum fyrir hönd þjóðarinnar við hátíðlega athöfn 1947.

Hvaðan þessum stjórnmálaskúmi Degi B. Eggertssyni kemur umboð til þess að ráðskast með völlinn og hvaða starfsemi þar fer fram fæ ég ekki skilið.

Sigurður Ingi slær á puttana á honum með bréfi til hans:

" Það er aug­ljós­lega ótíma­bært og and­stætt mark­miðum sam­komu­lags rík­is og borg­ar að fjár­festa í flutn­ingi kennslu- og einka­flugs frá Reykja­vík­ur­flug­velli yfir á nýj­an flug­völl í ná­grenni höfuðborg­ar­svæðis­ins á meðan rann­sókn­ir standa yfir á mögu­legu flug­vall­ar­stæði í Hvassa­hrauni.

Þetta seg­ir Sig­urður Ingi Jó­hanns­son sam­gönguráðherra í bréfi til Dags B. Eggerts­son­ar borg­ar­stjóra, sem dag­sett er 16. sept­em­ber sl. Er ráðherra hér að svara bréfi sem borg­ar­stjóri ritaði hon­um 8. júlí sl. þar sem hann krefst þess að ríkið efni sam­komu­lag og finni „án taf­ar“ nýj­an stað fyr­ir einka- og kennsluflug utan Reykja­vík­ur­flug­vall­ar.

Niðurstaða fyr­ir árs­lok 2024

Sam­gönguráðherra árétt­ar í bréf­inu að það sé skýr sam­eig­in­leg­ur vilji rík­is og borg­ar með sam­komu­lagi frá 2019 að stefna að því að flytja nú­ver­andi flug­starf­semi af Reykja­vík­ur­flug­velli yfir á nýj­an flug­völl í Hvassa­hrauni, reyn­ist það væn­leg­ur kost­ur, þar með talið æf­inga-, kennslu- og einka­flug. Stefnt sé að því að fyr­ir árs­lok 2024 liggi fyr­ir niður­stöður rann­sókna og þá verði hægt að taka af­stöðu til þess hvort byggður verði völl­ur þar.

Loks árétt­ar sam­gönguráðherra í bréfi sínu að sam­kvæmt sam­komu­lagi rík­is og borg­ar frá 2019 skuld­bindi borg­in sig til að tryggja rekstr­arör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vall­ar meðan á und­ir­bún­ingi og gerð nýs flug­vall­ar stend­ur. Ekki verði farið í frek­ari stytt­ing­ar og lok­an­ir á flug­braut­um vall­ar­ins, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þessi í Morg­un­blaðinu í dag."

Njáll Friðbertsson leggur til að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð vallarins. Dagur B.Eggertsson gaf ekkert fyrir meira en áttatíuþúsund undirskriftir fyrir framhaldslífi vallarins og hélt ótrauður áfram eyðileggingarstarfi sínu og Ingibjargar Sólrúnar. Halda menn að slíkur strumpur muni eitthvað skirrast við þjóðaratkvæðagreiðslu?

Dagur þessi er borgarstjóri í Reykjavík án þess að hafa til þess annað lýðræðislegt umboð en persónulega ættartengda óvild Þórdísar Lóu á Eyþóri Arnalds og heldur hún honum við völd þess vegna.Hann sukkar svo með fjárhag Borgarinnar að hún er talin ógjaldfær til frekari laántöku. Meðal annars vegna framkvæmda við hús Dags á Óðinstorgi þar sem sagt er  að hann láti kaupa upp bílastæði fyrir sjálfan sig fyrir opinbert fé.

Þjóðin á Reykjavíkurflugvöll með mér og Dagur B. er að ráðskast með málefni vallarins umboðslaus. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stjórn Reykjavíkur fer með skipulagsvald innan borgarmarkanna. Sama þó Bretar hafi gefið ríkinu einhverja bragga og nokkur tonn af malbiki.

Vagn (IP-tala skráð) 19.10.2020 kl. 11:07

2 identicon

Það er merkilegt þetta samkomulag ríkis og borgar um að "flytja" allt kennslu-og einkaflug á nýjan flugvöll að það er forðast eins og hægt er að nefna hvernig á að gera þetta og ekki eitt orð um kostnaðinn né hver á að borga. Það virðist þó augljóst að borgin er að ásækjast það land sem kallast Fluggarðar. Þar eru fjölmörg flugskýli og er ætlunin að borgin hirði þau bótalaust af eigendum, setji jarðýtuna á þau og selji svo lóðirnar, sér til tekna. Hræddur er ég um að dómsmálin verði mörg og að borgin muni svo tapa þeim, með ómældum kostnaði. Hefðaréttur er ríkur á Íslandi.

Örn Johnson (IP-tala skráð) 19.10.2020 kl. 11:28

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já Halldór, við öll eigum Reykjavíkur flugvöll, og reyndar Dagur líka, en hann getur svosem afsalað sér sínum eignarrétti og þarmeð farið erlendis að finna sér af lagðann her flugvöll frá stríðsárunum til að halda við ergi sínu svo við getum fengið frið fyrir honum með gamla en þarfa flugvöllinn okkar, sem við einfaldlega getum ekki verið án. En Dagur er óþarfur, alveg eins og bragginn og dönsku stráin., eða voru þau ekki dönsk?

Hrólfur Þ Hraundal, 19.10.2020 kl. 13:27

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Þetta verður auðvitað leyst með samningum þegar núverandi valdhafar hafa verið fjarlægðir Meðan þeir eru þarna breytist ekkert.

Halldór Jónsson, 19.10.2020 kl. 14:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418224

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband