27.10.2020 | 11:34
Þörf grein
kollega Sigurðar Oddssonar í Morgunblaðinu í dag.
Hann segir:
"Ráðherrar sem vilja fara að lögum í málefnum hælisleitenda eru ásakaðir um tilfinningarleysi og mannvonsku af lögfræðingum Rauða krossins. Tilgangurinn er að tefja framgang mála með því að móta skoðanir almennings og hvetja til mótmæla. Mótmæla því að hælisleitendum, sem skv. lögum eru ekki hælisleitendur, sé vísað úr landi.
Það er ekki hægt annað en finna til með ráðherrum sem verða fyrir árásum Rauða krossins eftir að Útlendingastofnun hefur komist að niðurstöðu um brottvísun. Ráðherrarnir hafa sjálfir komið sér í þessa stöðu með eftirgjöfum sem kalla á fleiri hælisumsóknir og saga brottvísana endurtekur sig.
Alþingi ber ábyrgð á ástandinu með aðgerðaleysinu. Lausn þessa vandamáls ætti að hafa forgang á brennivín í matvörubúðir og breytingu á nafnalögum. Af ótta við að verða kallaðir rasistar þora fáir að koma ráðherrunum til varnar. Alþingi virðist ekki sjá að með 400-500 miljarða fjárlagahalla og 10-15% atvinnuleysi er ekkert vit í að halda landamærum opnum á grundvelli Schengensamkomulagsins.
Niðurstaðan er að inn streymir fólk sem hefur keypt farseðil aðra leiðina og biður um hæli. Margir sem koma hafa fengið hæli í öðrum löndum og eiga engan rétt á hæli hér. Íslendingur, sem kom frá Sviss í sumar með millilendingu, sagði engan hafa fengið að fara frá borði í Kaupmannahöfn án þess að sýna gilt vegabréf.
Við ættum að fara eins að. Gera flugfélögum skylt að flytja frá landinu á eigin kostnað þá sem við tökum ekki við. Í viðbót við skilyrði um gilt vegabréf ætti að sýna farseðil frá landinu og að farþegi eigi fyrir framfærslu þar til hann fer. Flugvélar fengju ekki heimild til flugtaks fyrr en þetta hefði verið skoðað. Áhrifin kæmu strax fram í því að færri kæmu sem ekki ættu erindi til Íslands og Útlendingaeftirlitið fengi frið til að ljúka þeim málum sem eru í vinnslu.
Allir þessir fólksflutningar byggjast á skipulagðri glæpastarfsemi. Líklega er ódýrast að komast í ofhlöðnum bátum til Grikklands og Ítalíu. Miðað við þau lönd er Ísland, líkt og Saga Class, mikið dýrara og jafnvel innifalið í verði tenging við lögfræðinga Rauða krossins þegar hingað er komið.
Það er dýrt að koma með fjölskylduna í flugi. Þeir sem þannig koma eru í allt annarri stöðu en bátafólkið og nauðsynlegt að kanna bakgrunn þeirra ofan í kjölinn. Hvaðan komu þeir og hvers vegna til Íslands?
Það fyrsta sem ég man eftir Rauða krossinum er frá öskudeginum þegar safnað var í bauk með rauðum krossi. Síðan fylgdist maður með Rauða krossinum senda lækna og hjálp þangað sem voru náttúruhamfarir eða stríðsátök. Nú er Rauði krossinn með tugi lögfræðinga í vinnu og helstu fréttir eru hvernig þeim gengur að tefja mál hælisleitenda. Allt á kostnað skattgreiðenda.
Hvað skyldi heildarkostnaður vera orðinn mikill og hversu mikið hafa lögfræðingar fengið frá Rauða krossinum? Ég meina skattgreiðendum. Ég fór að velta kostnaðinum og forgangsröðinni fyrir mér fyrir nokkrum vikum eftir fréttir um fjáröflun fyrir dreng frá Hornafirði, sem þurfti að komast til læknis í útlöndum. Svo voru nú um helgina sjónvarpsfréttir um konu með MSsjúkdóm sem heilbrigðiskerfið náði ekki utan um."
Mikill meirihluti landsmanna er þeirrar skoðunar að skynsemi þurfi að komast að í málefnum hælisleitenda. Þeir eiga að vera vistaðir í búðum en ekki hleypt tafarlaust á almenning í landinu að óathuguðu máli.
Okkar félagslega kerfi ræður einfaldlega ekki við að ausa velferð til allskyns lýðs sem hingað streymir til að leggjast upp á okkur. Vel stæðir en mögulegir glæpamenn úr hryðjuverasamtökum eru bornir á gullstólum af innlendu æsingaliði sem æpir og skrækir fyrir utan dómsmálaráðuneyti lýðveldisins. Áslaug Arna á heiður skilið fyrir að láta ekki teyma sig endalaust af þessu liði til að kikna í hnjáliðum. Að sama skapi eru störf lögmanna lítt aðdáunarverð sem lifa af því að grafa undan íslenska velferðarkerfinu með múgæsingum sem spila á frumstæðar órökrænar tilfinningar góðhjartaðs en athugunarlauss fólks.
Sigurður Oddsson á þakkir skildar fyrir að vekja athygli á þessum málum með þessari þörfu grein.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:03 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Ha?
Fyrir hvað á Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir "heiður" skilinn?
Að leyfa egypskri fjölskyldu að hafa lög og reglur
að háði og spotti?
Að grafa þannig undan Útlendingastofnun,
en til þjónkunar Semu Erdogan?
Segðu mér Halldór,
hvaða heiður ÁAS á skilinn?
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.10.2020 kl. 14:49
Að öðru leyti á Sigurður Oddsson heiður skilinn,
sem og þú, Halldór, að benda á innflutning
lögfræðingagers Rauða krossins á hælisleitendum.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 27.10.2020 kl. 15:32
En bólar ekkert á greiðslukröfum frá Dómsmálaráðuneytinu til þeirra sem skrifuðu sig á þennan 6.500 manna lista til stuðnings þeim sem átti að vísa úr landi um daginn. Þetta fólk hlýtur að hafa verið að skrifa sig fyrir því að borga reikninginn ? Eða er ég að misskilja tilurð þessa undirskriftalista eitthvað ?
Örn Gunnlaugsson, 28.10.2020 kl. 16:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.