2.11.2020 | 11:11
Af hverju ekki að loka?
landamærum Íslands tímabundið fyrir öðrum en íslenskum kennitölum?
Allar íslenskar kennitölur færu í sóttkví við komuna.Engar flugvélakomur með hælisleitendur eða fótboltalið.
Væri slíkt gert í 2-3 vikur með venjulegum innri skimunum myndi nýgengi smita ekki hríðfalla?
Af hverju er ekki létt á Landspítala með legudeild í Ögurhvarfi hjá ÞG verk?
Er andstaða Svandisar og VG við einkaframtak svona þung á metunum?
Styrmir Gunnarsson veltir vöngum yfir gangi mála:
"Það má merkja af umræðum í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum að gagnrýnin á síðustu aðgerðir ríkisstjórnarinnar er meiri en áður og þá fyrst og fremst úr tveimur áttum. Annars vegar frá hagsmunaaðilum og hins vegar frá þeim sem gagnrýna af hugmyndafræðilegum ástæðum, þ.e. að í aðgerðunum felist takmörkun á athafnafrelsi fólks.
Sambærileg gagnrýni heyrist í öðrum löndum enda í flestum þeirra verið að herða aðgerðir til að koma böndum á veiruna.
Þessi gagnrýni er skiljanleg en engu að síður eru rökin fyrir hertum aðgerðum augljós.
Þjóðir heims eiga engan annan kost en að vinna skipulega að því að koma böndum á veiruna. Það kallar á margvíslegar fórnir hvers og eins og mikinn kostnað fyrir sameiginlega sjóði en sá valkostur að gera ekkert gengur ekki upp. Og að lokum yrði fórnarkostnaðurinn af því að velja þá leið margfallt hærri.
En auðvitað eru umræður um aðgerðir og/eða aðgerðarleysi sjálfsagðar. "
Vonandi styttist í að mótefni finnist.
En verður ekki að herða áður en rætt er um að slaka? Ekki hálfloka eða hálfkáka?
Af hverju ekki að loka áður en talað er um að opna?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 3419714
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 35
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Styrmir hefur enga heildarsýn fremur en flestir. Megingagnrýnin á þessar aðgerðir kemur ekki frá hagsmunaaðilum né er hún byggð á hugmyndafræði frjálshyggju. Hún grundvallast á því að afleiðingarnar af aðgerðunum eru miklu þungbærari en tilefni þeirra.
Þorsteinn Siglaugsson, 2.11.2020 kl. 11:32
Það kom fram á upplýsingafundi þríeykis í morgun að stór hluti af smitum á landamærunum væri vegna pólverja, sem væntanlega hafa flestir íslenskar kennitölur.
Nær væri að hvetja þá til þess að halda sig annað hvort hér eða þar og hætta öllu flandri.
Skyldi annars útgöngubann erlendis ekki gilda um hælisleitendur?
Kolbrún Hilmars, 2.11.2020 kl. 11:59
Pólverar með íslenska kennitölu hafa verið að bera veirunainn i landið i haust eftir sumarfríin í Póllandi, þeir hafa farið í skimun en ekki endilega haldið sig til hlés framm að seinni skimun.Íslenskar kennitölur smita alveg eins og aðrar ef tær fara ekki eftir fyrir mælum yfirvalda milli skimana ef fólk mætir þá til seinni skimunar yfir höfuð
Hallgrímur Hrafn Gíslason, 2.11.2020 kl. 13:28
Landamærin eru ekkert vandamál. Almennir Íslendingar sem telja sig geta haldið partí allar helgar, knúsað í jarðarförum og skroppið í veiðitúra með veika áhafnarmeðlimi eru vandamálið. Þínir líkir eru meiri ógn við heilbrigði þjóðarinnar en hælisleitendurnir. Þetta "hvað kemur mér annað fólk við" viðhorf sem svo oft má sjá á þínum síðum.
Ef þú finnur einhverstaðar sérhæft starfsfólk til að létta á Landspítalanum þá er enginn skortur á húsnæði sem nota má. Mannekkla hefur takmarkað getu Landspítalans en ekki húsnæðisskortur. Starfsfólk einkastofa hefur ekki þá sérhæfingu og er nær gagnslaust til þeirra verka en gæti orðið að gagni eftir nokkurra mánaða þjálfun, þjálfun sem enginn hefur tíma til að veita eins og ástandið er núna. Einkaaðilarnir geta samt lagt sitt af mörkum og farið í verslanir og passað að viðskiptavinirnir spritti sig og noti grímur meðan fitusog og brjóstastækkanir liggja niðri.
Einkaframtakið er óstarfhæft á sumum sviðum nema það hafi Landspítalann til að taka við öllu óvæntu. Meðan Landspítalinn hefur nóg með sig þá getur hann ekki þjónustað einkaaðilana.
Vagn (IP-tala skráð) 2.11.2020 kl. 20:33
Kerran ekki alvitlaus í dag. En ég vek samt athygli á að í Ögurhvarfi er húsnæði sem gæti nýst ef neyð kemur upp
Halldór Jónsson, 2.11.2020 kl. 22:24
En það hlýtur að létta á ef ekki koma hælisleitendur heldur bara okkar fólk.
Halldór Jónsson, 2.11.2020 kl. 22:26
Öll smitin sem eru í gangi núna eru af veirustofni sem kom inn í landið í ágúst. Það myndi því engin áhrif hafa á þá stöðu að loka landamærunum núna löngu seinna.
Samfélagssmit hverfa ekki með lokun landamæra, heldur með innlendum sóttvarnaraðgerðum.
Guðmundur Ásgeirsson, 2.11.2020 kl. 22:30
Já Halldór, hann er ekki alvitlaus þegar hann er í þeim gírnum.
Eiginlega fannst mér hann vera helv. góður.
En ekki segja honum það.
Kveðja að austan.
PS. Megi þinn maður vinna, hann er þó ekki gangandi lík. Svo er betra að hann sé lögmætur lýðskrumari en valdaræningi það er Tyranni.
Ég hef sjaldan sé aðra eins aðför að lýðræðinu þegar fjölmiðlar heims sannmæltust um falsfrétt þar sem Gróa var dregin ofan af baðstofuloftinu og höfð fyrir því að Trump hygði á valdarán með því að neita viðurkenna úrslit kosninga.
Þegar fjölmiðlar gera ekki lengur greinarmun á meintum hugrenningum og raunveruleika, það er eitthvað sem gerist, þá er fokið í ansi mörg skjól trúverðugleikans.
Í besta falli er svona aðför að lýðræðinu, tilraun til að hafa ólýðræðisleg áhrif á niðurstöðu kosninga, það er kosningasvindl á mannamáli.
Ómar Geirsson, 3.11.2020 kl. 08:59
Þessi veira núna þarf ekki að vera endanleg útgáfa. Engin veira er eina tryggingin sem fæst.
Halldór Jónsson, 3.11.2020 kl. 11:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.