Leita í fréttum mbl.is

Voff voff

heyrist líklega frá Evrópusinnunum þegar þeir lesa pistil Gunnars Rögnvaldssonar um bóluefnisklúður Svandisar Svavarsdóttur heilbrigðisráðhera.

Í stað þess að bólusetja alla þjóðina á nokkrum dögum getur það tekið mörg ár í framkvæmd ef hún á að stjórna innkaupunum með 5000 á viku. 

Gunnar segir:

"...Ríkisstjórn Íslands friðar veiruna og fórnar þjóðinni á EES-altarinu. Hún hefur ákveðið að sýna samstöðu með veirunni. Hún er hætt að gæta hagsmuna Íslands en gætir í staðinn hagsmuna togstreitufélags ESB, þar sem heilsu manna er fórnað fyrir hagsmuni hinna fáu og vonlausu - því með öryggi má segja að útópían um ESB hafi sannað sig sem vonlaust og illkynja nýsovéskt fyrirbæri, og sem versta efnahagssvæði sögunnar í hinum þróaða hluta veraldar, miðað við forsendur

Nú má líklega með öryggi segja að nær allir íslenskir stjórnmálaflokkar og flestir alþingismenn nema þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins séu slæmur félagsskapur manna. Við höfum ávallt vitað að vinstriflokkarnir byggja pólitík sína á slæmum kenningum slæmra manna, en nú virðist svo komið að jafnvel Sjálfstæðisflokkurinn, minn flokkur, sé orðin slæmur félagsskapur í sjálfu sér, og þoli ekki lengur að umgangast sjálfan sig vegna vinstrimennsku þingmanna hans, sem hver á fætur öðrum sýna sig sem verandi nytsamir kjánar

EES-samningurinn mun á endanum murka lífið úr þjóðinni og standa einn eftir sem pestarkarlar Brussels. Þingmenn okkar þoldu ekki að umgangast þá umboðslausu mafíu og urðu sjálfir að hálaunuðum vesalingum undir Brussel, eins og raunin varð á nýlendutíma Íslands hinum svarta, undir erlendu valdi og ofríki

Þetta er nú meiri hryllingurinn. Evrópusambandið og tenging Íslands við það (EES) er að breytast í þriðja heims fyrirbæri eins og Sovétríkin voru, og skýrir það auðvitað áhuga vinstrimanna á Evrópusambandinu frá og með 1991. Þeir sáu náttúrlega strax að hið gamla EEC/EB-tollabanalag breyttist þá í nýtt yfirríkis-sovét þegar það varð að ESB með Maastrichtsáttmálanum það árið. Þá fyrst hoppuðu vinstrimenn um borð og tóku Evrópusambandið yfir og gerðu það að framhaldsríki hinna nýföllnu Sovétríkja kommúnista. En nytsamir kjánar hoppuðu auðvitað með þeim um borð í nýja sovétið, eins gerst hefur í sögu allra sovétríkja mannkyns

Við erum í virkilega vondum félagsskap með EES-samningnum. Þeir sem segja annað eru einungis nytsamir kjánar - og sannir bjánar"

VOFF VOFF verður líklega hávært frá vissum Evrópusambandstrúarhópum.

Og Morgunblaðið er á því að eitthvað sé að hjá ríkisstjórninni:

"Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur tekið öflun og dreifingu bóluefnis inn á sitt borð og varði gærdeginum í fundahöld og símtöl í von um að tryggja Íslendingum nægt og tímanlegt bóluefni. Forsætisráðuneytið hefur varist allra frétta, en heimildir Morgunblaðsins herma að Katrín hafi í gær meðal annars átt fjarfund með Angelu Hwang, framkvæmdastjóra hjá lyfjarisanum Pfizer, í þessu skyni. Fyrirhugaðir eru frekari fundir, m.a. með stjórnendum Moderna. Í gærmorgun átti Katrín jafnframt símafund með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), sem fullvissaði forsætisráðherra um að fyrstu bóluefnisskammtar Íslands bærust í tæka tíð í samræmi við samninga. Síðar um daginn veitti Lyfjastofnun Evrópu leyfi fyrir bóluefni Pfizer. Í gærkvöldi tilkynnti Lyfjastofnun Íslands svo að hún hefði veitt bóluefninu skilyrt markaðsleyfi.

Áhöld um bólusetningu

Undanfarna daga hefur verið mikil umræða um ráðgerðar bólusetningar við kórónuveirunni á Íslandi, en sóttvarnalæknir og heilbrigðisráðherra hafa ekki verið á einu máli. Um helgina sagði Bloomberg svo frétt af því að Ísland stæði öðrum Evrópulöndum langt að baki hvað varðaði skammtafjölda miðað við höfðatölu. Heilbrigðisráðuneytið bar þær fréttir til baka og sagði Ísland hafa tryggt sér mikið magn bóluefnis frá bæði AstraZeneca og Pfizer, en hins vegar kom þar ekki fram neitt um hvenær bóluefnið kæmi. Vert er að hafa í huga að von der Leyen ræddi aðeins um fyrstu skammta, en ekki um framhaldið, svo þar liggur ekkert fyrir um tímalínuna heldur. Eftir því sem næst verður komist er ekkert fast í hendi annað en þeir 2.950 skammtar á viku sem hingað eiga að berast næstu 13 vikur.

Hitnar undir ráðherra

Aukinnar gagnrýni hefur gætt í garð Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra síðustu daga, ekki síst vegna misvísandi upplýsinga um bólusetningu, en þau mál voru rædd á Alþingi á föstudag. Þingmenn, bæði í stjórn og stjórnarandstöðu, sem Morgunblaðið ræddi við, telja að frumkvæði forsætisráðherra nú sé til marks um að þeirra efasemda gæti víðar"

VOFF VOFF heyrist liklega frá Evrópusambandspostulunum sem trúa á EES heitar en á biflíuna!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 3418435

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 69
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband