Leita í fréttum mbl.is

Trump trónir á toppnum

eftir að Demokratarnir létu erkikellinguna Pelosi fífla sig til að samþykkja embættissviptingu á Forsetann. Sem er auðvitað rakið fíflarí þar sem Öldungadeildin kemur ekki saman fyrr en 19. Janúar eða daginn fyrir embættistöku hennar manns Bidens. Og þá á eftir að setja fund.

Hversu vitlausir geta þessir Demokratar ekki orðið í ofstækinu?

Tómas Möller("Fólk er fífl") er kominn langt á þroskabrautinni þegar hann prédikar á Fréttablaði Hafskips Helga:

"Vinsælt jólalag sem Pálmi Gunnarsson syngur við - texta Magnúsar Eiríks - sonar byrjar svo:

„Út með illsku og hatur“.

Sú ósk virðist vera að rætast. Nú er tæp vika til forsetaskipta í Bandaríkjunum.

Síðustu fjögur ár þar í landi hafa einkennst af hatursorðræðu Trumps sem endaði með mannskæðri innrás í þinghúsið í Washington af haturs - fullum fylgjendum hans. Trump hefur allan tímann alið á hatri milli þjóðfélagshópa og haldið uppi hvatningu til sundrungar, kynþáttafordóma og ofbeldis.

Þarna endurtekur sagan sig þar sem leiðtogar fyrri alda hafa nýtt sér sundrungu og hatur sér til framdráttar. Nægir að nefna gyð - ingahatur, andúð á innf lytjendum og þjóðfélagshópum þar sem hópum er skipað í „við og þið“. Trump hefur átt sína áhangendur um allan heim en þó síst á Íslandi þar sem aðeins um 4% landsmanna styðja hann samkvæmt nýjustu skoðanakönnun.

Hvað veldur því að hann hefur minnst fylgi í heiminum hér?

Ég tel að skýringin felist einmitt í því sem skiptir mestu máli þegar við viljum forðast hatur, sundrungu og kynþáttafordóma ráðamanna. Svarið felst í öflugu menntakerfi og menntun! Við þurfum að efla menntun á öllum stigum um sögu haturs - hvetjandi leiðtoga, mikilvægi samúðar, miskunnsemi og umburðarlyndis og ekki síst að kenna fólki að elska náungann eins og sjálfan sig. Næsta setningin í jólalaginu hans Magga Eiríks er „inn með gleði og frið“.

Látum það verða hvatningu á nýju, friðsælla og haturslausu ári"

Já það verður stundum að beygja sig áfram og sætta sig við fíflsku annarra. Trump fékk 74 milljónir atkvæða í kosningunum frá þeim sem falla hugsanlega undir hina sígildu skilgreiningu Tómasar Möllers um fólkið.

En Trump trónir á toppnum eins og venjulega og stjórnar traffíkinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

TRUMP er þjóðernissinnaður og berst fyrir AMERIKU og atvinnumál fjölskyldufyritækja og almennings.  Hann vill ekki vera í landamæralausu landi og byggði 450 mílna landamæravegg á 4 árum. Þetta tryggir öryggi og atvinnumál innan AMERIKU. Samningar voru gerðir í Austurlöndum meðal Araba og AMERISKA sendiráðið flutt til Jerusalem á "kostakjörum". Það var mikill uppgangur í tíð TRUMPS síðustu 4 árin. Fjármál á uppleið og lítið atvinnuleysi. Svartir og Mexikanar hafa aldrei haft það betra og "styðja" TRUMP og hans uppbyggingu.  

TRUMP hefur barist á móti "feninu" á þingi og mun áfram fara þann veg með 74miljónir sannra þjóðernissinna frá öllum heimshornum innan USA.

TRUMP er ekki popúlisti, en þjóðernissinnaður og stoltur af gömlu AMERIKU, vísindamönnum og framleiðendum, sem hafa ómælt sent öll sín vísindi og uppfinningar til vinnslu í Kína. TRUMP vill vinnuna, uppfinningar og vísindin aftur heim og tryggja AMERIKU í fyrsta sæti.

Margir lýsa skoðunum sínum á kappanum í orðum í fréttatímum, samtölum og fréttaþáttum . Skömm er af þessum skoðunum "þekktra" íslenskra popúlista, sem ekki hafa tærnar þar sem TRUMP hefur hælana.

Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 14.1.2021 kl. 13:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 3418281

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 62
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband