Leita í fréttum mbl.is

Ga ga!

Birgir Þórarinsson gerir athugasemdir við frumvarp Félagsmálaráðherra um hælisleitendur. Enda ekki að ástæðulausu.

Það er eins og að stefna ríkisstjórnarinnar sé að fjölga hælisleitendum til landsins sem allra mest og auka kostnað við móttöku þeirra.

Þvert á stefnu Dana um þessar mundir sme reyna að fækka umsónum um alþjóðlega vernd sem allra mest. Hér eru afleiðingar stefnunnar að fjöldi hælisleitenda er sexfaldur við það sem á Norðurlöndum gerist.Og kostnaður keyrir úr hópi fram eins og enginn sé morgundagurinn.

Á ég sem Sjálfstæðismaður að styðja þessa þróun? Þróun sem mér hreinlega finnst vera GA-Ga!

Birgir Þórarinsson alþingismaður Miðflokksins skrifar eftirfarandi í Morgunblaðið í dag: Bloggari leyfir sér að breyta letri á stöku stað til að vekja athygli á kjarnaatriðum.

"Félagsmálaráðherra Framsóknar hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um málefni innflytjenda. Megintilgangur frumvarpsins er að samræma móttöku flóttafólks.

Í greinargerð með frumvarpinu er setning sem vekur athygli en þar segir: „Með samræmdu móttökukerfi er unnið að því að tryggja flóttafólki jafna þjónustu óháð því hvernig það kemur til landsins.“

Hér þarf að staldra við og skoða hvað þetta þýðir í reynd. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á síðasta ári en hlaut ekki afgreiðslu. Ljóst er að ríkisstjórnin ætlar sér að koma málinu í gegnum þingið fyrir kosningar.

Í umræðunni spurði ég ráðherra hvort með þessu frumvarpi væri enginn greinarmunur gerður á kvótaflóttamönnum og hælisleitendum sem fá dvalarleyfi, þegar kemur að þjónustu. Svaraði ráðherra því að þeir myndu fá sömu þjónustu.

Kvótaflóttamenn og hælisleitendur ekki það sama

Verði frumvarpið að lögum munu hælisleitendur með dvalarleyfi og kvótaflóttamenn fá sömu þjónustu. Hér er um grundvallarbreytingu að ræða sem mun hafa veruleg aukin fjárútlát í för með sér fyrir ríkissjóð.

Á síðasta ári tók Ísland á móti 85 kvótaflóttamönnum en 631 hælisleitandi fékk dvalarleyfi. Meðalkostnaður vegna móttöku kvótaflóttafólks fyrir einhleypa er um 6 milljónir á ári.

Það er sérkennilegt að yfirfæra réttindi kvótaflóttafólks yfir á hælisleitendur. Þetta er tvennt ólíkt. Fólk sem við samþykkjum að taka við og sjá um og síðan fólk sem kemur hingað á eigin vegum, sem ekki er ljóst hvort uppfyllir alþjóðleg skilyrði þess að vera flóttamenn.

Ísland þekkt fyrir bestu þjónustuna

Hér eru nokkur dæmi um þjónustuna sem yrði þá í boði fyrir hælisleitendur:

Greidd er framfærsla í eitt ár, desemberuppbót og barnabætur í eitt ár.

Greitt er fyrir leikskóla, 100 þúsund á mánuði í 11 mánuði,

skólamáltíðir í 9 mánuði,

frístundaheimili í 9 mánuði,

styrk við skólabyrjun og eingreiðslu fyrir íþróttir og tómstundir.

Meðlag í tvo mánuði.

Framhaldsskóli í tvær annir.

Heilbrigðisþjónusta og lyf í sex mánuði.

Tannlæknir 115 þúsund. Sálfræðiþjónusta fyrir 264 þúsund á einstakling og önnur sérfræðileg ráðgjöf í 12 mánuði.

Stuðningur heim er greiddur, um 100 þúsund á fjölskyldu.

Handleiðsla starfsmanna er greidd, 390 þúsund á fjölskyldu.

Túlkaþjónusta, 270 þúsund á fjölskyldu.

Húsaleiga í 2 mánuði og húsnæðisbætur sveitarfélags í 12 mánuði.

Sími og net í 1 mánuð.

Strætókort.

Einnig gera stjórnvöld samning við Rauða krossinn um þjónustu. Nemur kostnaðurinn um 600 þúsund á einstakling og er það viðbót við það sem að ofan greinir.

 

Fjöldi umsókna um hæli á Íslandi myndi margfaldast

Íslendingar hafa tekið vel á móti kvótaflóttamönnum en þeir koma iðulega frá stríðshrjáðum löndum. Við eigum áfram að sinna þessum hópi vel og aðstoða við aðlögun þeirra í íslensku samfélagi. Hafa ber þó í huga að fyrir hvern einn flóttamann sem hingað kemur er hægt að aðstoða 12 á heimaslóðum. Með því að veita hælisleitendum og kvótaflóttamönnum sömu þjónustu er gengið of langt.

Kostnaðurinn fyrir ríkissjóð yrði verulegur.

Skilaboðin berast hratt út í heim og viðbúið er að umsóknir um hæli á Íslandi muni margfaldast og skipta þúsundum á skömmum tíma. Enda Ísland þekkt fyrir að veita eina bestu þjónustuna í málaflokknum.

Dómsmálaráðuneytið hefur gefið það út að fjöldi umsækjenda um alþjóðlega vernd á Íslandi sé orðinn einn sá mesti í Evrópu og langmestur á Norðurlöndum miðað við höfðatölu.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur haft málaflokkinn á sinni könnu um árabil og er greinilega ófær um að leysa vandann.

Frumvarp félagsmálaráðherra er haldið verulegum ágöllum. Það getur einungis til um kostnaðarauka við tvö stöðugildi hjá Fjölmenningarsetri upp á 24 milljónir króna árlega. Þegar kostnaðaraukinn verður í reynd milljarðar króna og við myndum missa málaflokkinn úr böndunum.

Miðflokkurinn leggst gegn frumvarpinu í núverandi mynd."

Ætlast Sjálfstæðisflokkurinn  til þess að þessi stefna verði keyrð ofan í kok á flokksmönnum eins og Birgir Ármannsson og hans nótar gerðu í tilviki 3.Orkupakkans? Hversu mikið fé á að renna í gegn um Rauða Krossinn til íslenskra lögfræðinga á borð við Helgu Völu alþingismanns og Magnúsar Norðdahl fyrir að þvæla mál og auka kostnað?

Hvar á flokkshollusta Sjálfstæðismanna að enda í svona Ga-Ga máli?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég tel hugsun aumlegrar vinstri stefnu vera copyu/afrit af stefnu demokrata í Ameriku varðandi innflutning á hælisleitendum frá öllum heimshornum. Eru demokratar og vinstri menn á íslandi að kaupa sér atkvæði til framtíðar?

Hælisleitendur hafa litla/illa skoðun á okkar Kristna samfélagi frekar en í Evrópu og á Norðurlöndum/ÍSLANDI. Er kynjarétturinn í háflugi á Alþingi við að rústa fámenni okkar með blóði og tárum?

Afþökkum jarðgöngin á Suðurlandi, sem hundruð manna hafa hafnað til vegamálastjóra. Borgum "first class" miða fyrir þá sem vilja fara aftur til "heimalandsins" ásamt 3miljóna farareyri.

Til að ná tökum á Kristinni Evrópu og Norðurlöndum skal byggja stórborg á einum stað þarna suðurfrá fyrir miljónir hælisleitenda. ESB Evrópa og Norðurlöndin taka þátt í þessu ásamt AMERIKU. TRUMP kemur að nýju og hans réttu hugmyndir!

Það verður að hugsa þessi mál að nýju fyrir Landann? Skál.  

Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 2.2.2021 kl. 15:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 3418409

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband