Leita í fréttum mbl.is

Atvinnumaður

var greinilega að verki í Rauðagerði. Maður er búinn að lesa það mikið um mafíur að þessi maður er ekki að gera þetta í fyrsta sinn. Þó eyðir hann miklu fleiri skotum en virkilega æfðir menn gera sem láta eitt eða tvö hnakkaskot duga. Bendir til þess að hann sé ekki í fremstu röð atvinnudrápara.

En það er fráleitt að stöðva rannsókn á honum við þetta eina mál.Hann býr yfir mörgu fleira.

Hvaða leið kom hann inn í landið til að vinna verkið?

 

Gálginn gæti beðið eftir þessum manni í öðrum löndum svo við þurfum ekki að ala hann til frambúðar.

Og er ekki kominn tími til að að skýra frá nafni Íslendingsins svo ákveðinn blásaklaus atvinnumaður í fíkniefnum  liggi ekki undir stöðugum grun?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Yfirgripsmikil þekking þín á mafíum, lífríki tjarna í Tasmaníu og framleiðslu örgjafa koma mér sífellt á óvart. Þú ert greinilega engu minni atvinnumaður en gaurinn sem skaut réttan eða rangan mann, þurfti að tæma byssuna til að vera viss um að hitta eitthvað, slapp við að skjóta sjálfan sig í fótinn fyrir eitthvað kraftaverk og skildi eftir vitni og vísbendingar sem leitt hafa til handtöku átta samverkamanna. Hann skyldi þó ekki hafa lært verkfræði? En það er eina greinin sem ég veit um þar sem það þykir fagmennska að vera pissblautur eftir að hafa migið hressilega upp í vindinn.

Það er þó einn stór plús í þessu máli. Miðflokks og þjóðfylkingarmenn læstu að sér og hafa ekki komið út undir heiðan himin síðan. Gallinn er að þeir hafa nettengingu og hafa vælt og grenjað eins og hrædd börn í kommentakerfum og víðar. En höfuðstöðvar mafíunnar voru víst í Hveragerði, en það dugar víst ekki lengur til að róa heimaalda að ódæði hafi verið framið af utanbæjarmanni.

Vagn (IP-tala skráð) 20.2.2021 kl. 00:16

2 identicon

ÍSLAND þarf eigin landamæri, enn ekki stjórnleysi ESB Evrópu. Ef menn vilja flytja til ÍSLANDS erlendis frá, skal sækja um innan sendiráða okkar erlendis.

Ég sakna Morgunblaðsgreina konunnar frá Sauðárkróki, sem allir lásu varðandi innflutning erlendra erfiðleika hópa.

Aðvörun þín Halldór, er ákall til "alvöru" stjórnmálaflokka og kosningaloforða varðandi næstu kosningar.

Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 21.2.2021 kl. 10:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 3418224

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband