Leita í fréttum mbl.is

Orð í tíma töluð

kom afrá Birni Bjarnasyni:

"

Jafnaðarmenn í Danmörku styrktu stöðu sína mikið með því að draga skarpa línur í útlendingamálum. Mette Frederiksen, forsætisráðherra Dana, heldur fast við þessa hörðu útlendingastefnu samhliða því sem hún lætur sitt ekki eftir liggja til að tryggja dönsku þjóðinni sem bestan aðgang að bóluefni.

Fimmtudaginn 4. mars fór danski forsætisráðherrann í 3.000 km langa flugferð til að hitta Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og Sebastian Kurz, kanslara Austurríkis, í Jerúsalem og leggja á ráðin um sameiginlegan þróunarsjóð í þágu bóluefnis. Hún tók þar höndum saman við einn mesta hægrimanninn í stóli forsætisráðherra innan ESB til að brjótast undan Brusselvaldinu í bóluefnamálum auk þess sem heimsókn þeirra Kurz er talin styrkja Netanyahu í kosningabaráttu í Ísrael.

Nú fer Mette Frederiksen í fjögurra daga sóttkví eftir ferðalagið og danskir stjórnmálamenn í hennar flokki og stuðningsflokkum stjórnarinnar auk stjórnarandstöðunnar meta hvernig við framtaki hennar skuli brugðist. Burst hefur verið dregin úr nefi ESB-valdamannanna í Brussel.

Israel-denmark-austria-health-virusBenjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, Sebastian Kurz, kanslari Austurríkis, og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, í Ísrael fimmtudaginn 4. mars 2021.

Hreyfing kemst ekki á hluti nema einhver hreyfi við þeim. Diljá Mist Einarsdóttir, aðstoðarmaður utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra og fulltrúi utanríkisráðuneytisins í flóttamannanefnd, vék að því í grein í Morgunblaðinu fimmtudaginn 4. mars að við greiningu í utanríkisráðuneytinu á kostnaði við þjónustu við hælisleitendur og kvótaflóttafólk hefðu meðal annars komið í ljós vandkvæði vegna þess „að hælisleitendur fá nokkrar mismunandi kennitölur við komuna til landsins, t.a.m. eina frá Útlendingastofnun og aðra frá lögreglunni“. Vegna þess sé nú „illmögulegt að hafa fulla yfirsýn yfir útgjöldin“.

Þá segir Diljá Mist að ýmsir útgjaldaliðir vegna hælisleitenda hafi vakið spurningar og segir: „Sem dæmi um útgjaldaliði sem voru yfirfarnir má nefna lyf, sálfræðiþjónustu, sjúkra- og iðjuþjálfun, gleraugu og heyrnartæki og aksturskostnað. Er þá ótalinn kostnaður við framfærslu og húsnæði. Ljóst er að kostnaður við heilbrigðisþjónustu við hælisleitendur er stór útgjaldaliður, en þar með talinn er kostnaður við ýmsa sérlækna.“

Þarna er hreyft vandkvæðum í málum sem snerta grunnþætti samfélagsgerðarinnar, kennitölukerfið og greiðslur vegna sjúkrakostnaðar sem er mjög viðkvæmt mál eins og umræður um samninga Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) við innlenda aðila sýna. Þjóðskrá heldur á kennitöluskráningunni ­– getur verið að það sé gert á þann veg að opinberir aðilar sem leggja kennitölur til grundvallar í störfum sínum verði að hanna eigið kennitölukerfi? Streymir fé sjálfkrafa út á kennitölur úr SÍ? Hér eins og annars staðar verða til svikamyllur í kringum hælisleitendur í því skyni að mjólka opinber kerfi sem veita félagslega aðstoð.

Árið 2019 voru útgjöld ríkisins vegna hælisleitenda hátt í 4 milljarðar ISK en 867 einstaklingar sóttu hér um hæli það ár. Biðlistarnir sem myndast í þessu kerfi eru dýrkeyptir. Þá verður að stytta með skörpum, gagnsæjum reglum og markvissri framkvæmd þeirra."

Það er margt skrafað um hælisleitendamál og yfirgnæfandi fylgi virðist við það að reynt verði að stýra útgjöldunum á einhvern hátt. En stefnan og framkvæmdin er hinsvegar þveröfug. Ekkert virðist nógu mikið eða rausnarlegt þegar kemur að viðurgjörningi við þessa óboðnu gesti.

Hugsanlega hlustar einhver á Björn Bjarnason og hans orð í tíma töluð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 3419716

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband