Leita í fréttum mbl.is

Ósammála Jóni Magnússyni

lögmanni í pistli hans í dag:

"

Er þetta aprílgabb?

Fimmtudaginn 1. apríl 2021 koma Árni Árnason forstjóri og Bjarni Bjarnason tæknimaður heim úr 7 daga vinnuferð til Svíþjóðar. Þeir framvísa báðir neikvæðu PCR prófi, sem sýnir að þeir eru ekki smitaðir af Covid. Í framhaldi af því eru þeir skimaðir við heimkomu og að því loknu handteknir vegna gruns um að þeir séu Covid smitaðir og fluttir nauðugir í sóttvarnarhús skv. valdboði ríkisstjórnarinnar.

Álíka og að framvísa hreinu sakavottorði og vera í framhaldinu úrskurðaður í gæsluvarðhald.

Þeir fá ekki að fara heim til sín í sóttkví heima þó báðir búi vel og rýmilega. Báðir halda þeir, að hér sé um vel útfært aprílgabb að ræða. Hvað annað á vitiborið fólk að halda. En þetta er ekki aprílgabb heldur sóttvarnaryfirvöld komin yfir öll eðlileg mörk skynsamlegrar beitingar sóttvarnarreglna.

Enn er tími fyrir ríkisstjórnina að hverfa frá þessari lögleysu, sem er án nokkurs vafa brot á reglum um meðalhóf, auk þess, sem ákvæði sóttvarnarlaga heimila ekki slíka valdbeitingu miðað við þessar aðstæður.

Er ekki rétt að ríkisstjórnin afstýri þessu aprílgabbi áður en það raungerist?"

Þetta er neyðarástand sem verður að taka á með hörku og alla jafnt hvað sem þeir heita.

Það verður örugglega að bólusetja árlega við Covid19 eins og hverri annarri víruspest inflúensa sem kínverski kommúnistaflokkurinn sendir okkur með belti og braut vegna svínarís sem hann ber ábyrgð á í kínverskum landbunaði.Vesturlönd eiga að beita þá refsingum þangað til að þeir gera eitthvað til að bægja ógninni frá okkur.

Í þetta sinn er ég algerlega ósammála Jóni vini mínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Álíka og að framvísa hreinu sakavottorði og vera í framhaldinu úrskurðaður í gæsluvarðhald."   Maður hefði haldið að lögmaður með lágmarks heilastarfsemi vissi að hreint sakavottorð forðar engum frá gæsluvarðhaldi.

Vagn (IP-tala skráð) 31.3.2021 kl. 11:27

2 identicon

Það verður að gilda ein regla um alla. Keyptar PCR reglur eru ekki öruggar og litakóðar ónýtir?  

Dr. Þórólfur segir óskir sínar og skipanir til Svandísar og núverandi ríkisstjórnar, sem tekur ákvarðanir.

Ég met okkar Þórólf en ekki ævilangan demokrata Dr.Fátsí í USA, sem hleypur úr einu í annað í öllum sínum viðtölum og átelur Donald J.TRUMP, sem bjargaði ofurhraða á lyfjaframleiðslunni frá Pfeiser, Moderna og Johnson á 9 mánuðum, sem venjulega er unnið á 4-5árum. Þökk sé þjóðernissinnanum, president Donald J. TRUMP.

Gísli Holgersson (IP-tala skráð) 31.3.2021 kl. 13:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband