12.5.2021 | 15:19
Eldræða Píratans
Dóru Bjartar í Borgarstjórn.
Svo segir í fréttum:
Átök og eldræða í borgarstjórn: Sjálfstæðisflokkurinn er kýli á samfélaginu
Frá öðrum fundi borgarstjórnar Reykjavíkur.VÍSIR/VILHELMÁtök brutust út á fundi borgarstjórnar í kvöld þegar rætt var um nýbirtan ársreikning Reykjavíkurborgar. Mikil spenna var milli fulltrúa minnihluta og meirihluta þar sem þeir fyrrnefndu gagnrýndu harðlega rekstrarniðurstöðu borgarinnar.
Allt ætlaði þó um koll að keyra þegar Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, gerði lítið úr athugasemdum Sjálfstæðismanna og beindi spjótum sínum rækilega að flokknum í ræðu sinni.
Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík.AÐSENDÉg vil leggja áherslu á og undirstrika að Sjálfstæðisflokknum er ekki treystandi fyrir styrkri fjármálastjórn, hvorki hér né annars staðar. Hans helsta áróðursmarkmið er að láta fólk trúa því að hann sé ofboðslega ábyrgur þegar kemur að fjármálum en hann er það ekki, sagði Dóra Björt í ræðupúlti borgarstjórnar.
Sjálfstæðisflokkurinn og hans stjórnun er ekki ábyrg, ekki heiðarleg og ekki góð. Það sem hefur komið fram í dag er að flokkurinn hefði frekar viljað skera niður en axla þá ábyrgð sem við ákváðum að gera í þessari efnahagskreppu. Jákvæð niðurstaða í Excel skiptir Sjálfstæðisflokkinn meira máli en líf fólks, atvinnustig í samfélaginu eða efnahagsástand samfélagsins, þá vitum við það.
Þá sagði Dóra Björt óábyrgt og skaðlegt að gagnrýna innviðafjárfestingu og leggja til að borgin myndi standa með hendur í skauti í núverandi efnahagsástandi.
Það er í raun algjör vitleysa að Sjálfstæðisflokkurinn standi fyrir ábyrga efnahagsstjórn, hann stendur fyrir sérhagsmunagæslu, hann stendur fyrir spillingu og gæti ekki verið meira sama um velferð einstaklinga. Þetta fyrirlít ég, bætti hún við í eldræðu sinni við misgóðar undirtektir viðstaddra.
Hann stendur fyrir þröngsýni og gamaldags nálgun á efnahagsmál og þar sem hann er við völd veldur hann oft miklum skaða. Sjálfstæðisflokkurinn er í raun kýli á samfélaginu, hann er hreint og beint hættulegur samfélaginu.
Hann stendur fyrir það að gata kerfið okkar svo fjármunir og eignir almennings geti lekið í þeirra eigin vasa. Það er ekki ábyrg fjármálastjórn, sagði hún enn fremur.
Horfa má á fundinn í spilaranum hér fyrir ofan. Ræða Dóru Bjartar hefst þegar fjórar klukkustundir eru liðnar af fundinum.
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins.AÐSENDSagði ræðuna vera drullukast
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins var fyrst til að svara ræðu Dóru Bjartar og kallaði efni hennar skítkast dauðans.
Ekki það að ég sé að halda uppi einhverri vörn fyrir Sjálfstæðisflokkinn en við erum öll fólk hérna og þvílíkt drullukast á einn flokk, bætti hún við áður en hún líkti ummælum Dóru um Sjálfstæðisflokkinn í ræðustól og blaðagreinum við einelti.
Mér finnst þetta ekki boðlegt. Ef við endurspilum þetta lið fyrir lið og orð fyrir orð þá hljóta allir menn að sjá að þetta er ekki mannsæmandi, hvorki hér eða annars staðar.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.VÍSIR/VILHELMÆtti að halda þessu fyrir sig
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, gagnrýndi Pawel Bartoszek, forseta borgarstjórnar, fyrir að leyfa Dóru Björt að fara út fyrir umræðuefni fundarins.
Og að vera með ásakanir og dylgjur sem í raun og veru fer þvert gegn siðareglum okkar og ræða ekki ársreikninginn. Ég vil bara minna á það að við eigum að ræða hérna ársreikninginn og ef það er ekki virt þá getum við bara farið að ræða einhver allt önnur mál hérna undir; umferðarmál, húsnæðismál eða hvað einhver sé vondur í salnum.
Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins, sagði Dóru Björt ganga enn á ný fram með dylgjur og deleríngu úr ræðupúlti borgarstjórnar og það beinist allt gegn einum flokki.
Ef hún hefur þessa persónulegu skoðun þá verður hún að hafa hana fyrir sig. Þetta er ekki boðlegt fyrir borgarstjórn Reykjavíkur. [ ] Þetta ber forseta að stoppa.
Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins í Reykjavík.VÍSIR/VILHELMSýni hvað meirihlutanum líði illa
Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sagði málflutning Dóru vera fyrir neðan allar hellur.
Það er mér algjörlega ótrúlegt að borgarfulltrúi eða forseti borgarstjórnar skuli ekki hafa stoppað þennan orðaflaum sem kemur úr munni borgarfulltrúans.
Það er algjörlega ótækt að menn hagi sér svona, sagði Björn og beindi orðum sínum að Pawel Bartoszek, forseta borgarstjórnar.
Björn Gíslason, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.AÐSENDEyþór Arnalds steig síðar aftur í ræðupúlt borgarstjórnar. Aftur var ræða Dóru til umræðu sem hann sagði vera til skammar.
Ég hefði viljað að málflutningur meirihlutans hafi fjallað meira um ársreikninginn og minna um önnur mál. Mér finnst eftirtektarvert að sjá hvað þeir fulltrúar meirihlutans sem hafa hér talað eru með böggum hildar og greinilega líður illa með þennan ársreikning og þessa stöðu. Það er eina skýringin á því hvernig þeir hafa hegðað sér hérna í dag, það er ekkert annað.
Hér eigum við að tala faglega og yfirvegað um staðreyndir og tölur. Við höfum ákveðið að ræða bara einn hlut hér í dag, það er ársreikningurinn og þeir sem ekki treysta sér til þess eru greinilega að forðast að ræða það sem er til umræðu. Það dæmir sig sjálft, því meiri sem dónaskapurinn og dylgjurnar verða því meira er það staðfest að meirihlutanum líður illa með þessa stöðu, sagði Eyþór Arnalds á fundi borgarstjórnar í kvöld.
Tengdar fréttir
Rekstrarniðurstaðan neikvæð um nærri þrjá milljarða
Rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta Reykjavíkurborgar árið 2020 var neikvæð um tæpa 2,8 milljarða króna en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á tæpa tólf milljarða króna.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:51 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 3419716
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 37
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Dóra B Guðjónsdóttir virðist á hröðum flótta frá eigin verkum. Skiljanlegt.
Heimirr (IP-tala skráð) 12.5.2021 kl. 22:06
Ég man alltaf þegar DO var borgarstjóri. Sennilega eitt best rekna tímabil Reykjavíkurborgar. Þar var borgin rekinn næstum hallalaus, ár eftir ár. Allar framkvæmdir á vegum borgarinnar var með heill borgarbæua í fyrirrúmi. Þá voru Reykvíkingar taldir með ánægðustu borgarbúum Norðurlanda og nutu þess með lægri fasteigna sköttum og útsvari. Enginn hörgull var á leikskóla plássum og var vitað þá eins og í dag að fararskjóti fjöldskyldna væri bíll, en ekki reiðhjól eða strætó.
Það er annað mál í dag. Allar framkvæmdir eru gerðar gegn vilja og hagsmunum borgarbúa. Gæluverkefni og draumórar ráða för og skiptir engvu máli hvað það kostar borgarbúa. Útsvar og fasteigna skattar eru í algjörum toppi og dugar ekki til vegna gríðarlegs rekstrarhalla á borginni. Mun taka mörg ár fyrir borgarbúa að ná til baka sem þeir höfðu fyrir dags/gnarr grínið. Eignarrétturinn er fótum troðin með skipulagsklúðri og þú færð engvu ráðið. Forræðishyggjan er algjör, þú skallt hafa bláberjalyng á pallinum hjá þér, hvort sem þér líkar betur eða ver. Borgarlínan mun svo toppa geðveikina og meiri líkur en minni að Reykjavíkur borg verði svift fjárræð og sett á gjörgæslu.
Sjá borgarbúar þetta ekki..?? Dæminn um fjármála misferli þessarar óstjórnar eru endalaus. Braggaklúðrið. Mathöllinn. Skólpdælu klúðrið. Hlíðarendinn og nýja Vogabyggðinn. Skemmdirnar á Reykjavíkur flugvelli. Velli allralandsmanna. Þetta er bara smá brot því svona má lengi telja.
Dóra Björt er ein hækjan sem hefur stutt þessa óstjórn og ætti að hundskammast sín og segja af sér. Hún ber ábyrgð á því hve borgin er illa rekinn. Pawel gæti gert það líka enda ekki mikið mark takandi á því sem frá honum kemur.
M.b.kv.
Sigurður Kristján Hjaltested, 13.5.2021 kl. 09:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.