Leita í fréttum mbl.is

Langt í kosningar

sem betur fer í Borginni.

Er ekki nógur tími til ađ láta fenna yfir allt ţetta neikvćđa og horfa upp á viđ og hlusta á Dóru Björtu útlista hverjum ţetta allt sé ađ kenna?

 

Í leiđara Mogga stendur m.a.:..

"...Borgarfulltrúar meirihlutans, Samfylkingarinnar, Viđreisnar, Pírata og Vinstrigrćnna, bókuđu viđ afgreiđslu ársreikningsins mikiđ um áhrifin af kórónuveirufaraldrinum og sögđu svo međal annars: „Ţví skiluđu áćtlađar tekjur sér ekki, hvort sem litiđ er til útsvarstekna eđa annarra tekna.“

Međ ţessu er vitaskuld veriđ ađ reyna ađ blekkja borgarbúa ţví ađ tekjur lćkkuđu ekki, eins og ćtla mćtti af bókun meirihlutans, heldur hćkkuđu ţćr. Ţegar ársreikningurinn er lesinn – en meirihlutinn treystir ţví eflaust ađ kjósendur geri ţađ almennt ekki – sést ađ tekjur jukust um fimm milljarđa króna á milli ára í kórónuveirukreppunni.

Fimm milljarđa króna!

Viđ ţessa tölu bćtist svo ađ borgin sparađi sér tap vegna erlendra ferđamanna upp á um átta milljarđa króna, samkvćmt tölum sem meirihlutinn hefur kynnt.

Um ţetta er ekkert getiđ í bókun meirihlutans, en í febrúar í fyrra, skömmu áđur en faraldurinn skall á af fullum ţunga hér á landi, kom út skýrsla sem átti ađ sýna fram á ţetta tap borgarinnar vegna erlendra ferđamanna. Nú er ekkert um ţetta meinta tap talađ, enda hentar betur nú ađ nota kreppuna sem afsökun fyrir óráđsíunni en góđćriđ, sem var afsökunin áđur.

Fjárhagsvandi borgarinnar snýst hins vegar ekki um tekjufall nú eđa meint tap ári fyrr vegna erlendra ferđamanna. Fjárhagsvandinn er útgjaldavandi eins og bent er á bćđi í bókun borgarfulltrúa Sjálfstćđisflokksins og Miđflokksins. Í báđum ţessum bókunum er einnig fjallađ um skelfilega skuldastöđu borgarinnar, sem vex um 112 milljónir króna á dag, eins og sjálfstćđismenn benda á.

Ţetta er ótrúleg tala, en ţegar skuldir eru komnar hátt í fjögur hundruđ milljarđa króna og aukast um tugi milljarđa króna á ári, ţá er ţetta sú hörmung sem blasir viđ.

Ţetta er sérstaklega alvarlegt í ljósi ţess ađ í meirihlutasáttmálann áriđ 2018 var sett inn eftirfarandi setning: „Skuldir skulu greiddar niđur međan efnahagsástandiđ er gott.“

Eyţór Arnalds, oddviti sjálfstćđismanna í Reykjavík, vék ađ ţessu á fundi flokksins á laugardag og sagđi ţetta hafa fariđ inn í meirihlutasáttmálann fyrir vilja Viđreisnar, en hann benti jafnframt á ađ skuldavandinn hefđi ţrátt fyrir ţetta rokiđ upp einmitt frá ţessu ári. Ţađ snýr augljóslega ekkert ađ kórónuveirukreppunni heldur uppsafnađri og langvinnri óráđsíu međ almannafé.

Útgjöldin eru vandinn og skýringu ţeirra má til ađ mynda sjá í ţróun fjölda stöđugilda hjá Reykjavíkurborg, en stöđugildum fjölgađi um fjögur hundruđ á milli áranna 2019 og 2020.

Sú ţróun er međ miklum ólíkindum á sama tíma og borgarstjóra og borgarfulltrúum meirihlutans ćtti ađ vera ljóst ađ grípa ţarf hart í handbremsuna og stöđva útgjaldaţensluna og skuldasöfnunina.

En skuldirnar sjást ekki ađeins í ársreikningi borgarinnar. Á fyrrnefndum fundi benti Eyţór einnig á ađ borgin vćri á sama tíma ađ safna upp miklum viđhaldsvanda. Í ţví sambandi nefndi hann fasteignir borgarinnar, sem fengju allt of lítiđ viđhald međ tilheyrandi vanda síđar, og strćtisvagnana. Á síđustu árum hefđu sárafáir nýir vagnar veriđ keyptir svo upp hefđi hlađist ţörf fyrir tugi nýrra vagna upp á milljarđa króna.

Ţannig felur borgin skuldirnar, en ţessar skuldir eru jafn raunverulegar og hinar sem sjást í ársreikningnum ţví viđhaldinu og endurnýjuninni verđur ekki frestađ inn í eilífđina.

Ţađ ótrúlega er svo, ađ á sama tíma og borgin getur ekki endurnýjađ strćtisvagnana hefur hún uppi áform, og platar ríkiđ og önnur sveitarfélög međ sér í ţađ verkefni, um ađ koma upp svokallađri borgarlínu á höfuđborgarsvćđinu fyrir ađ minnsta kosti tugi milljarđa króna."

Mér finnst ég sjá merki ţess ađ almenningur hefur tekiđ upp hjá sér ađ leysa skyndisamgönguţörf á mun skilvirkari hátt en Borgarlína getur nokkru sinni gert. Rafskúturnar eru tiltćkar út um allt á gangstéttum. Ţú bara stígur á og brunar ţangađ sem ţú vilt fara. Getur erindađ og látiđ skútuna bíđa eftir ţér. Eđa bara kvatt hana eftirmálalaust.

Ţessi skútukerfi finnast mér svo stórkostlegt ađ ţađ hálfa vćri nóg.Taka flestu fram sem ég hef séđ í almenningssamgöngum nokkurs stađar. Og kostar ekki krónu af opinberu fé sem er víst ekki međ Borgarlínuna sem á ađ byggja međ illu eđa góđu.

En auđvitađ sér Dagur B.og hans fólk  ekki neitt jákvćtt viđ ţessa almannalausn og halda sitt strik međ öđrum sveitarfélögum og ríkinu.

Enda langt í kosningar til sveitarstjórna.

 

 

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 3418216

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband