23.6.2021 | 15:37
Það er engin loftslagsvá Katrín mín
það geturðu sannfærst um með því að lesa það sem Vilhjálmur Eyhþórsson tekur saman um jarðsögulegar staðreyndir:
"Það er skrýtið, aåð það þurfi mann eins og mig, mann utan úr bæ til að benda á hlut sem hefur verið fullsannaður og óumdeildur í meira en hundrað ár, nefnilega, að jörðin hefur verið að kólna og þorna í um átta þúsund ár. Raunar vær lægsta punktinum í þessari kólnun náð um aldamótin 1900, þegar jöklar voru þeir mestu frá ísöld (jökulskeiði) en síðan hefur dálítil uppsveifla verið, um 0,8 gráður frá 1880.
Þetta ættu allir, sem titla sig vísindamenn og gefa yfirlýsingar um loftslagsmál að vita. Viti þeir þetta ekki eru þeir einfaldlega ekki marktækir.
Það var nefnilega fyrir langalöngu, um aldamótin 1900, sem Norðmaðurinn Aksel Blyth og Svíinn Rutger Sernander gerðu grein fyrir rannsóknum sínum á gróðri í mýrum Skandínavíu með tilliti til loftslags fyrri alda og árþúsunda. Nýrri rannsóknir, m.a. á borkjörnum í Grænlandsjökli og Suðurskautlandinu hafa síðan fyllt út í myndina en í raun litlu bætt við niðurstöður Blyth-Sernanders.
Menn, allra helst vísindamenn, ættu að vita, að fyrir rúmlega tíu þúsund árum varð gífurleg hamfarhlýnun (án afskipta mannanna) þegar hitastig hækkaði skyndilega um tíu stig eða meira á örstuttum tíma þannig að jökulskildirnir miklu bráðnuðu og yfirborð sjávar hækkaði um marga tugi metra. Þetta flokkast undir mannkynssögu, ekki jarðsögu, en allt of margir skilja ekki hvað ísöldin er í raun nálægt okkur í tíma. Sé sagan rakin aftur til þess tíma sem pýramídarnir voru reistir og Súmerar skráðu Gilgamesh- kviðuna, fyrstu söguna af syndaflóði, eru menn þegar komnir hálfa leið aftur á ísöld .
Má t.d. benda á ágæta bók Helga Björnssonar jöklafræðings, en þar kemur m.a. fram, að Vatnajökull fór fyrst að myndast um sama leyti og Forn- Egyptar reistu pýramída sína, þ.e. fyrir um 4.500 árum.
Slík hamfarahlýnun hefur orðið í upphafi hvers þeirra um 20 hlýskeiða sem orðið hafa á ísöldinni miklu sem við lifum á, eða kvarterímanum, sem hófst fyrir 2,5-3 milljónum ára. Enn fyrr, á tertíertíma var loftlag hér svipað og nú í Norður- Kaliforníu eins og steingervingar risatrjáa bera vott um. En það er jarðsaga, ármilljónir, ekki árþúsundir.
Hvert hlýskeið stendur í 10-12 þúsund ár en jökulskeiðin standa í um og yfir hundrað þúsund ár. Því má búast við nýju jökulskeiði (ísöld) á þessu eða næsta árþúsundi og vitlegra að búa sig undir kólnun en hlýnun, sem væri raunar hið besta mál.
Það sem hér var rakið eru sjálfsagðir hlutir og alveg óumdeildir. Sjálfur lærði ég um þetta í barna- og gagnfræðaskóla fyrir hálfri öld, en nú virðast allir vera búnir að gleyma þessu.
Fyrrnefnd hamfarahlýnun náði hámarki fyrir um átta þúsund árum, þegar hin elstu hinna dularfullu eisteinungsmannvirkja Vestur- Evrópu svo sem Carnac á Bretagne- skaga fóru að rísa, en það tímaskeið nefndu Blyth- Serander atlantíska skeið bórealska tímans, sem líka er kallað hólósen- hámarkið, en síðan hefur loftslag verið að kólna og þorna. Þessi kólnun og þornum verður í sveiflum og rykkjum, en þrátt fyrir allar sveiflur og sveiflur innan í öðrum sveiflum kólnar og þornar jörðin hægt og sígandi og stefnir óhjákvæmilega í nýtt jökulskeið (ísöld),
Meðan sólin skín mun ferskt vatn gufa upp úr höfunum og því meira sem loftslag er hlýrra. Einnig eykst rakadrægni loftsins gífurlega við tiltölulega litla hækkun hitastigs. Gróflega þýðir þetta að hlýnun gufuhvolfsins um eitt stig veldur hækkun vatnsgufu í því um sjö rakastig. Ef loftslag skyldi hlýna mundi að því þýða stóraukna úrkomu, svipað og var fyrir 7-8 þúsund árum þegar Ísland var jöklalaust og Sahara gróin eins og aðrar eyðimerkur. Hlýnun þýðir því stóraukið vatn, ekki síst á þurrlendum svæðum, öfugt við það sem fáfróðir ímynda sér.
Nýlegar rannsóknir á Norður- Grænlandi og Svalbarða sýna, að á atlantíska skeiðinu uxu þar jurtir sem þurfa um sjö stiga hærri meðalhita en nú er þar. Þetta þýðir, að íshafið hefur verið að mestu eða öllu íslaust a.m.k. á sumrin. Meðal sjávarstaða, að frátöldu landrisi og landsigi, var þó aðeins einhverjum fáum tugum sentimetra hærri en nú. Miklu meira vatn var bundið í gufuhvolfinu, sem stuðlar að lækkun sjávarmáls og ekki síður hitt, að þrátt fyrir hærri meðalhita var enn frost mestallt eða allt árið á hábungu meginjökla, en það er ákoma, þ.e. snjókoma umfram sumarbráðnun sem mestu ræður um vöxt og viðgang jökla. Miklu meiri snjór olli því hækkun jöklanna, þótt kvarnaðist úr nær sjávarmáli. Ísbirnir lifðu líka góðu lífi og lifa enn þó sum hinna ýmsu hlýskeiða kvartertímans hafi verið miklu hlýrra en það núverandi. Grænland og Suðurskautið hafa líka verið á sínum stað í gegnum öll hlýskeiðin þótt sjávarborð hafi hækkað eitthvað."
Var ekki minningarathöfnin um Okið heldur illa tímasett og óþarfi að vera stöðugt að gráta minnkun jöklanna. Ætli jörðin stjórni ekki stærð þeirra hér eftir sem hingað til hvað sem vísindamaðurinn Gréta litla Thunberg segir með stuðningi AlGore?
Segja Surtarbrandslögin okkar enga sögu þar sem ljóst er að hér uxu suðrænar jurtir þegar hlýnunin stóð sem hæst?
Katrín mín góð, hættu að vera með þessum sífelldu böggum hildar yfir einhverri loftslagsvá svo a'ð jafnvel allt NATO stendur á öndinni.
Það er sólin sem stjórnar öllu hér á jörðinni en ekki útblástur álveranna og flugsins á CO2.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 3420566
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 32
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
-
ghe13
-
sigurjonth
-
andrigeir
-
annabjorghjartardottir
-
ansigu
-
agbjarn
-
armannkr
-
asdisol
-
baldher
-
h2o
-
bjarnihardar
-
dullur
-
bjarnimax
-
zippo
-
westurfari
-
gattin
-
bryndisharalds
-
davpal
-
eggman
-
greindur
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
eeelle
-
sunna2
-
ea
-
fuf
-
fhg
-
vidhorf
-
gerdurpalma112
-
gilsneggerz
-
gudni-is
-
lucas
-
zumann
-
gp
-
gun
-
topplistinn
-
tilveran-i-esb
-
skulablogg
-
gustafskulason
-
gustaf
-
heimssyn
-
diva73
-
helgi-sigmunds
-
hjaltisig
-
minos
-
hordurhalldorsson
-
astromix
-
fun
-
jennystefania
-
johanneliasson
-
johannvegas
-
jonatlikristjansson
-
jonl
-
jonmagnusson
-
jonlindal
-
bassinn
-
jvj
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
juliusbearsson
-
katagunn
-
kje
-
ksh
-
kristinn-karl
-
kristinnp
-
kristjan9
-
loftslag
-
altice
-
ludvikjuliusson
-
maggij
-
magnusthor
-
mathieu
-
nielsfinsen
-
omarbjarki
-
huldumenn
-
svarthamar
-
pallvil
-
peturmikli
-
valdimarg
-
ragnarb
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
siggus10
-
sisi
-
siggisig
-
ziggi
-
siggith
-
stjornlagathing
-
pandora
-
spurs
-
kleppari
-
saethorhelgi
-
tibsen
-
ubk
-
valdimarjohannesson
-
skolli
-
valurstef
-
vilhjalmurarnason
-
vey
-
postdoc
-
thjodarheidur
-
icerock
-
steinig
-
thorsteinnhelgi
-
icekeiko
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.