Leita í fréttum mbl.is

Sklljum Islam án túlka

er það sem Valdimar H. Jóhannesson fer fram á.

Af hverju hleyptu Talibanar út þúsundum hryðjuverkamanna úr fangelsum? Þeir fyrstu af þessum afrekshetjum þeirra hafa verið fangaðir í hópi flóttamanna til Bretlands.

Afghanar með íslensk vegabréf valda Gulla utanríkis áhyggjum þar sem þeir eru að spóka sig "heima."Halda einhverjir að þetta lið ætli að verða rótfastir Íslendingar? Halda menn að hann muni þekkja fyrrum fangana úr  í hópunum sem hann og Guðni Forseti eru búnir að bjóða hingað?

Valdimar segir í Mogga í dag:

"Lykilorðið til þess að skilja hvað er á seyði í Afganistan er íslam, alveg eins og lykilorðið til að skilja hvað var á seyði í Þýskalandi árin 1933-45 var nasismi og í Sovétríkjunum var það kommúnismi.

Án þess að kynna sér þessi hugmyndafræðikerfi, sem eru raunar öll mjög skyld, er borin von að nokkur skilningur fáist á atburðarásinni í þessum löndum. Án þekkingar á íslam er enginn skilningur á Afganistan eða öðrum löndum múslíma.

Alvarlegustu mistökin eru þau að telja íslam fyrst og fremst vera múslímum tæki til átrúnaðar á Allah og spámanninn. Íslam er hugmyndafræði sem er ætlað að stjórna allri mannlegri hegðan en af henni er tilbeiðslan aðeins lítið brot.

Æðsta skylda allra múslíma er heilagt stríð, jihad, til að ná öllum heiminum undir sjaríalög með sverðinu ef önnur ráð duga ekki. Upplýst hefur verið að Bandaríkin og NATO-veldin hafi eytt tveimur trilljónum dollara til að lyfta þessu guðsvolaða landi upp úr ofstækismyrkri íslam og talíbana undanfarin 20 ár eða 250.000.000.000.000 krónum ef lesendur skilja upphæðina betur þannig skrifaða.

Af þessari upphæð lögðum við Íslendingar okkar skerf til þess að freista þess að leysa Afgana, ekki síst konur og börn, úr helfjötrum heimsku, hrottaskapar og haturs. Fyrir aðeins nokkrum dögum heyrðum við Bandaríkjaforseta segja að engin ástæða væri til þess að hræðast valdatöku talíbana þótt hann hefði snöggt afturkallað heri sína þar sem bandarísk yfirvöld hefðu útbúið 300.000 manna hersveitir stjórnarinnar í Kabúl með öllum bestu vopnum sem völ væri á, þar á meðal flugher, en „heilögu stríðsmennirnir“, mujaheddín, hefðu aðeins um 75 þúsund manns undir vopnum (ryðguðum og brotnum?).

Talíbanar ráða nú yfir öllum þessum vopnabúnaði. Sú staðreynd er skelfileg. Ekki bætir úr skák að þeir opnuðu fangelsi Kabúlstjórnarinnar sem geymdu marga hörðustu hryðjuverkamenn al Kaída og aðra stríðsmenn fyrir utan alla þá illvirkja sem nú streyma þar að. Aðeins tímaspursmál hvenær þeir fara í útrás til að heyja sitt jihad, einnig á Vesturlöndum.

Þáttur í jihad er raunar svokallað hijra, þ.e. flutningur múslíma til annarra menningarheima, en það er einmitt sá hluti af jihad sem ráðamenn, sem ekkert kunna í íslam, eru svo samvinnufúsir með! Biden lofaði jafnframt að heimurinn myndi ekki sjá aftur sambærilegar fréttamyndir og þegar Saigon féll 1975. Örvæntingarfullum Saigonbúum var hrint til baka þegar þeir reyndu að klifra yfir girðingar sendiráðsins til að komast í björgunarþyrlur Bandaríkjanna.

Fréttamyndir frá Kabúl núna eru sumar óbirtingarhæfar, t.d. af fólki sem batt sig utan á flugvélar en fraus eða hrapaði til bana þegar þær tókust á loft. Biden er ekki einn stjórnmálaforingja heimsins um að skilja ekki ástandið í Afganistan.

Þeir telja sér það til framdráttar að kunna nær engin skil á íslam, sem ræður þó för. 250.000 þúsund milljarðar og 300 þúsund hermenn með bestu vopn heimsins eru ekki tölur sem réðu úrslitum í Afganistan. Þar voru aðrar tölur. Fyrir liggur niðurstaða amerísku Pew Research Center frá 2013 sem kortlagði mat múslíma á hlutverki íslam.

Heil 99% íbúa Afganistans töldu að sjaríalög ættu að liggja til grundvallar stjórn landsins. Vera kann að síðustu átta ár hafi eitthvað slegið á þessar tölur en framgangur talibana núna sýnir ljóslega að sú breyting er aðeins óveruleg og að hugmyndafræði talibana hefur yfirgnæfandi stuðning.

Þessi skrif munu í engu breyta ástandinu í Afganistan en þau eru ákall til íslensku þjóðarinnar, sérstaklega ráðamanna, að kynna sér hugmyndafræðina íslam.

Ég geri mér grein fyrir því að það er talið jafnast á við fólsku að lesa sér til með vitrænum hætti um þessa hugmyndafræði, sem er að teygja sig til okkar í sívaxandi mæli til að hremma okkur í sína hörðu kló. Þeir, sem vilja vera í forystu, verða stundum að gera meira en gott þykir. Vísasta leiðin til að flýta fyrir þeirri þróun sem er í hröðum gangi um öll Vesturlönd er að flytja inn múslíma og þá sérstaklega frá löndum eins og Afganistan þar sem 99% trúðu til skamms tíma að talibanar, Boko Haram, al Kaída, ISIS, Hamas o.s.frv. væru góðu gæjarnir og trúa vísast enn.

Það er einnig jafn víst að einhverjir liðsmenn þessara samtaka munu blanda sér í hóp flóttamanna, – sérfræðingar í morðum, limlestingum, glæpum og nauðgunum. Þeir eiga sér kannski ekki skoðanabræður í háskólum landsins, hjá fjölmiðlunum og hjá stjórnmálaforystunni þó að þekkingarleysið þar á íslam jafngildi stuðningi við framrás þessara myrku afla. Það er alla vega ekki að sjá að bitur reynsla margra Evrópuþjóða af innflutningi þessarar hugmyndafræði sé þeim víti til varnaðar.

Reynslan hefur sýnt það ljóslega að múslímar aðlagast ekki vestrænum gildum nema í algjörum undantekningartilvikum. Innflutningur á hundruðum Afgana til landsins mun engu breyta um hörmungar afgönsku þjóðarinnar en mun stórskaða framtíðarhagsmuni landsins. Aðeins Afganar geta breytt ástandinu til hins betra."

Og þeir eru sannfærðir Múslímar og samlagast okkur aldrei enda er slíkt dauðasök í þeirra heimi.

Þann boðskap þarf ekki að túlka.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og kaþólikkar eru óalandi og óferjandi vegna þess að IRA voru kaþólskir og sprengdu menn, konur og börn. Og hverrar trúar voru fjöldamorðingjarnir Timothy James McVeigh, Brenton Harrison Tarrant og Anders Behring Breivik? Er það góður kristinn siður að koma sér fyrir á svölum hótels í Las Vegas og skjóta á allt sem hreyfist?

Það þarf ekki nema einn kengruglaðan vitleysing í heimi Valdimars til að hann segi þær hundruði milljóna múslima sem hafa aðlagast vestrænum gildum vera undantekningu.

Valdimar veður ekki í vitinu og á það til að gera ekki greinarmun á glæpamönnum og trú þess þjóðfélags sem þeir spretta úr, nema þeir séu kristnir. Fordómar og fáfræði einkennir allan hans málflutning, skilning er þar hvergi að finna.

Vagn (IP-tala skráð) 24.8.2021 kl. 17:17

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Kerran telur sig vaða í vitinu fremur en Valdimar. Ég er ekki viss um að það sé rétt ályktun

Halldór Jónsson, 25.8.2021 kl. 16:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 58
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband