Tæpur mánuður er nú til næstu alþingiskosninga og stjórnmálaflokkar eru í óðaönn að kynna þær áherslur sem þeir vilja að næsta ríkisstjórn hafi að leiðarljósi. Fréttablaðið hefur undanfarna daga gert þeim flokkum sem mælast inni á þingi skil og fjallað lauslega um stefnu þeirra.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður Pírata 
fréttablaðið/valli

Loftslagsváin og ný stjórnarskrá

Píratar hlutu rúm níu prósent atkvæða og sex þingmenn í kosningunum 2017, sem var nokkuð lakara en þeir náðu í kosningunum árið áður. Í könnunum hefur flokkurinn mælst með um ellefu til þrettán prósenta fylgi.

Helstu áherslur:

  1. Efnahags- og loftslagsmál: Píratar mæla fyrir kerfis-breytingum til þess að takast á við loftslagsvána. Þá taki efnahagsstjórn mið af þeim í auknum mæli. Þá telja þeir að endurskipuleggja verði stjórnsýslu og hefja samstarf við aðila vinnumarkaðarins.
  2. Ný stjórnarskrá: Píratar vilja innleiða stjórnarskrá stjórnlagaráðs. Muni innleiðingin fela í sér frekari lýðræðisumbætur, mann­réttindi og stjórnarskrárbundið auðlindaákvæði.3
  3. Spillingarvarnir og réttlæti: Píratar boða ýmsar aðgerðir gegn sérhagsmunum og óæskilegum áhrifum stjórnmálamanna og fyrirtækja. Telur flokkurinn að aðgerðir þeirra muni leggja grunninn að betra samfélagi.

 

Eintómt ábyrgðarlaust kjaftæði sem engu getur breytt

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar 
fréttablaðið/ernir

Hærri barnabætur og alvöru loftslagsaðgerðir

Samfylkingin hlaut um tólf prósent atkvæða og sjö þingmenn í kosningunum 2017. Að undanförnu hefur Samfylkingin mælst með fylgi í kringum ellefu prósent.

Helstu áherslur:

  1. Barna- og fjölskyldumál: Samfylkingin vill greiða barnafjölskyldum hærri barnabætur og gera það í hverjum mánuði. Jafnframt vill flokkurinn hækka þak á greiðslur í fæðingarorlofi í samræmi við launaþróun.

Kostnaður óræður

  1. Eldri borgarar: Flokkurinn vill hækka mánaðarlegt frítekjumark eldra fólks vegna lífeyrissjóðsgreiðslna úr 25 þúsund krónum í 50 þúsund krónur.

Kostnaður milljarðar

 

Formaður þegir um aðalmálið:Inngöngu í ESB, Evrópuherinn og upptöku Evru. Er hann búinn að afsala þessu til Viðreisnar í heilu lagi?

  1. Loftslagsmál: Samfylkingin vill að losun gróðurhúsalofttegunda verði dregin saman um minnst sextíu prósent fyrir árið 203
  2. Flokkurinn vill jafnframt hefja undirbúning að Keflavíkurlínu sem yrði græn tenging milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar og styðja tæknilausnir til að fanga og farga kolefni.

Járnbrautarlest til Keflavíkur.

Kostnaður ekki undir hundrað milljörðum á Borgarlínuskala. Ábyrgðarlaust bull sem aldrei verður gert.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri Grænna 
fréttablaðið/eyþór

Græn störf og jafnrétti kynjanna

Vinstri græn fengu síðast ellefu þingmenn með tæplega sautján prósentum atkvæða. Í könnun Gallup á dögunum mældist flokkurinn með fjórtán prósenta fylgi.

Helstu áherslur:

  1. Umhverfismál: VG vill að Ísland sé í forystu um róttækar, raunhæfar og réttlátar aðgerðir í umhverfismálum, draga úr losun, efla græna fjárfestingu og auka kolefnisbindingu.

Almennt snakk með óræðum ef ekki endalausum kostnaði

  1. Heilbrigt atvinnulíf: Fjölbreytt atvinnulíf er heilbrigt atvinnulíf segir VG. Skapa á ný og fjölbreytt græn störf eftir Covid og koma í veg fyrir langtímaatvinnuleysi. Tryggja félagslegar áherslur í uppbyggingunni, öflugri stuðning við barnafjölskyldur og bætta framfærslu hinna tekjulægri.

Almennt snakk

  1. Jafnrétti: VG segir jafnrétti kynjanna og mannréttindi allra vera undirstöðu heilbrigðs lýðræðissamfélags. Halda eigi áfram að útrýma kynbundnu ofbeldi í samfélaginu og launamun kynjanna.

Þarf einhver að velta þessum flokkum frekar fyrir sér? Eru nokkuð raunhæft í þessu snakki?
 
Einu einasta máli?