Leita í fréttum mbl.is

Framsókn frekar en fullveldissöluflokka

Jón Magnússon lögmaðurinn ljúfi veltir fyrir sér hvor sé meiri miðjuflokkur, Viðreisn eða Framsókn.

Mér finnst vera reginmunur á Samfylkingarflokknum báðum, sem vilja fullveldi Íslands feigt, og gamla góða Framsóknarflokknum, sem ég hef lengi þekkt.

Jón skrifar>:

"Framsóknarflokkur og Viðreisn heyja harða baráttu um hvor flokkanna sé meiri "miðjuflokkur" Baráttan felst í því að sýna kjósendum, að þeir geti unnið með hverjum sem er, hvenær sem er. Þeir láti ekki hugsjónir eða stefnumál þvælast fyrir sér. Þess vegna getur Viðreisn auðveldlega stutt villta vinstrið í borgarstjórn Reykjavíkur.

Framsóknarmenn stæra sig af því að þeir hafi jafnan verið valkostur við stjórnarmyndanir vegna þess hvað þeir séu mikill mðjunafli íslenskra stjórnmála. Réttara væri að segja að Framsókn hafi um langt árabil verið flokkur, sem hefur þann eina pólitíska tilgang að vera í ríkisstjórn, sér og sínum til framdráttar.

Miðja stjórnmála hvar sem er í heiminum er kyrrstöðuafl. Framsóknarflokkurinn kynnir sig í kosningabaráttunni sem flokk, sem þeir geti kosið,sem hafa ekkert annað að kjósa og engar sérstakar skoðanir í pólitík.

Vandi íslenskra stjórnmála er síst sá, að það séu ekki nógu margir flokkar á miðju hefðbundinna stjórnmála og sækist eftir að vera þar. Vandinn er mun frekar sá, að það vanti flokka, sem boði stefnu sem sé líkleg til að verða hreyfiafl nýrrar sóknar til velferðar einstaklinga og samfélags. Slíkir flokkar eru sjaldnast á miðjunni og alla vega ekki hér á landi.

Ekki gleyma því sem Winston Churchill forsætisráðherra Breta sagði eitt sinn. "Vandi þeirra sem eru á miðjum vegi er að það er keyrt yfir þá." Þannig er það líka í pólitíkinni þeir sem hafa enga hugmyndafræðilega rótfestu láta allt falt ef því er að skipta. Þess vegna hefur Framsóknarflokkurinn jafnan verið opinn í báða enda eins og fyrrum foringi hans orðaði það." 

Mér finnst ver allur munur á þjóðlegum flokki eins og Framsóknarflokknum, sem er oftar en ekki talinn afturhaldssamur SÍS-vörður, eða þessum afturgöngum Krataflokksins sem mér finnst þessi Samfylking og Viðreisn vera.

Ég kem ómögulega auga á einhvern mun á þessum flokkum og skil ekki hversvegna þeir sameinast ekki þar sem þeir eru eineggja tvíburar um Evrópusambandsaðildina. Það hlýtur að vera bara spurning um ríkisstyrki sem heldur aftur af þeim. Allt annað hljóti bara að vera snakk um ekki neitt. 

Þaðan af síður kem ég auga á þörfinni fyrir þennan dópelskandi Pírataflokk sem vill kaupa alla letingja landsins fyrir Borgaralaun sem þeir kalla svo.En þau geta varla komið annarsstaðar frá en úr prentvélunum við Kalkofnsveg og vösum þeirra sem þiggja. 

Nei Jón minn góður, Framsókn fimm sinnum fyrr en fullveldissalaflokkana.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú hræðist það að Samfylking og Viðreisn standi við loforð sem Sjálfstæðisflokkurinn gaf, að láta þjóðina kjósa um framhald viðræðna, og verði þar framhald á, að kjósa þá um Evrópusambandsaðild.

Þú hefur afneitað þessum fyrrum flokksfélögum þínum sem yfirgáfu Sjálfstæðisflokkinn vegna andstöðu hans við að láta þjóðina ákveða framtíð sína. Þessi litli lýðræðissinnaði Sjálfstæðisflokkur, sem þá varð til, tekur atkvæði sem annars hefðu gengið til Sjálfstæðisflokksins. Enda frambjóðendur og stuðningsmenn Viðreisnar enn með þær sömu hugsjónir sem gerðu þá að Sjálfstæðismönnum. En lýðræði er bara ekki Sjálfstæðisflokknum kært og því skildu leiðir.

Vagn (IP-tala skráð) 22.9.2021 kl. 21:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband