Leita í fréttum mbl.is

Má Siminn selja mig

sem einokunarauðlind Mílu til fransks fyrirtækis?

Er ég líka ekki bara einhver tala í bókunum, kennitala sem hægt er að rukka?

Þetta er aldeilis stórveldi sem hafa klófest Símann sem virðist eiga mig sem auðlind eins og Samherji á fiskinn í sjónum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þetta er bara toppurinn á ísjakanum. Nú þegar eiga útlendingar mest allt laxsjóeldi, jarðir út um allt land svo þetta. Þessi þróun mun bara halda áfram stjórnlaust því miður. 

Sigurður I B Guðmundsson, 18.10.2021 kl. 13:03

2 Smámynd: Grímur Kjartansson

Hver heldur þú að muni eignast Landsvirkjun ef lagður verður sæstrengur til ESB
Það eru nær allir kennitölur háðar rafmagninu en símanum má  slökkva á

Grímur Kjartansson, 18.10.2021 kl. 14:22

3 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

Sendu línu á fyrrum Forsætis- og Fjármálaráðherra, þá Davíð og Geir.

Þeir vissu þetta allan tímann.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 18.10.2021 kl. 15:03

4 identicon

Sammála. Ég skil ekki, hvað þeim gengur til með þessu. Íslensk fyrirtæki eiga að vera í eigu Íslendinga einna. Það er mín skoðun.

Guðbjörg Snót Jónsdóttir (IP-tala skráð) 18.10.2021 kl. 15:06

5 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ætli sjálfstæðisflokkurinn þinn sé ekki líklegastur til að selja 

svona fyrirtæki til þeirra sem að bjóða best

og halda merki markaðsaflana á lofti?

Eða hverjar eru STEFNUR  hinna ýmsu flokka í þessu máli?

Jón Þórhallsson, 18.10.2021 kl. 15:15

6 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Halldór.

Ertu farinn að efast um hinn frjálsa markað??

En áður en þú gerist kommi, mundu að við Hriflungar erum millibil á milli þeirra sem gefast upp á hinum óhefta markaði og hinna sem enda þá sem sósíalistar.

Reyndar er alltí lagi að vera líka hefðbundinn borgaralegur íhaldsmaður.

En það voruð reyndar þið sem trúðuð því þegar freistarinn bauð ykkar að verða ríkir, ef þið félluð á kné og tilbæðu hann.

Og þið eruð ekki ennþá búnir að fatta það að nýfrjálshyggjan hefur ekkert með borgaralegan kapítalisma að gera.

Hún gerir menn eins og Gunnar Smára að hvítvoðunga.

Kveðja að austan.

Ómar Geirsson, 18.10.2021 kl. 16:17

7 identicon

Ég er að verða kommúnisti!

Fyrir utan nokkra sérvitringa, t.d. einstaka rómantíska Þjóðverja, þá held ég að eini áhuginn sem menn hafa á Íslandi sé sá að geta grætt á því.

Ég tel því að Ríkið eigi að eiga allar jarðir og auðlindir, til sjávar og sveita, og öll stærstu fyrirtækin í landinu.

Annars verður þetta allt selt útlendingum, fyrr eða síðar, og þjóðin situr eftir eignalausyell.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 18.10.2021 kl. 21:11

8 Smámynd: Halldór Jónsson

I Ragnar Önundarson, fyrrverandi bankastjóri, segir „veiðileyfi“ gefið út á íslensk heimili með fyrirhugaðri sölu Símans á dótturfyrirtækinu Mílu. Fram kom í kvöldfréttum RÚV í gær að salan hefði verið rædd í þjóðaröryggisráði. Síminn er kominn langt á veg í viðræðum við alþjóðlegt stórfyrirtæki um sölu á dótturfyrirtækinu Mílu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði í kvöldfréttum RÚV að samræður við fyrirtækið undir forystu samgönguráðherra hefðu farið fram um hvernig unnt yrði að tryggja þjóðar- og almannaöryggi óháð eignarhaldi. Katrín sagðist binda vonir við að frumvarp sem tryggi stjórnvöldum getu til að rýna í erlendar fjárfestingar sem teljast hafa gildi fyrir almanna- og þjóðaröryggi verði lagt fram á komandi þingvetri. Ragnar gerir málið að umtalsefni á Facebook-síðu sinni og segist heita á þjóðaröryggisráð að bregðast strax við og koma í veg fyrir þessi viðskipti. Staða Mílu jaðri við að vera í einokunaraðstöðu. „Slík aðstaða kallar alltaf á sjálftöku gegnum verðlagið. Samkeppnislöggjöf okkar er evrópsk og miðast við stóra, virka markaði. Hún nær ekki að verja okkur fyrir sjálftöku þeirra sem komast í forréttindaaðstöðu

Halldór Jónsson, 19.10.2021 kl. 11:19

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Ómar gamli kommi og yfirlýstur núverandi Hriflungur( Hugsanlegfa til að  að breiða yfir fortíðina eins og Gunnar Smári með kapitalismann?). 

Ég vil ekki selja Lögregluna, Vegagerðina,Póstinn, Skólana og margt fleira eins og þið eruð að halda fram á góðum stundum.

Ég er nefnlilega ekki eins vitlaus í einhverri nýfrjálshyggju sem þið kommarnir eruð alltaf að þvæla um. Alveg  án þess að hafa hugmynd um að þetta fyrirbrigði er ekki til heldur aðeins frjálshyggja í sinni tærustu mynd frá John Stuart Mill. En þið eruð margir of mikilir tréhausar til að skilja það. Husganlega er hægt að fella Fidel Castro, Lukasjenko, Hitler, ýmsa Afríkuleiðtog, Hussein, Assad  og fleiri slíka ón undir nýfrjálshyggju  ef þið viljið halda hugtakinu við.

Frjálshyggjumaður er ekki andfélagslega sinnaður, hann þarf law and order og traust lýðræðisþjóðfélag með réttarreglur og inmnviði í almannaeign.

Það skilja idjótar heilaþvottar kommúnista yfirleitt ekki eða vilja ekki skilja af því að þá hafa þeir fátt um að tala.

Halldór Jónsson, 19.10.2021 kl. 11:35

10 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Halldór minn.

Munurinn á mér og þér er sá að ég hef heyrt svona réttlætingu áður, þá milliliðalaust af vörum fólks sem talaði um hvað draumsýnin væri falleg, hugsjónirnar göfugar.

Þess vegna studdi það aftur og aftur einhverja vitleysinga sem sögðu, núna kemur þetta, við erum alveg með þetta.

En það þagnaði endanlega eftir beinahrúgurnar í Kambódíu.

Nýfrjálshyggjan er ný vegna þess að þessi helstefna kom aftur, þó borgarlegir íhaldsmenn héldu að þeir hefðu jarðað hana á þreföldu dýpi, þá skaut hún anga sem sagði; ég geri ykkur ríka, ég geri ykkur frjálsa til að græða og haga ykkur eins ykkur sýnist.

Þið voruð ekki margir íhaldsmennirnir sem stóðu með Jóni Tómassyni, þáverandi stjórnarformanni SPRON, þegar hann reyndi að verja sjóðinn gegn græðgivæðingunni með klassískum borgarlegum rökum.  Þið fylktuð ykkur utan um annan, sem sagði ykkur frá Fé án hirðis, og það biði eftir því að þið hirtuð það.

Svo leiddi eitt af öðru og það hrundi allt, og þá sögðu þið, Nei, þetta var ekki svona, þetta var ekki svona sem við vildum hafa þetta, það voru mennirnir sem brugðust, ekki hugmyndafræði græðginnar sem lofaði okkur frelsi til að græða.

Hvað hétu mennirnir aftur hjá kommunum??, var það ekki Stalín, Maó, Lenín, allt saman blóðugir morðhundar, þeir brugðust, ekki hugmyndafræðin.

Haeyk vildi selja allt, rétt halda eftir lágmarks skattlagningu (þjófnaði) til að reka her og lögreglu til að halda öreigalýðnum niðri, Friedman næstum því allt, og eftir þeirri hugmyndafræði er varla eftir almannaþjónusta á meginlandi Evrópu.

Og það bráðfyndna er að sala þeirra var peningaþvottur fyrir skipulagða glæpastarfsemi, fyrir peningaþvott frá einræðisherrum þriðja heimsins, í gegnum frumskóg aflandsfélaga liggur eignarhald til vina þinna í Kína, til arabanna, til rússnesku mafíunnar, allt dáindis fólk eða þannig.

Nei Halldór, Trump vissi sínu vit þegar hann ullaði framan í þessa andskota nýfrjálshyggjunnar og fór að sækja framleiðsluna aftur heim.

Þú ferð kannski að skilja af hverju áður en yfir líkur.

Kveðja að austan.

PS. Gott þetta með ábreiðuna.

Ómar Geirsson, 19.10.2021 kl. 13:01

11 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Verðmæti fyrirtækja ræðst almennt af verðmæti þeirra viðskipta sem þau hafa. Viðskiptin eru á endanum við önnur fyrirtæki eða einstaklinga. Ef maður selur kjörbúð sem á sér traustan viðskiptamannagrunn, er hann þá að "selja viðskiptavinina" ef hann selur búðina?

Þorsteinn Siglaugsson, 19.10.2021 kl. 22:22

12 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

En voru "vidskiptavinirnir" ekki stofnendur og

eigendur fyrirtaekisins í upphafi...???

Sigurður Kristján Hjaltested, 20.10.2021 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 3418426

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 60
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband