28.10.2021 | 11:42
Loftslagsbullið
ríður húsum á Íslandi. Forsætisráðherrann virðist andsetinn af þessu sem forgangsmáli þjóðarinnar sem er mér óskiljanlegt þegar bróðurpartur af orkunotkun landsins sem hún á að leiða kemur frá brennslu jarðefnaeldsneytis.
Nú er talað um að banna innflutning á bílum sem brenna slíku eftir örfá ár.Það er ekki einu sinni staðfest að rafbílar séu kolefnisvænir. Hvað þá að íslendingar eru aðeins 350.000 á móti 15.000.000.000 Kínverjum sem ætla akkúrat ekkert að gera í útblæstri næstu árin. Við eigum að ganga á undan með góðu fordæmi segir hún.
Kolefnisjöfnun er eitthvað ógurlega göfugt.CO2 er ástæða fyrir því að mannkynið á grænni jörð og ræktar meira en það gerði.Auðnin verður arðgæf.
Það mannfjölgunin sem er skelfingin. Náist ekki tök á henni er allt annað hjómið eitt til lengri tíma.
Vegna trúarinnar hjá forsætisráðherra er ekki varist með tiltækum ráðum eins og aðrar þjóðir gera heldur aðeins gefið eftir eða örvast í vitleysunni.
Einar S. Hálfdánarson veltir þessu fyrir sér í Morgunblaðið dagsins:
"Flestir Íslendingar eiga auðvelt með að lesa færeysku, svo mjög er hún skyld íslensku.
Tummas Justinussen skrifaði fína grein um ESB-þjóðina Dani og bar saman við fiskveiðiþjóðina Færeyinga. Danir eiga fimmta stærsta kaupskipaflota í heimi. Sá floti er ekki talinn með þegar skuldbindingar Dana í loftslagsmálum eru reiknaðar.
Dönskum vöruflutningabílum er ekið um alla Evrópu. Akstur þeirra utan Danmerkur telst ekki með í losun Dana.
Flug með dönskum flugfélögum skilst mér á honum að sé líka undanskilið ef það er innan Evrópu. En Færeyingar búa við allt annars konar útreikning líkt og við Íslendingar.
Fiskveiðar Færeyinga
Fiskveiðar eru meginatvinnuvegur Færeyinga. Meira en 97% afurðanna er neytt utan Færeyja.
En gagnstætt danska kaupskipaflotanum reiknast losun færeyska fiskiskipaflotans Færeyjum á versta veg.
Er einhver lógík í þessu? Ekki segir Tummas og hann færir góð rök fyrir sínu máli.
Íslenski fiskiskipaflotinn lýtur sömu reglum. Væri nú ekki ráð að skrá íslensku togarana sem evrópsk kaupskip? Þá er Ísland búið að standa sína loftslagsplikt um langa framtíð.
Staða Íslands
Frammistaða Íslands í loftslagsmálum er í einu orði sagt frábær. Endurnýjanleg orka er 85% af orkunotkun Íslands. Ef aðrar þjóðir stæðu sig eins vel væri enginn loftslagsvandi, hvað þá -vá. Samt er mikill hljómgrunnur fyrir því að Ísland geri meira í loftslagsmálum en okkur ber skylda til. Til hvers?
Jú, til að mengunarsóðinn Kína geti t.d. gert enn verr. Er það verðugt markmið?
Eins og önnur lönd á Ísland að standa við skuldbindingar sínar. Höfum við í hyggju að gera betur eigum við að velja okkur markmið og verja til þess þeim fjármunum sem við getum til að ná sem mestum árangri. Ekki til að líta vel út. Enginn vafi leikur á að nýting fjár er margföld ef mengunarmarkmið með árangur að markmiði eru tekin fram yfir að gera betur en Parísarsamkomulagið.
Eigum við ekki öll að sættast á að rýra ekki lífskjör á Íslandi að nauðsynjalausu og minnka mengun jafn mikið og unnt er? Þetta tvennt fer auðveldlega saman.
Parísarsamkomulagið er ósanngjarnt
Ósanngirni Parísarsamkomulagsins í garð fiskveiðiþjóða á borð við Ísland og Færeyjar blasir við. Meðal annars þess vegna á alls ekki að fórna íslenskum hagsmunum og fórna lífskjörum okkar og barnabarna okkar til að gera meira en krafist er af okkur.
Næst þegar sest verður að samningaborðinu eigum við að gera tvær sanngjarnar kröfur: Að íslenski fiskiskipaflotinn fái sömu stöðu og kaupskipafloti ESB og að flugumferð til og frá Íslandi reiknist með sama hætti og flug innan Evrópusambandsins.
Á slíkar ráðstefnur má ekki senda menn með hugarfar Indriða Þorlákssonar; að Ísland hafi bara gott af því að borga fyrir aðra."
Við Íslendingar höfum svo til engin áhrif á útblástur heimsins.Það er aðallega Katrín Jakobsdóttir og Gréta Thunberg sem telja okkur vandamál í loftslagmálum heimsins.
Erum við tilbúnir að játast undir skattlagningu á lífsafkomu okkar þegar Kínaverjar og Indverjar fara sér að engu óðslega með sína milljarða fólks?
CO2 í andrúmsloftinu er ekki vandamál og það hefur verið miklu meira í jarðsögunni. Þar að auki stjórnum við ekki sjónum eða eldfjöllunum.
Loftslagsbullið er algerlega órökstudd trúarbrögð eins og ISLAM sem er einiungis til vandræða um heim allan.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.10.2021 kl. 07:33 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 1
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 3419866
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Maí 2022
- Apríl 2022
- Mars 2022
- Febrúar 2022
- Janúar 2022
- Desember 2021
- Nóvember 2021
- Október 2021
- September 2021
- Ágúst 2021
- Júlí 2021
- Júní 2021
- Maí 2021
- Apríl 2021
- Mars 2021
- Febrúar 2021
- Janúar 2021
- Desember 2020
- Nóvember 2020
- Október 2020
- September 2020
- Ágúst 2020
- Júlí 2020
- Júní 2020
- Maí 2020
- Apríl 2020
- Mars 2020
- Febrúar 2020
- Janúar 2020
- Desember 2019
- Nóvember 2019
- Október 2019
- September 2019
- Ágúst 2019
- Júlí 2019
- Júní 2019
- Maí 2019
- Apríl 2019
- Mars 2019
- Febrúar 2019
- Janúar 2019
- Desember 2018
- Nóvember 2018
- Október 2018
- September 2018
- Ágúst 2018
- Júlí 2018
- Júní 2018
- Maí 2018
- Apríl 2018
- Mars 2018
- Febrúar 2018
- Janúar 2018
- Desember 2017
- Nóvember 2017
- Október 2017
- September 2017
- Ágúst 2017
- Júlí 2017
- Júní 2017
- Maí 2017
- Apríl 2017
- Mars 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Desember 2016
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Ágúst 2016
- Júlí 2016
- Júní 2016
- Maí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- September 2015
- Ágúst 2015
- Júlí 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
Bloggvinir
- ghe13
- sigurjonth
- andrigeir
- annabjorghjartardottir
- ansigu
- agbjarn
- armannkr
- asdisol
- baldher
- h2o
- bjarnihardar
- dullur
- bjarnimax
- zippo
- westurfari
- gattin
- bryndisharalds
- davpal
- eggman
- greindur
- bjartsynisflokkurinn
- elfarlogi
- eeelle
- sunna2
- ea
- fuf
- fhg
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gilsneggerz
- gudni-is
- lucas
- zumann
- gp
- gun
- topplistinn
- tilveran-i-esb
- skulablogg
- gustafskulason
- gustaf
- heimssyn
- diva73
- helgi-sigmunds
- hjaltisig
- minos
- hordurhalldorsson
- astromix
- fun
- jennystefania
- johanneliasson
- johannvegas
- jonatlikristjansson
- fiski
- jonl
- jonmagnusson
- jonlindal
- bassinn
- jonvalurjensson
- jvj
- thjodarskutan
- juliusbearsson
- katagunn
- kje
- ksh
- kristinn-karl
- kristinnp
- kristjan9
- loftslag
- altice
- ludvikjuliusson
- maggij
- magnusthor
- mathieu
- nielsfinsen
- omarbjarki
- huldumenn
- svarthamar
- pallvil
- peturmikli
- valdimarg
- ragnarb
- samstada-thjodar
- fullveldi
- siggus10
- sisi
- siggisig
- ziggi
- siggith
- stjornlagathing
- pandora
- spurs
- kleppari
- saethorhelgi
- tibsen
- ubk
- valdimarjohannesson
- skolli
- valurstef
- vilhjalmurarnason
- vey
- postdoc
- thjodarheidur
- icerock
- steinig
- thorsteinnhelgi
- icekeiko
Athugasemdir
Meðal Kínverjinn losar rúm 7 tonn meðan Íslendingurinn losar rúm 11 tonn og Indverjinn tæp 2 tonn. Og fiskveiðifloti Kínverja, sem er stór, reiknast á sama hátt og sá Íslenski, Danski og Færeyski.
Millilandaflug telst ekki með í losun Íslendinga, frekar en annarra. Og sama gildir um millilandasiglingar og aðra millilandaumferð.
Þó fiskurinn sé fluttur út þá reiknast CO2 frá veiðunum á okkur. Rétt eins og CO2 frá iðnframleiðslu Kína, sem að mestu er flutt úr landi, reiknast á Kínverja.
Vagn (IP-tala skráð) 28.10.2021 kl. 12:32
Talan "85 prósent" varðandi endurnýjanlegan hluta íslenskrar orkuframleiðslu er miklu lægri, því mestöll raforkuframleiðsla stóru gufuaflsvirkjananna á Reykjanesskaga er rányrkja á óendurnýjanlegri og þverrandi auðlind. Meira að segja í forsendum þeirra var í orði kveðju byggð á 50 ára endingartíma, sem er jafnvel enn styttri.
Ómar Ragnarsson, 28.10.2021 kl. 13:01
Um helgina verður ríkisstjórnin og minnst 50 aðrir í Glasgow
þar sem þeir munu þurfa að innbyrða mikið magn af kolefnislausnar koteilum til að jafna kolefnissporið vegna flugferðarinnar.
Svo koma þau væntanlega til Íslands og kenna okkur hinum um bruðlið
Grímur Kjartansson, 28.10.2021 kl. 13:37
Mér er lífsins ómögulegt að skilja
af hverju Sjálfstæðisflokkurinn (og Framsókn)
eru að púkka undir Vinstri græna.
D og B geta alveg myndað ríkisstjórn
án plastpoka Gvendar og Kola Kötu.
Einfaldast væri að kippa Flokki fólksins inn
í stað kommagrænu lufsa Steingríms Joð.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 28.10.2021 kl. 14:57
Já, Halldór minn
Hvernig stendur á því að Bjarni og SIngi
hanga sem niðurnjörvaðir
við fúlapytt Indriða og Steingríms Joð?
ESB kommagræna pyttinn?
Nema þeir fyrrnefndu séu sama sinnis, í reynd,
og hinir síðarnefndu, ESB kommagrænir?
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 28.10.2021 kl. 15:05
Sem sagt, Halldór minn
Væri ekki nær að bæta kjör smælingjanna,
svo sem hinna fátækustu meðal íslenskra
eldri borgara, öryrkja og barnafjölskyldna
-- og þar með almenna hagsæld íslenskra --
fremur en elta hala hinna kommagrænu,
loftslags glóbalista?
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 28.10.2021 kl. 15:32
Gallinn er sá að við erum ekki ein með okkar andrúmsloft á þessari jörð-það er sameiginlegt.
Við eru ekki eyland í andrúmsloftinu.
Veðrabreytingar víða um heim eru skelfilegar og þær hafa borist til okkar í veðurfari. Jarðvegsflóð úr fjöllum á Seyðisfirði í kjölfar ofurrigninga og síðan í Kinnafjöllum - raflinur falla í vetrartíð.
Þetta er því miður að aukast
En þetta kemur misjafnlega fram um heiminn- enn sem komið er.... Ágætur þáttur hjá henni Bryndís í stjórnmálum- áðan :-)
Sævar Helgason, 28.10.2021 kl. 16:15
Tveir skýjaglópar "bulla" um rafmagnsbíla og umferðarmál í framtíðinni: Harald Lesch zur Elektromobilität • Pros und Cons des Elektroautos • ÖPNV • Mobilität der Zukunft
Hörður Þormar (IP-tala skráð) 28.10.2021 kl. 23:07
Já Halldór minn, magn koltvísýrings hefur áður verið mun meira í andrúmsloftinu en nú er, í eitt skiptið til dæmis lagðist íshella yfir meginhluta jarðar ef marka má grein á vef Lifandi Vísinda.
Öll þessi skipti eiga eitt orð sameiginlegt; extinction, útrýmingu mikils hluta þess lífs sem þá var, og þó þú sért kominn á efri ár, þá er það furðuleg hvöt að vilja sjá afkomendur sína kveðja á svipuðum tíma.
Síðan á bráðskýr maður eins og þú ekki síendalaust að fabúlera um sjó eða eldfjöll í þessu samhengi, hringrás koltvísýrings er þekkt, hún hefur verið í þokkalegu jafnvægi í árhundruðþúsund, og núna er þessu jafnvægi raskað með 19. aldar tækni í orkuöflun og orkunýtingu.
Það er sú röskun sem ógnar tilveru okkar, í það minnsta siðmenningunni, og svo rífist þið íhaldsmenn út í eitt við staðreyndir í stað þess að takast á við þær.
Því ábending þín um lofslagsbullið er réttmæt, en hvernig heldur þú í eina mínútu að það sé leiðrétt með bulli og staðleysum??
Í stað þess að segja, tökumst á við þetta, leysum þetta.
Ég held að þú sért orðinn Pírati Halldór, þeir eru eina tegundin í stjórnmálum sem gætu verið svona grunnir miðað við fyrri reynslu og menntun.
Ráðlegg þér að lesa Jón Þorláksson.
Hann hefði tekið þessu eins og hverju öðru verkefni.
Með árangri.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson, 29.10.2021 kl. 07:42
Heill og sæll Halldór
Maður er nefndur Patrick Moore, prófessor frá University of British Columbia í Kanada, í umhverfisfræðum. Maður þessi var einn af stofnendum Greenpece og um tíma forseti þeirra samtaka. Síðar, þegar þessi samtök fóru að láta peninga ráða för, sagði þessi stofnandi sig frá þeim.
Hann hefur látið loftlagsmál til sín taka, ekki kannski alveg á sömu línu og þeir sem hæst láta í þeim málaflokki. Því hefur honum verið úthýst á ýmsum vettvangi þar sem slík umræða fer fram.
Hér er örstutt viðtal við Patrick, sem þú ættir endilega að skoða.
https://www.youtube.com/watch?v=hEOLKEc5eRM&list=FLk7IeO9burLQ2tc3Fnrw6ow&index=1&t=12s
Kveðja
Gunnar Heiðarsson, 29.10.2021 kl. 07:54
Eitt enn:
Stalín tíðkaði það að senda menn til Síberíu,
þeim sem ekki voru honum þóknanlegir.
Þar beið þeirra vosbúðin og dauðinn.
Forysta Sjálfstæðisflokksins sér til þess
að henni ekki þóknanlegir falli af listum
og/eða af þingi; mætti kalla hreinsanir
í anda Stalíns.
Þannig fór t.d. fyrir Brynjari Níelssyni og Sigríði Andersen.
Þau töldust ekki nógu ESB kommagræn
að smekk foryatu Sjálfstæðisflokksins.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 29.10.2021 kl. 12:26
Sæll Halldór,
"Það er aðallega Katrín Jakobsdóttir og Gréta Thunberg sem telja okkur vandamál í loftslagmálum heimsins."
Ekki gleyma að minnast á Rómarklúbbinn (The Club og Rome), Committee of 300, Rothschild fjölskylduna og CIA.
KV. Þorsteinn
EDWARD SNOWDEN: “GLOBAL WARMING IS AN INVENTION OF THE CIA”
"Global warming an invention of the CIA –Edward Snowden"
Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 29.10.2021 kl. 19:15
Og bara þetta að lokum:
Arnari Þór Jónssyni,
helsta talsmanni Sjálfstæðisflokkksins fyrir fullveldi íslenska lýðveldisins,
var svo fyrirkomið á lista
hjá Sjálfstæðisflokknum,
að ógerningur er að vita hvort honum, sem varaþingmanni, verði nokkurn tíma hleypt inn
á þingfundi við Austurvöll.
Enda er hann ekki ESB kommagrænn
og því nýtur hann engrar hylli hjá forystu
ESB kommagrænu forystu Sjálfstæðisflokksins.
Símon Pétur frá Hákoti (IP-tala skráð) 30.10.2021 kl. 01:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.