Leita í fréttum mbl.is

Hverjum er svona illa við Úkraínu?

Biden rústar efnahag ríkisins með yfirlýsingum  um hvað hann PÚTÍN sé vondur. Sem hefur ekkert gert á hluta neins. Bara spókað sig á eigin landi.

 

Pútín vinnur sigur alþjóðlega hvern einasta dag með því bara að þegja og gera ekkert. 

Þeir einu sem tapa eru Úkraínumenn sem standa undir herkostnaðinum sem er algerlega glataður fyrirfram stríð eða ekkert stríð.

Vissi einhver til þess að Úkraínumenn væru einhverjir óvinir Rússa? Svona eins og að Færeyingar væru óvinir LÍÚ á Íslandi?

Nei Biden fælir allt kapítal frá Úkraínu meðan Pútín bara glottir bak við tjöldin.

Hver er vitlausastur af öllum? 

 

Þarf Pútín nokkuð annað en lóð undir olíuleiðslu til Nato yfir Úkraínu. Allir græða.

Nato vantar olíu í Vestur Evrópu sem Biden getur ekki skaffað.Hvað sem Katrín Jakobsdóttir hefur um það að segja.

Úkraínumenn vantar tekjur. Þarna eru þær.

Ekki er mér neitt svona illa við Úkraínu segir litla gula hænan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Ótrúlegt að heyra Biden lýsa yfir að HANN muni útvega Þýzkalandi gas ef lokað verði fyrir Nordstream gasleiðsluna
Svo þessar myndir af örfáum einstakilingum í byssuleik með trébyssur - Maður hugsar ósjálfrátt til gölu góðu Roy Rogers dagana þegar maður ungur

Grímur Kjartansson, 13.2.2022 kl. 21:12

2 Smámynd: Hörður Þormar

Björn Bjarnason fjallar í pistli sínum í dag um viðtal sem birtist í þýska blaðinu, Der Spiegel við skáldkonurnar, Hertu Müller og Svetlönu Alexievich. Viðtalið má sjá í Stundinni í þýðingu Illuga Jökulssonar. Þar er fullyrt að Pútín sé glæpaforingi að upplagi sem kunni engin önnur ráð en að ljúga, blekkja og hræsna, svo að ekki sé minnst á öll morðin. Einvaldar þori ekki að missa völdin af ótta við að verða sóttir til saka.

Það skal tekið undir þessi orð. Það er furðulegt að þessi maður skuli eiga áhangendur hér á landi. Þetta rifjar upp styrjaldarárin í bernsku þegar ég heyrði hina ágætustu menn aðhyllast Adolf Hitler og hyski hans.

Hörður Þormar, 14.2.2022 kl. 17:18

3 identicon

Sæll Halldór,

Best væri fyrir Putin kalinn að setja upp herstöðvar á Kúpu og Venesúela, eða svona gegn NATO, svo og gegn hugsanlegri NATO stækkun í bæði Úkraínu og Georgíu. Nú og síðan getur hann orðið við ósk hans Bidens með að færa eitthvað af rússneska herliðinu innanlands, nú og jafnframt óskað eftir því í leiðinni, að Biden karlinn færi eitthvað af bandaríska herliðinu sínu innanlands eitthvað, nú og eins og t.d. frá Texas eða öðru flykki, ekki satt?
KV.
 
RUSSIA WANTS WAR RUSSIA CHINA ALOE KIA INDIA SUDAN Look How Close They Put  Their Country to Our Military Bases | Meme on ME.ME

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 14.2.2022 kl. 19:27

4 identicon

Þegar talað er um Úkraínu þá má ekki gleyma að þetta er annað stæsta land í Evrópu á eftir Rússlandi. 600 þúsund Km.2 .

Þá megum við ekki því að fjölskylda Joe Biden hefur lengi braskað þar eystra. Hver man ekki eftir hneykslinu í kringum Hunter Biden, son Bidens forseta fyrir nokkrum árum.

Bandaríkjamenn þekkja Úkraíni sem er auðug að bæði olíu og gasi auk ýmissa fágætra málma.
Kannnski hafa BNA stutt sína menn til valda o.s.frv. veit ekki.

Úkranína er kærkomin BRÁÐ fyrir BNA þegar Afganistan er ekki lengur fyrir hendi.

Guðmundur Bjarnason (IP-tala skráð) 17.2.2022 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 57
  • Frá upphafi: 3418272

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 57
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband