Leita í fréttum mbl.is

Falsfréttir og rangupplýsingar

eru þær dagskipanir æðstastrumps ESB-trúboðsins á Íslandi sem hann lætur leigupenna sína keyra eftir. Kallar það víst Torg er það ekki? 

Þar framarlega eru tveir yfirstrumpar veldisins Sigmundur Ernir og Þorsteinn  Pálsson.

Þeir fara mikinn að blanda sífellt saman Atlantshafsbandalaginu og EES aðildinni sem einhverjum hornsteinum utanríkisstefnu Íslands.

Þorsteinn  Pálsson dregur ekki af sér í dag.

Eftirfarandi tilvitnanir draga aðalatriðin fram.

"...Þetta er hins vegar sérkennileg yfirlýsing í stjórnarsáttmála árið 2022 í ljósi þess að í þrjá áratugi hefur Ísland átt fulla aðild að innri markaði Evrópusambandsins, sem er uppistaðan í starfi þess. Þrátt fyrir þessi afdráttarlausu orð í stjórnarsáttmálanum verður ekki annað séð en utanríkisráðherra líti svo á, bæði í orðum og athöfnum, að aðildin að innri markaði Evrópusambandsins sé annar hornsteinn utanríkisstefnunnar ásamt þátttöku í Atlantshafsbandalaginu...."

"...Stjórnvöld eiga ekki að gefa í skyn að norrænt samstarf sé grundvöllur utanríkisstefnunnar þegar hún í raun byggir á aðild að Atlantshafsbandalaginu og innri markaði Evrópusambandsins..."

"...Alveg á sama hátt er eðlilegt að setja á dagskrá stjórnmálaumræðunnar hér heima spurninguna um fulla aðild að Evrópusambandinu. Við erum nú þegar aðilar að kjarna Evrópusamstarfsins. Lokaskrefið myndi styrkja efnahagslega stöðu Íslands og veita traustara pólitískt skjól á þeim óvissutímum, sem fram undan eru. Hagsmunum Íslands er best borgið með því...."

Þarna sést hvernig Þorsteinn tengir saman  á purkunarlausan hátt tvo óskylda hluti sem hafa enga tengingu hvor við annan. Áróður Helga Magnússonar er hinsvegar sá að reyna að koma því inn hjá fólki að EES hafi einhver áhrif í grunnstoðir utanríkisstefnunnar sem Ísland hefur fylgt frá stofnun NATO.

Einn fyrir alla og allir fyrir einn ef til vopnaðs yfirgangs kemur. Því sé best að klára málið með inngöngu í ESB.

Hættulegar rangupplýsingar ESB studdar hverskyns falsfréttum sem hvergi standast skoðun. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband