Leita í fréttum mbl.is

Hvernig er hægt að stöðva Háskólann í Reykjavík ?

Byggingaráform fyrirtækis sem Háskólinn í Reykjavík gaf 11 hektarana sína úr Vatnsmýrinni dýru , sem hann hafði áður fengið gefna af R-listanum og núverandi meirihluti telur sig skuldbundinn af , munu vinna óbætanlegt tjón á Reykjavíkurflugvelli.

Örn Sigurðsson arkitekt, sem skrifar undir nafninu "Samtök um betri byggð", kemur öðru hverju með útreikninga um að flugvöllurinn tapi 3.5 milljörðum af fé Reykvíkinga á ári sem líður án þess að hann fari. Það nennir sem betur fer enginn að elta ólar við alla þessa vitleysu, þar sem fylgi við áframhaldandi veru Reykjavíkurflugvallar á sínum stað fer dagvaxandi.

Enda sér hver maður að Örn getur fyrst byggt í Tjörninni, sem hverfur með byggðinni í Vatnsmýri með fuglunum og svo í Hljómskálanum. Svo gæti hann reiknað út hversu arðgæfar byggingar eins og Háskólinn og Norrænahúsið eru miðað við blokkarúthlutanir.

En burt með þennan Háskóla Reykjavíkur úr Vatnsmýri. Hann á þar ekkert erindi ofan í sprugið umferðarkerfi.  Af hverju fer hann bara ekki til Keflavíkur. Þar þarf ekkert að byggja, þar er þegar allt sem hann þarf ! Og gott væri ef Örn yrði gerður prófessor í arkitektúr þar svo hann fái um eitthvað annað að hugsa en þessa Vatnsmýrarþráhyggju.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Hvernig er þetta með þig minn kæri.  Ertu á móti æðri menntun á svæðinu frá Öskjuhlíð og að HÍ?

Þú ferð bara fram á, að fá að færa skýlin þín upp á Heiði, hvar nýji völlurinn verður eða ef flugið fer til Keflavíkur, fáir þú einn hangerinn til að leigja út.  Þú ert flugvélafóstri og átt auðvitað að vera það áfram en bara ekki  í Vatnsmýrinni.

Um vatnasvið Tjarnarinnar er það að segja, að menn hrukku pínu við, þegar Sóleyjargatan var grafin upp og skipt um jaðrveg undir henni, allmarga metra niður.  Það fossaði vatn undan Skólavörðuholtinu og undan Suðurhlíðunum.  svo mikið, að menn voru í stórvandræðum með það við framkvæmdirnar.

Ekki vnduðu menn sig heldur mikið þegar þeir lögðu nýja völlinn núna fyrir stuttu síðan í Vatnsmýrinni.  Vatnið sem áður rann í Tjörnina flæðir nú eftir skurðinum, sem myndaðist undir ,,púkkinu" undir braut 01 allar götur út í Skerjafjörð. 

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 12.6.2007 kl. 09:19

2 Smámynd: Halldór Jónsson

󬭳hei𩮠er vonlaus vegna a𳴦𮡠og ?ki liggur h?Mosfellssveit sem vill engan flugv??br> Keflv�ngar vilja ekkert innanlandsflug til s� Af hverju opnar𵠥kki augun ma𵲠og s鲠hina st󲫯stlegu fegur𠭩 󢹧g𵠖skjuhl�rsv氩nu, nᴴ?rlunni sem gerir Reykjav�a𠦡llegri borg ?ar b?rgir misvitrir menn eins og ֲn Betribygg𠯧 J󨡮n J. Ӭafsson sem sjᠾetta ekki heldur.

Au𶩴a𠥲 駠menntunarsinni. En flugstarfsemi er undirsta𡠢orgarl�. ޡ𠢹ggir enginn me𠲩ttu rᰩ Hᳫ󬡠ofan �lugbrautir, 駠tr?�𠾺 s鲴 um ?mᬡ,

Halldór Jónsson, 12.6.2007 kl. 15:27

3 Smámynd: Halldór Jónsson

Þetta er allt brenglað

Hólmsheiði er vonlaus vegna aðstæðna og svo liggur hún að hluta í Mosfellssveit sem vill engan flugvöll hjá sér.  Keflvíkingar  vilja ekkert innanlandsflug til sín.  Af hverju opnarðu ekki augun maður og sérð hina stórkostlegu  fegurð í ósnortinni  Öskjuhlíðinni, náttúruperlunni  sem gerir Reykjavík að hinni fegurstu borg . Þar búa auðvitað  misvitrir menn eins og þú og Örn  kallinn arkitekt í Betribyggð  og Jóhann J. Ólafsson vinur minn sem er hans meðreiðarsveinn. 

Auðvitað er ég menntunarsinni. En flugstarfsemi er undirstaða  borgarlífs. Það byggir á atvinnulífi. Ekki á brunnklukkum og hornsílum, þó að viljum auðvitað hafa þetta líka og hlú að því.

En það byggir enginn Háskóla ofan í flugbrautir nema ef á að leggja þær niður. Það var samsærið sem R-listinn gerði gegn flugvellinum og því miður íhaldið og framsókn heldur áfram með að efna. Háskólinn á ekkeert erindi þarna, það er nóg land til dæmis uppí Gufunesi og Keldnaholti ef menn vilja endileg byggja ný hús í stað þess að nýt mannvirkin í Keflavík 

�. ޡ𠢹ggir enginn me𠲩ttu rᰩ Hᳫ󬡠ofan �lugbrautir, 駠tr?�𠾺 s鲴 um ?mᬡ,

Halldór Jónsson, 12.6.2007 kl. 15:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband