Leita í fréttum mbl.is

Hversvegna sækja klárarnir þangað sem þeir eru kvaldastir ?

Ég hef verið að gjóa augunum á þessa umræður um það að skylda presta þjóðkirkjunnar til að gefa saman homma og lesbíur. Þó ég sé ekki mikill kirkjunnar maður, hvað þá hinsegin,  þá finnst mér alltaf gaman að fara í kirkjubrúðkaup eins og ég þekki þau, þ.e. normal athafnir, ef ég má segja svo. Ég held að mig langi ekkert í að mæta í hinsegin brúðkaup, ég er svo mikill tréhaus að ég er fastur í því venjulega fjölskyldumunstri sem maður er alinn uppí.

Gunnar vinur minn í Krossinum hefur verið ómyrkur í máli um það, að kynvilla sé andstyggð í frá sjónarhóli  biflíunnar. Þetta tvennt fari ekki saman. Ég velti þá fyrir mér, hversvegna þetta fólk vill endilega láta trúaða framkvæma athafnir sem þeim eru á móti skapi ? Vilja þeir neyða Gunnar til að éta sínar skoðanir ofaní sig og blessa kynvillu í eigin söfnuði ? Eða láta Jón Val éta ofaní sig og samþykkja þeirra sýn á lífið ?

Af hverju vilja hommar og lesbíur endilega þrengja sér inní þau musteri sem mörgu fólki eru heilög.? Neyða prestagreyin til að tala sér þvert um hug ? Geta samtökin 78 ekki fundið einhvern prestlærðan í sínum hópi til að fremja slíkar athafnir í nafni Guðskristni ? Mega hinir sem hugsa svipað og Gunnar í Krossinum ekki vera stikkfrí ?

Ég vil svo taka fram, að ég hef kynnst hinum  mestu gullkarakterum í hópi kynvilltra og bundist þeim miklum vináttunböndum. Kynhegðun hefur ekki neitt að gera með mannlegt líf að öðru leyti, þetta er ekki síðra fólk en annað  og áreiðanlega margt betra en ég.

Þessvegna vil ég hvetja þetta ágæta fólk  til að koma sér upp eigin söfnuðum og prestum en  hætta að svekkja þá söfnuði sem ekki vilja hafa slíkt hjá sér. Ég held að allir yrðu sælli þannig og sambandið gæti bara batnað. Biskupsefni samkynhneigðra hlýtur að mega finna einhversstaðar hérna þar sem ekkert virðist skorta á hinsegin preláta víða um lönd ef marka má fréttir.

Og svo þetta með nýja þýðingu biflíunnar. Var gamli textinn rangur ? Er búið að leggja skakkt út af Guðsorðinu allan þennan tíma ? Verður þetta í lagi núna ?  Eða verður þýtt aftur og öðruvísi ?

Og hver á rétta frumtextann ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Rétti frumtextinn á rangt þýddu stöðunum í Pálsbréfunum er til, hann er prentaður í öllum útgáfum gríska Nýja testamentisins og enginn textaágreiningur þar í þeim versum. --

En varðandi sáttatillögu þína ... "allir yrðu sælli þannig og sambandið gæti bara batnað," segirðu. Hvílík bjartsýni. Þeir óbilgjörnu í samkynhneigðraliðinu munu halda áfram eins og rjúpan við staurinn að þvinga kirkjuna eins langt og mögulegt er, enda gengur þeim naumast velvild til í garð kirkjunnar og trúararfsins. Sannaðu til, Halldór minn.

Jón Valur Jensson, 26.10.2007 kl. 21:22

2 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Jón Valur Jensson guðfræðingur og þýðandi gömlu tungumálanna er með ágæta samantekt um þýðingarvillurnar á þessari slóð : 

http://jonvalurjensson.blog.is/blog/jonvalurjensson/entry/342362/

Hjörtur Magni í Fríkirkjunni á hlaupum í popularismanum í þeirri viðleitni að stækka söfnuð sinn og tekjur, hefur sett kíkinn á blinda augað gagnvart "köllun" sinni í að vera Guði sínum trúr í boðun sinni. Hann býður homma og lesbíur velkomna í söfnuð sinn og býður þeim blessun í bak og fyrir. Vafalaust getur forma'ur samtakanna 78 boðið sig fram til byskupskjörs innan þess safnaðar og unnið sigur, ef eitthvað er að marka malanda Hjartar Magna.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 26.10.2007 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband