Leita í fréttum mbl.is

Harðlynda Hanna !

Hér á síðunni hafa 625 tekið afstöðu til Reykjavíkurflugvallar. 92 % lýsa sig andvíg því að völlurinn verði lagður af. Svipaðri  niðurstöðu skila allar aðrar skoðanakannanir:  Almenningur vill hafa flugvöllinn á sínum stað áfram.

Nýr meirihluti í Borgarstjórn Reykjavíkur byrjar sína vegferð með þeirri yfirlýsingu Hönnu Birnu borgarstjóra, að það besta  byggingalandið sé  á vallarsvæðinu.  Án tafar verði að fara í viðræður við ríkið um að loka vellinum. 

Nýr borgarstjóri er augljóslega í jafn nánum tengslum við borgarbúa og minnihlutinn lýsti  við meirihlutaskiptin .    Hún veit alla vega hvað þeim er fyrir beztu,  hvað sem þeim  auðsvörtu kann að finnast um einstök atriði.  Hún vill bara turna þeim sem eru á öndverðum meiði í vallarmálinu. Ef til vill getur hún bara lamið þá til hlýðni.   Hún kann  kannske  vísuna :

" Góðmennskan gildir ekki,

gefðu duglega á kjaft,

það hefur það ég þekki,

þann allra besta kraft. " 

En hversvegna vill hún þá ekki ekki bara þurrka upp Skerjafjörðinn eins og Björn Kristinsson prófessor leggur til. Fá þarmeð 2600 ha. byggingaland á spottprís. Milljarða gróði !   Vera ekki að eltast við örfá tugi ha. undir Reykjavíkurflugvelli. ? Kópavogshöfn er hvort sem er ónýt  eftir að fáeinir háværir mótmælendur töku skipulagsvöldin í vesturbænum til sín, svo ekki ætti andstaða að koma þaðan. 

Heyrt hef ég gárunga söngla stef úr gamla slagaranum "  harðlyndu Hönnu "  eða "hardhearted Hanna",  þegar nýjustu borgarmálaviðburði  ber á góma.  Prússar voru sagðir trúa á það ,  að hafa pískinn í hendinni til þess að tryggja ferð sína um sveitir landsins. En  máltækið sagði annars,  að maður ætti  að halda á hattinum sínum þegar maður ferðaðist.   En það hefur auðvitað hver sinn stíl.

En það er kominn tími til að berjast um grundvallaratriðin og hætta að kjafta.  Það er ekkert um að semja. Annaðhvort eða. 

 

  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sturla Snorrason

Við gefum ekki tommu eftir af flugvellinum. Reynum heldur að fá HR bygginguna undir flugstöð og höldum stuttu brautinni sem aðvelda lendingar í s-v stormi.

Þessi flugstöðvar lóð við norðurendan er allt of lítil og allt of nálagt bænum eða þá Landsspítalanum. 

Sturla Snorrason, 31.8.2008 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.12.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 3419866

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband