Leita í fréttum mbl.is

Er þetta eitthvað flókið ?

Fór það framhjá nokkrum  að Sjálfstæðisflokkurinn var massívur á móti inngöngu í ESB á landsfundi sínum ? 

Sjálfstæðisflokkurinn hafnaði líka skattahækkunarleiðinni  sem leið útúr kreppunni.

Geir Haarde lýsti því hvernig  hávaxtavaxtapólitík Seðlabankans kynti undir Jóklabréfaútgáfunni og  keyrði gengi krónunnar upp í hæðir.  Mér fannst Geir segja það berum orðum að Seðlabankinn bæri þannig sína ábyrgð á þeim lás sem við erum nú föst í útaf krónubréfum útlendinganna.  

Ef þú kjósandi góður vilt hækka staðgreiðsluna hjá þér í 47 % þá kýstu VG.

Ef þú vilt taka upp 2 % eignaskatt á foreldra þína, afa og ömmu þá kýstu VG.

Ef þú vilt ganga í ESB eins fljótt og auðið er þá kýstu Samfylkinguna,  Baug og Fréttablaðið.

Ef þú vilt ekkert af þessu þá kýstu Sjálfstæðisflokkinn undir formennsku Bjarna Benediktssonar, sem er heilli kynslóð yngri en Skallagírmur, Jóhanna og Ingibjörg Sólrún.

 Mér finnst þetta bara ekkert flókið !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brattur

Sjálfstæðisflokkur var svo "massívur" að Bjarni Ben. var ekki alveg búinn að átta sig á því hvort hann væri enn með eða á móti ESB... og ég er bara eiginlega eins og hann, veit ekkert hvað Sjálfstæðisflokkurinn vill í þessum efnum...

Eru Sjálfstæðismenn ekki bara klofnir í "massívar" einingar í dag?

Brattur, 31.3.2009 kl. 22:44

2 Smámynd: Halldór Jónsson

Því miður eruð þið báðir á svo háu plani að ég skil ykkur ekki og get þarafleiðandi ekki komið með andsvör

Halldór Jónsson, 1.4.2009 kl. 07:47

3 Smámynd: Hafsteinn Björnsson

Ég er hræddur um, að of margir séu svo auðtrúa að þeir elti Skalla og co útí hafsauga og sama hverju hann dengir yfir okkur í framtíðinni, þá kemur hann alltaf til með að klína öllu sínu klúðri á Sjálfstæðismenn og auðtrúa skríllinn hrópar "húrra" fyrir foringja Skalla og trúir honum.

Vonum að íslendingar taki ábyrga afstöðu í komandi kosningum og kasti atkvæðum sínum ekki í ruslið með því að kjósa VG.

VÖRUMST VINSTRI SLYSIN

SKATTMANN RETURN !

Hafsteinn Björnsson, 1.4.2009 kl. 22:01

4 Smámynd: Halldór Jónsson

Steingrímur góður,

mér hefur nú sýnst aðrir flokkar yfirleitt vita mun meira um stefnu Sjálfstæðisflokksins, "nýfrjálshyggju"  hans og annað skuggalegt innræti "floksseigendanna" heldur en ég og aðrir venjulegir flokksmenn höfum haft hugmynd um. Ég held að þessi fullyrðing þín þarfnist talsverðrar endurskoðunar við. 

Áform vinstriflokkanna um skattahækkanir eru ekki mín uppfinning eða Sjálfstæðisflokksins heldur eru þau  komin  beint úr umræðunni. 

Og Hafsteinn,

Það vill svo til að við þurfum ekki að semja ný slagorð fyrir þessa kosningabaráttu. Þau eru öll til á lager eins og þú rifjar upp og eru bæði klassísk og sönn !

Halldór Jónsson, 1.4.2009 kl. 22:36

5 Smámynd: Brattur

Ha, ha Hafsteinn... það er ekki til verra slys en það HÆGRA slys sem þegar hefur gerst... Sjálfstæðisflokkurinn er búinn að klessukeyra bílinn og öll þjóðin á gjörgæslu...

Brattur, 1.4.2009 kl. 23:51

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, Halldór, þetta virðist a.m.k. "eitthvað flókið" fyrir Bjarna unga Benediktsson og Ólaf nokkurn Hrólfsson, sem ég svara í þessu glænýja innlegg mínu sem ég vísa hér á, sérstaklega af því að þar er vitnað í mjög áreiðanlegar og afgerandi upplýsingar (í tveimur toppbókum) um stálharðar kröfur þessa Evrópubandalags í svokölluðum aðildarviðræðum.

Með góðri kveðju,

Jón Valur Jensson, 2.4.2009 kl. 07:15

7 Smámynd: Halldór Jónsson

Sæll Jón Valur,

Ég sé nú ekki að þið séuð skoðanalega fjarskyldir þú og Bjarni ungi hvað varðar afstöðunni til ESB.

H.Pétur, mér sýnist þú of gáfaður fyrir mig.

Sama gildir um Bratt

Halldór Jónsson, 2.4.2009 kl. 07:58

8 Smámynd: Halldór Jónsson

Svaka ertu gáfaður H.Pétur

Halldór Jónsson, 2.4.2009 kl. 14:28

9 Smámynd: Halldór Jónsson

Þetta eru allt tölur sem koma frá stjórnarflokkunum.

Ég greiddi líka of mikið til glæpamannanna eins og þú. Þeir  glæpamenn sem stálu af mér voru fæstir í Sjálfstæðisflokknum.

Halldór Jónsson, 2.4.2009 kl. 16:19

10 Smámynd: Halldór Jónsson

Veistu Steingrímur, ég er ekki úrklippusafnari. En 2 % eignaskattur kom fram í blöðum  sem möguleg tala frá  talsmanni ríkisstjórnarinnar. Hressilegur hátekjuskattur að hætti Indriða Þorlákssonar mun leggjast ofan á staðgreiðsluprósentuna hjá þeim sem í þeim flokki verða.

Þar sem þú vísar í stefnu Sjálfstæðisflokksins án þess að ég átti mig á þinni útgáfu ,sýnist mér að ég verði að rifja hana upp fyrir þér. Auk þess sem þú virðist ekki hafa verið á landsfundinum þó að þú kunnir svona glögglega frá tíðendum að segja þaðan.

Ég skammast mín hinsvegar ekki fyrir að hafa verið með jafnágætu fólki og var á þessum einum besta landsfundi Sjálfstæðisflokksins sem ég hef setið. Ég var sérstaklega ánægður með að flokkurinn minn reis undir nafni sínu og kaus að ganga ekki undir ný sambandslög ESB. EN líklega fellur það ekki í kramið hjá þér.

En Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður um það að Ísland yrði sjálfstætt þegar sambandslögin væru úti. Því ferli  lauk 17.júní 1944.

Til viðbótar ætlaði Sjálfstæðisflokkurinn  "að vinna í innanlandsmálum að víðsýnni og þjóðlegri umbótastefnu á grundvelli einstaklingsfrelsis og atvinnufrelsis með hagsmuni allra stétta fyrir augum. "

Þetta er sjálfstæðisstefnan í sínum tveimur liðum.  Einföld og skýr.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei séð ástæðu til að breyta stafkrók í þessari stefnuyfirlýsingu frá 1929 eða skipta um nafn eins og sumir aðrir.

Mér finnst það merkilegt hvernig þú getur lagt útaf stefnu Sjálfstæðisflokksins með hætti sem þú gerir. Til þess þarf held ég að þurfi meira en meðalkomma. En þeir þekkja yfirleitt "skítlegt eðli" okkar sjálfstæðismanna án þess að rökstyðja það nánar.

Sumar af hugleiðingum þínum og útleggingum á eðli sjálfstæðismanna eru of háfleygar fyrir mig að skilja.

Halldór Jónsson, 2.4.2009 kl. 20:54

11 Smámynd: Halldór Jónsson

Of gáfaður kommatittur  fyrir mig. Enda sveiar maður hundum til að láta þá þegja,  ekki til að gelta meira.

Halldór Jónsson, 3.4.2009 kl. 07:44

12 Smámynd: Halldór Jónsson

www.jonas.is

Ef vinstri grænir ná fram 2% eignaskatti, verða þeir að miða við, ... 2% eignaskattur tíðkast
Ekki það að Steingrími skáni við þetta þá er þetta á fleiri manna vitorði hvaðan þetta kemur.

Halldór Jónsson, 3.4.2009 kl. 16:04

13 Smámynd: Halldór Jónsson

Lilja Mósesdóttir frambjóðandi hjá VG sagði í Morgunblaðinu 26. mars að VG muni leggja á 2% sanngjarnan eignarskatt eftir fyrirmynd frá öðrum Norðurlöndum.

Nú er þessi yfirlýsing Lilju sem Steingrímur einnig endurtók í Sjónvarpinu allt í einu kölluð hræðsluáróður.  Hvað eiga kjósendur að halda.?  Hver er skattastefna VG?

Það er að sumu leiti óréttlátt að gagnrýna aðeins VG.  VG hefur að minnsta kosti talað um skattamál sem er meir en aðrir flokkar hafa gert.

Hvar standa S, B og D í þessum málum?  Kjósendur verða að fá tölulegar upplýsingar varðandi stefnu allra flokka í ríkisfjármálum fyrir kosningar en ekki eftir.

Halldór Jónsson, 4.4.2009 kl. 16:58

14 Smámynd: Halldór Jónsson

Þessi athugasemd var kopieruð as síðu Andrei Geirs. Síðasta línan er þaðan. Bjarni Ben er búinn að skýra stefnu D. Enga nýja skatta. Þarmeðtalinn eignaskattur

Halldór Jónsson, 4.4.2009 kl. 17:00

15 Smámynd: Halldór Jónsson

Ekki óhjákvæmilegt en útilokaði ekki. Enga nýja skatta !

Halldór Jónsson, 4.4.2009 kl. 23:43

16 Smámynd: Halldór Jónsson

Sem sagt, Halldór:

Þú getur á engan hátt gert grein fyrir máli þínu og hlýtur það því að teljast rangfærslur frá upphafi til enda!

Það sem mér þykir hins vegar verra er að  maður sem kynnir sig sem verkfræðngur skuli leggjast svo lágt að hann geti ekki svo mikið sem að getið heimilda sinna og það þrátt fyrir margendurteknar áskoranir- en það virðist vera orðið landlægt meðal sjálfstæðismanna!  Ég hef þó ekki orðið var við að maður sem kennir sig við mína mikilsverðu starfssétt skuli leggjst svo lágt að fara rangt með og neita svo að geta heimilda!

Svei þér! Halldór Jónsson!, svei þér!

 Lilja Mósesdóttir frambjóðandi hjá VG sagði í Morgunblaðinu 26. mars að VG muni leggja á 2% sanngjarnan eignarskatt eftir fyrirmynd frá öðrum Norðurlöndum

Kommatittur !

Halldór Jónsson, 4.4.2009 kl. 23:46

17 Smámynd: Halldór Jónsson

Also sprach Steingrímur :

"Sem sagt, Halldór:

Þú getur á engan hátt gert grein fyrir máli þínu og hlýtur það því að teljast rangfærslur frá upphafi til enda!

Það sem mér þykir hins vegar verra er að  maður sem kynnir sig sem verkfræðngur skuli leggjast svo lágt að hann geti ekki svo mikið sem að getið heimilda sinna og það þrátt fyrir margendurteknar áskoranir- en það virðist vera orðið landlægt meðal sjálfstæðismanna!  Ég hef þó ekki orðið var við að maður sem kennir sig við mína mikilsverðu starfssétt skuli leggjst svo lágt að fara rangt með og neita svo að geta heimilda!

Svei þér! Halldór Jónsson!, svei þér! ¨

 Lilja Mósesdóttir frambjóðandi hjá VG sagði í Morgunblaðinu 26. mars að VG muni leggja á 2% sanngjarnan eignarskatt eftir fyrirmynd frá öðrum Norðurlöndum

Kommatittur  ?

Halldór Jónsson, 4.4.2009 kl. 23:48

18 Smámynd: Halldór Jónsson

Nei Bjarni sagði að þeir hefðu aldrei útilokað að hækka skatta eitthvað. Enga nýja skatta vildi Sjálfstæðisflokkurinn. 2 % eignaskattur Liju er nýr skattur. Það var enginn misskilningur eða ónákvæmni þarna. 

Halldór Jónsson, 7.4.2009 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Halldór Jónsson
Halldór Jónsson

verkfræðingur, flugdellukall, tennis-og badmintonspilari

-ekki góður í neinu af þessu-

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 3417956

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband